Hæstiréttur íslands

Mál nr. 11/2012


Lykilorð

  • Kærumál
  • Fjármálafyrirtæki
  • Slit
  • Skuldabréf
  • Vextir
  • Innheimtukostnaður


Mánudaginn 13. febrúar 2012.

Nr. 11/2012.

Burlington Loan Management Limited

(Ragnar Aðalsteinsson hrl.)

gegn

Glitni hf.

(Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir hrl.)

Kærumál. Fjármálafyrirtæki. Slit. Skuldabréf. Vextir. Innheimtukostnaður

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem kröfu B við slit G hf. var skipað í réttindaröð við slit hins síðarnefnda sem almennri kröfu samkvæmt 113. gr. laga nr. 21/1991. G hf. var tekinn til slita með lögum nr. 44/2009 og var upphafsdagur þeirra 22. apríl 2009. B lýsti kröfu við slit G hf. á grundvelli skuldabréfa sem hinn síðarnefndi hafði gefið út á alþjóðamarkaði í febrúar 2007. Aðilar deildu um hvernig fara ætti með afslátt, sem veittur var af nafnverði við útgáfu skuldabréfanna, en G hf. taldi að lækka bæri fjárkröfu B vegna þess afsláttar. Talið var að samkvæmt skilmálum skuldabréfaútgáfunnar væri gert ráð fyrir að fullt nafnverð kæmi til greiðslu og hefði G hf. enga heimild til að greiða bréfin þannig að nafnverðið væri fært niður vegna afsláttarins af því. Var nafnverð bréfanna því talið nema höfuðstól fjárkröfunnar, sem viðurkennd var sem almenn krafa við slit G hf. Deila aðila laut einnig að vöxtum af kröfunni og hvaða innheimtukostnaður hefði fallið á hana. Hafnað var kröfu B um að fjárkrafa hans bæri dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, þar sem ensk lög giltu um skuldabréfaútboðið. Einnig var hafnað kröfu B þess efnis að fjárkrafa hans bæri dráttarvexti eftir lögum áðurgreinds ríkis til upphafsdags slita, enda hefði krafa hans ekki verið gjaldfallin fyrir þann dag. Voru því ekki viðurkenndir aðrir vextir en þeir sem slitastjórn G hf. hafði samþykkt sem almenna kröfu. Þá var kröfu B um dráttarvexti af gjaldföllnum samningsvöxtum samkvæmt skuldabréfunum hafnað, enda var hennar í engu getið í kröfulýsingu B. Loks var B ekki talinn hafa sýnt fram á að hvaða marki kostnaður kynni að hafa fallið til fyrir upphaf slita G hf.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Viðar Már Matthíasson og Benedikt Bogason og Helgi I. Jónsson settir hæstaréttardómarar.

Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 22. desember 2011, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 5. janúar 2012. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 15. desember 2011, þar sem krafa sóknaraðila að fjárhæð 5.021.909.942 krónur var viðurkennd við slit varnaraðila sem almenn krafa samkvæmt 113. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Kæruheimild er í 1. mgr. 179. gr. sömu laga. Sóknaraðili krefst þess að viðurkennd verði almenn krafa sín við slitin aðallega að fjárhæð 5.551.537.599 krónur, en til vara 5.221.824.015 krónur. Að því frágengnu krefst sóknaraðili staðfestingar hins kærða úrskurðar um annað en málskostnað. Þá krefst hann málskostnaðar í héraði og kærumálskostnaðar.

Varnaraðili kærði úrskurð héraðsdóms fyrir sitt leyti 23. desember 2011. Hann krefst þess að krafa sóknaraðila verði viðurkennd sem almenn krafa að fjárhæð 5.005.223.419 krónur. Þá krefst hann málskostnaðar í héraði og kærumálskostnaðar.

I

Svo sem greinir í hinum kærða úrskurði tók Fjármálaeftirlitið yfir vald hluthafafundar í varnaraðila 7. október 2008, vék stjórn hans frá og setti yfir hann skilanefnd á grundvelli 100. gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. 5. gr. laga nr. 125/2008. Í kjölfarið var varnaraðila veitt heimild til greiðslustöðvunar 24. nóvember sama ár. Með lögum nr. 44/2009, þar sem breytt var nokkrum ákvæðum fyrstnefndu laganna, var varnaraðili síðan tekinn til slita og skyldi upphaf þeirra miðast við 22. apríl 2009 þegar lögin öðluðust gildi. Hinn 12. maí sama ár skipaði Héraðsdómur Reykjavíkur slitastjórn yfir varnaraðila sem annast meðal annars meðferð krafna á hendur honum. Gaf hún út innköllun til skuldheimtumanna 26. maí 2009 og lauk kröfulýsingarfresti 26. nóvember sama ár. Samkvæmt 102. gr. laga nr. 161/2002 gilda reglur laga nr. 21/1991 um meðferð krafna við slitin, sbr. 2. tölulið ákvæðis II til bráðabirgða með lögum nr. 44/2009.

Með bréfi 20. nóvember 2009 lýsti sóknaraðili kröfu við slitin meðal annars á grundvelli skuldabréfa til þriggja ára, en bréfin voru í flokki sem varnaraðili gaf út á alþjóðamarkaði í febrúar 2007. Í svonefndri útgáfulýsingu 26. júní 2006 var að finna almenna skilmála vegna bréfanna, en því til viðbótar höfðu svokallaðir lokaskilmálar 1. febrúar 2007 að geyma nánari skilmála um þennan flokk skuldabréfa. Þessum skilmálum er nánar lýst í úrskurði héraðsdóms. Með aðilum er ágreiningur um hvernig fara eigi með afslátt sem veittur var af nafnverði við útgáfu bréfanna. Einnig deila aðilar um vexti af kröfunni og hvaða innheimtukostnaður hafi fallið á hana.

II

Þau skuldabréf sem sóknaraðili reisir kröfu sína á nema að nafnverði 28.110.000 evrum eða 4.757.055.300 krónum miðað við það gengi erlendra gjaldmiðla sem tekið er mið af við slit varnaraðila. Sóknaraðili krefst þess að sú fjárhæð verði viðurkennd við slitin sem almenn krafa samkvæmt 113. gr. laga nr. 21/1991. Varnaraðili telur á hinn bóginn að lækka beri þá fjárhæð vegna fyrrgreinds afsláttar af nafnverði bréfanna, sem nam 0,313% eða 14.889.583 krónum, og fara með hann þess í stað eins og vexti. Á þeim grunni hefur varnaraðili viðurkennt við slitin 10.976.992 krónur af afslættinum en sú fjárhæð svarar til hlutfallsins milli annars vegar útgáfudags til upphafsdags slitanna 22. apríl 2009 og hins vegar útgáfudags til 5. febrúar 2010, sem var umsaminn gjalddagi bréfanna. Mismunurinn, sem aðilar deila um, nemur því 3.912.591 krónu.

Samkvæmt þeim skilmálum sem gilda um bréfin átti nafnverð þeirra að koma í einu lagi til greiðslu á fyrrgreindum gjalddaga. Einnig var í skilmálunum að finna heimild til að gjaldfella kröfuna með skriflegri tilkynningu í tilefni af nánar tilgreindum vanefndum en í því tilviki kæmi til greiðslu nafnverð bréfanna. Í báðum tilvikum var því gert ráð fyrir að fullt nafnverð kæmi til greiðslu og enga heimild að finna í skilmálunum fyrir varnaraðila til að greiða bréfin þannig að nafnverðið væri fært niður vegna afláttarins af því. Í málinu hefur hvorki verið skýrt hvaða forsendur bjuggu að baki þessum afslætti né hvernig hann var ákveðinn að því frágengnu að hlutfalls hans var getið í skilmálunum. Þá er þess einnig að gæta að samningsvextir sem krafan bar skyldu reiknaðir af fullu nafnverði skuldabréfanna. Að öllu þessu virtu verður að leggja til grundvallar að nafnverð bréfanna að fjárhæð 4.757.055.300 krónur nemi höfuðstól kröfunnar og verður hann viðurkenndur sem almenn krafa við slitin.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður staðfest sú niðurstaða að hafna kröfu sóknaraðila um að fjárkrafa hans samkvæmt skuldabréfunum beri dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

Til vara krefst sóknaraðili þess að krafa sín beri dráttarvexti eftir enskum lögum til 22. apríl 2009 sem eins og áður greinir telst upphafsdagur slita á varnaraðila. Á þeim degi var krafan samkvæmt skuldabréfunum hvorki fallin í gjalddaga eftir efni þeirra né hafði sóknaraðili gjaldfellt hana með skriflegri tilkynningu eins og heimild stóð til vegna vanefnda eftir þeim skilmálum sem um bréfin giltu. Þá gat krafan ekki gjaldfallið sjálfkrafa við það eitt að Fjármálaeftirlitið tæki yfir vald hluthafafundar í varnaraðila 7. október 2008 eða hann fengi heimild til greiðslustöðvunar 24. nóvember sama ár. Þess er einnig að gæta að krafan féll ekki í gjalddaga vegna þess eins að slit varnaraðila hafi byrjað 22. apríl 2009, sbr. 1. mgr. 102. gr. laga nr. 161/2002. Þegar af þeirri ástæðu að krafa sóknaraðila samkvæmt skuldabréfunum var ekki gjaldfallin fyrir síðastgreindan dag getur sóknaraðili ekki krafist dráttarvaxta af henni, enda verður ekki ráðið af því sem liggur fyrir í málinu um ensk lög að dráttarvextir geti samkvæmt þeim fallið á kröfu sem ekki er komin í gjalddaga. Verða því ekki viðurkenndir frekari vextir en þeir, sem slitastjórn varnaraðila hefur samþykkt sem almenna kröfu, að fjárhæð 252.080.710 krónur.

Við slit fjármálafyrirtækis ber að gera kröfulýsingu úr garði eins og greinir í 2. mgr. 117. gr. laga nr. 21/1991. Þar skal krafa tiltekin svo skýrt sem verða má auk þess sem greina skal þær málsástæður sem hún er studd við. Í kröfulýsingu sóknaraðila var í engu getið kröfu um dráttarvexti af gjaldföllnum samningsvöxtum samkvæmt skuldabréfunum, en sú krafa kom fyrst fram í greinargerð sóknaraðila fyrir héraðsdómi að liðnum kröfulýsingarfresti. Þegar af þeirri ástæðu verður þeirri kröfu hafnað, sbr. 118. gr. laga nr. 21/1991.

Fallist verður á það með héraðsdómi að sóknaraðili hafi ekki leitt í ljós að hvaða marki kostnaður kunni að hafa fallið til fyrir upphaf slita 22. apríl 2009 vegna innheimtu kröfunnar sem mál þetta lýtur að. Kröfu um að innheimtukostnaður verði viðurkenndur sem almenn krafa við slitin er því hafnað.

Eftir atvikum er rétt að málskostnaður í héraði og kærumálskostnaður falli niður.

Dómsorð:

Krafa sóknaraðila, Burlington Loan Management Limited, að fjárhæð 5.009.136.010 krónur er viðurkennd við slit varnaraðila, Glitnis hf., sem almenn krafa samkvæmt 113. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl.

Málskostnaður í héraði og kærumálskostnaður fellur niður.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 15. desember 2011.

I.

Mál þetta, sem þingfest var 29. apríl 2011, var tekið til úrskurðar 15. nóvember sl.

Sóknaraðili, Burlington Loan Management Limited, gerir aðallega þá kröfu að krafa hans að fjárhæð 5.551.537.599 krónur verði viðurkennd við slitameðferð varnaraðila, Glitnis banka hf., sem almenn krafa skv. 113. gr. laga nr. 21/1991. Til vara er þess krafist að krafa hans að fjárhæð 5.221.824.015 krónur verði viðurkennd sem almenn krafa við slitameðferðina, en til þrautavara að krafa hans að fjárhæð 5.009.242.345 krónur verði viðurkennd sem almenn krafa við slitameðferðina. Í öllum tilvikum krefst sóknaraðili málskostnaðar úr hendi varnaraðila að mati dómsins, auk virðisaukaskatts.

Varnaraðili, Glitnir banki hf., krefst þess aðallega að kröfum sóknaraðila verði hafnað og að staðfest verði sú afstaða slitastjórnar varnaraðila að krafa sóknaraðila verði viðurkennd sem almenn krafa skv. 113. gr. laga nr. 21/1991 að fjárhæð 5.005.223.419 krónur. Þá krefst varnaraðili málskostnaðar úr hendi sóknaraðila að mati dómsins auk virðisaukaskatts.

II.

Í febrúar 2007 gaf varnaraðili út skuldabréf á alþjóðamarkaði að fjárhæð 500 milljónir evra sem nam þá um 44,5 milljörðum íslenskra króna. Skuldabréfin, sem voru til þriggja ára, voru gefin út undir svokölluðum Global Medium-Term Note Programme- rammasamningi bankans um alþjóðlega skuldabréfaútgáfu. Byggist krafa sóknaraðila á eignarhaldi hans á skuldabréfum samkvæmt þessari útgáfu í skuldabréfaflokki með auðkennið XS0284757308, að nafnvirði 28.110.000 evrur, en óumdeilt er að þau hafi upphaflega verið gefin út með afslætti sem nam 87.984,3 evrum, eða 0,313%.

Í útgáfulýsingu, dags. 26. júní 2006, er að finna almenna skilmála fyrir öll þau skuldabréf sem gefin voru út samkvæmt útgáfuáætlun, þ.m.t. lýsingu á varnaraðila, fjárhagslegar upplýsingar, tilgreiningu áhættuþátta og þá skilmála sem við eiga um öll skuldabréf sem gefin voru út samkvæmt útgáfuáætluninni. Þá kemur þar fram að um skuldabréfin gildi ensk lög. Samkvæmt útgáfuáætluninni kallast hver útgáfa skuldabréfa flokkur. Sérstakt skjal sem kallast lokaskilmálar var gefið út fyrir hvern skuldabréfaflokk og þessir skilmálar gefnir út fyrir umrædd skuldabréf 1. febrúar 2007. Kemur þar meðal annars fram að útgáfudagur skuldabréfaflokksins sem bréf sóknaraðila tilheyra sé 5. febrúar 2007 og að skuldabréfin beri fasta 4,375% vexti sem greiðast áttu einu sinni á ári eða 5. febrúar hvert ár. Gjalddagi bréfanna (maturity date) er tilgreindur 5. febrúar 2010 og fram kemur að útboðsgengið (issue price of tranche) sé 99,687%.

Hinn 7. október 2008 tók Fjármálaeftirlitið yfir vald hluthafafundar varnaraðila, vék stjórninni frá og skipaði skilanefnd yfir bankann á grundvelli 100. gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. 5. gr. laga nr. 125/2008 um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði. Þá var bankanum veitt greiðslustöðvun með úrskurði héraðsdóms 24. nóvember 2008. Með gildistöku laga nr. 44/2009 um breytingu á lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var Glitnir banki hf. tekinn til slitameðferðar og var bankanum skipuð slitastjórn. Samkvæmt bráðabirgðaákvæði laganna var slitameðferðin kennd við greiðslustöðvun á meðan á heimild bankans til greiðslustöðvunar á grundvelli laga nr. 129/2008 um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 stendur. Slitastjórn varnaraðila gaf út innköllun til skuldheimtumanna, sem birtist í Lögbirtingablaðinu 26. maí 2009, og lauk kröfulýsingarfresti 26. nóvember sama ár. Lýsti sóknaraðili kröfu innan kröfulýsingarfrests með kröfulýsingu, dags. 20. nóvember 2009. Nam höfuðstóll kröfu hans 28.110.000 evrum, eða 4.757.055.300 krónum, og fjárhæð vaxta til og með 22. apríl 2009 nam 1.500.603 evrum, eða 253.947.046 krónum.

Í viðauka við kröfulýsinguna lýsti sóknaraðili heildarkröfu vegna dráttarvaxta frá 7. október 2008 til og með 22. apríl 2009 vegna allra þeirra skuldabréfakrafna sinna sem voru í evrum án þess að tilgreina fjárhæð þeirra nákvæmlega í viðaukanum. Þá lýsti sóknaraðili sérstakri heildarkostnaðarkröfu sem tæki til allra skuldabréfakrafna sóknaraðila við slitameðferðina. Tók hann fram í kröfulýsingunni að sú fjárhæð tengdist ekki öll varnaraðila og að þess væri óskað að slitastjórnin myndi meta hlutfallslegan kostnað vegna máls þessa. Slitastjórn varnaraðila gaf út kröfuskrá hinn 8. desember 2009 þar sem birtur var listi yfir kröfur sem lýst var innan kröfulýsingarfrests og afstaða tekin til þeirra að því marki sem hún lá fyrir. Kröfuskráin var lögð fram á kröfuhafafundi 17. desember 2009.

Með bréfi, dags. 8. nóvember 2010, tilkynnti varnaraðili sóknaraðila að hann samþykkti kröfu hans með breytingum og væri 5.005.223.419 króna krafa samþykkt sem almenn krafa skv. 113. gr. laga nr. 21/1991. Sóknaraðili mótmælti framangreindri afstöðu varnaraðila til viðurkenningar kröfunnar á kröfuhafafundi 2. desember 2010, að því leyti sem hún hefði ekki verið viðurkennd í samræmi við kröfulýsingu. Hinn 14. mars 2011 var haldinn fundur til að reyna að jafna ágreining um kröfu sóknaraðila en ekki tókst að leysa úr þeim ágreiningi og ákvað slitastjórn varnaraðila því að beina ágreiningsefninu til héraðsdóms eftir ákvæðum 171. gr. gjaldþrotaskiptalaga nr. 21/1991.

III.

Sóknaraðili vísar til þess að mismunurinn milli aðal-, vara- og þrautavarakröfu hans komi til vegna mismunandi vaxtaútreikninga. Í öllum tilfellum sé gerð krafa um alla höfuðstólsupphæðina, miðað við samanlagt nafnvirði skuldabréfanna, og kostnað.

Sóknaraðili kveðst byggja á því að sameiginlegt heildarnafnvirði skuldabréfanna sé 4.757.055.300 krónur. Skilmálar skuldabréfanna séu skýrir og kveði berum orðum á um þessa niðurstöðu. Engu að síður hafi slitastjórnin neitað að viðurkenna greiðsluskyldu á samanlögðu heildarnafnvirði skuldabréfanna. Þessi afstaða virðist byggjast á þeim sjónarmiðum að líta beri á afslátt af útboðsverði skuldabréfanna sem vaxtaþátt í kröfunni. Nafnverð skuldabréfanna, sem gefin hafi verið út 5. febrúar 2007, hafi verið 500 milljónir evra. Hins vegar staðfesti lokaskilmálarnir að útboðsgengi (issue price of tranche) hafi verið 99,687%. Samkvæmt því hafi afslátturinn sem um ræði, og slitastjórnin vísi til sem „upphaflegs afsláttar við útgáfu“ (original issue discount), verið 0,313% af nafnvirði skuldabréfanna. 

Skilmálar skuldabréfanna heimili að samanlagt nafnvirði skuldabréfaflokks sem gefin hafi verið út samkvæmt áætluninni megi vera annað en útboðsverð skuldabréfanna. Í útgáfulýsingunni sé staðfest varðandi útboðsverðið (issue price) að gefa megi út skuldabréf á gengi sem feli í sér nafnverð með afslætti. Ennfremur sé bent á að formsnið að lokaskilmálum, sem sett sé fram í útgáfulýsingunni, geri ráð fyrir að útboðsgengið geti verið ákveðin prósenta af samanlögðu nafnvirði útgefinna skuldabréfa. Útboðsgengið hafi í þessu tilviki verið lægra en nafnvirði þeirra, sem þýði að þau hafi verið gefin út með afslætti.

Skilmálar skuldabréfanna staðfesti að undir þeim kringumstæðum þegar innlausn skuldabréfanna eigi sér stað á gjalddaga skuli skuldabréfin innleyst á „lokainnlausnargengi“ (final redemption amount) eins og það sé skilgreint í lokaskilmálunum. „Lokainnlausnargengi“ samkvæmt lokaskilmálunum sé „1000 EUR fyrir hvert skuldabréf sem tilgreint er með nafnverði 100.000 EUR“ sem jafngildi samanlögðu nafnvirði skuldabréfsins. Samkvæmt því hafi handhafi skuldabréfanna átt að fá samanlagt nafnvirði þeirra skuldabréfa sem hann átti sem höfuðstól þrátt fyrir að skuldabréfin væru gefin út með afslætti.

Nákvæmlega sama meginregla eigi við þegar skuldabréfin séu innleyst, við vissar kringumstæður, fyrir gjalddaga. Í 10. gr. skilmálanna sé kveðið á um að þegar endurgreiðslu skuldabréfanna sé krafist í kjölfar vanefndaatviks (event of default) skuli skuldabréfin greidd á „innlausnargengi við uppgreiðslu“ (early redemption amount), eins og lýst sé í e-lið 7. gr. Í þeim hluta e-liðs 7. gr. sem hér eigi við sé kveðið á um eftirfarandi: „7 (e) ... hvert skuldabréf verður innleyst á innlausnargengi við uppgreiðslu sem er reiknað út með eftirfarandi hætti: 7 (e)(ii) þegar um skuldabréf er að ræða, önnur en vaxtalaus skuldabréf en að meðtöldum afborgunarbréfum (installment note) og skuldabréfum sem hafa verið greidd að hluta (partly paid note), með „lokainnlausnargengi“ sem er eða kann að vera lægra eða hærra en útboðsgengið eða er til greiðslu í tilteknum gjaldmiðli öðrum en þeim sem skuldabréfið er gefið út í, skal vera sú upphæð sem tilgreind er í lokaskilmálunum eða í þeim  gjaldmiðli sem tilgreindur er í viðeigandi lokaskilmálum eða ef engin slík upphæð eða gjaldmiðill er tilgreind í lokaskilmálunum, þá á við nafnvirði þeirra.“

Hvað varði skuldabréfin þá gildi ákvæði e-liðar 7. gr. (ii) vegna þess að „lokainnlausnargengi“, sem sé staðfest sem 1.000 evrur fyrir hvert skuldbréf sem tilgreint sé með nafnverð 1.000 evrur, sé hærra en útboðsverðið sem hafi verið 99,857 prósent af nafnvirði. Samkvæmt því vísi skilmáli nr. 7, e-liður (ii), til lokaskilmálanna, þ.e.a.s. viðaukans vegna verðlagningar (pricing supplement), um þá upphæð sem sé til greiðslu. Í 23. lið lokaskilmálanna sem heyri undir kaflann „Ákvæði varðandi innlausn“ sé staðfest að „innlausnargengi við uppgreiðslu (early redemption amount) af hverju skuldabréfi sem skal greiða við innlausn ... við vanefndartilvik“ sé 1.000 EUR fyrir hverjar 1.000 EUR að nafnvirði. Samkvæmt því sé engum vafa undirorpið að skilmálar skuldabréfanna kveði á um að samanlagt heildarnafnvirði skuldabréfanna skuli greitt, þar með talin heildarupphæð afsláttarins. Sóknaraðili veki einnig athygli á því að undir liðnum „Túlkun á höfuðstól og vöxtum“ í skilmálunum sé staðfest að höfuðstól beri að skilja sem allt innlausnargengið við uppgreiðslu (early redemption amount).

Sóknaraðili vísi til fyrirliggjandi lögfræðiálits sem sóknaraðili hafi aflað sem staðfesti að samkvæmt enskum rétti styðji ákvæði skuldabréfanna, samkvæmt því orðalagi sem hafi verið notað, þá túlkun að handhafar skuldabréfanna eigi rétt á nafnvirði þeirra við innlausn við uppgreiðslu, ásamt áföllnum vöxtum ef einhverjir eru.

Sóknaraðili vísi til þess að slitastjórnin virðist annars vegar byggja á meginreglum um gjaldþrotaskipti og úrskurðum í öðrum löndum og hins vegar meginreglunni um jafnræði milli kröfuhafa, þ.e. á milli handhafa skuldabréfa útgefinna með afslætti og handhafa skuldabréfa sem ekki séu gefin út með afslætti. Vegna þessa veki sóknaraðili á því athygli að óheimilt sé að byggja á meginreglum gjaldþrotaskipta eða dómsúrlausnum í erlendum lögsagnarumdæmum. Þær meginreglur og úrlausnir hafi auk þess hvorki verið tilgreindar né skýrðar. Slitastjórnin hafi heldur ekki gert tilraun til að útskýra af hverju þær gætu átt við. Þetta mál varði lýsta kröfu við slitameðferð sem lúti ákvæðum íslenskra laga og samningi sem lúti enskum rétti. Meginreglur gjaldþrotaskipta í öðrum lögsagnarumdæmum hafi ekki þýðingu vegna þess að varnaraðili sé í gjaldþrotameðferð á Íslandi. Þau lög sem samningurinn heyri undir hafi vitaskuld þýðingu, eins og álitsgerðin staðfesti, og hvíli á varnaraðila bindandi lagaskylda til að greiða samanlagða heildarupphæð nafnvirðis skuldabréfanna og sé sú skylda fullnustuhæf samkvæmt enskum rétti. Þá séu engar forsendur til að álykta að túlkun á samningi aðila, sem sé í fullu samræmi við þá skilmála sem um viðskiptin gildi, þannig að sóknaraðili og aðrir í sömu stöðu endurheimti samanlagt heildarnafnvirði skuldabréfanna, sé ekki réttlát og sanngjörn. Enn fremur verði ekki talið að þessi niðurstaða jafngildi því að handhafar skuldabréfa, útgefinna með afslætti og án hans, séu meðhöndlaðir með mismunandi hætti. Staðreyndin sé sú að hver skuldabréfaflokkur sé gefinn út með mismunandi skilmálum og endurspegli mismunandi viðskiptasamninga. Tilteknir kröfuhafar, eins og sóknaraðili, hafi keypt skuldabréf af varnaraðila með afslætti með þeim væntingum að samanlagt heildarnafnvirði skuldabréfanna yrði endurgreitt. Það að þeir eigi rétt á að fá heildarnafnvirði skuldabréfanna hafi enga þýðingu fyrir aðra kröfuhafa. Ekki sé hægt að leggja til að réttindi eins hóps kröfuhafa skuli vísvitandi skert til þess að auka réttindi annars hóps.

Aðalkrafa sóknaraðila um vexti sem nemi 794.321.436 krónum sundurliðist þannig að samningsvextir, sem reiknist frá 5. febrúar til 7. október 2008, nemi 139.697.771 krónu og dráttarvextir skv. lögum nr. 38/2001, sem reiknist á samanlagt heildarnafnvirði skuldabréfanna frá 7. október 2008 til og með 22. apríl 2009, nemi 645.623.665 krónum. Viðurkenni dómurinn hins vegar höfuðstól kröfunnar eins og slitastjórnin hafi viðurkennt hann þá nemi vaxtaupphæðin samtals 793.783.020 krónum. Nemi samningsvextir á tímabilinu 5. febrúar til 7. október 2008 þar af 139.697.771 krónum og dráttarvextir skv. lögum nr. 38/2001 frá 7. október 2008 til og með 22. apríl 2009, reiknaðir á höfuðstólinn eins og hann sé viðurkenndur af slitastjórn, 654.085.249 krónum.

Samkvæmt varakröfu sé krafist vaxta að fjárhæð 464.607.853 krónur
sem sundurliðist þannig að samningsvextir frá 5. febrúar 2008 til 7. október 2008 nemi 139.697.771 krónu og lögboðnir vextir fyrir dómsuppsögu samkvæmt reglu 4.93 í ensku gjaldþrotalögunum reiknaðir á samanlagt heildarnafnvirði skuldabréfanna og ógreidda samningsvexti frá 7. október 2008 til 22. apríl 2009, nemi 324.910.082 krónum. Viðurkenni dómurinn hins vegar höfuðstólinn eins og slitastjórnin hafi viðurkennt hann sé vaxtaupphæðin 464.438.915 krónur. Þar af nemi samningsvextir frá 5. febrúar til 7. október 2008, 139.697.771 krónu og lögbundnir vextir eftir dómsuppsögu samkvæmt reglu 4.93 ensku gjaldþrotalaganna frá 7. október til og með 22. apríl 2009, reiknaðir á höfuðstólinn eins og hann sé viðurkenndur af slitastjórn, 324.741.143 krónum.

Að öðrum kröfum frágengnum krefjist sóknaraðili vaxta eins og þeir séu viðurkenndir af slitastjórn, eða 252.026.183 króna, sem séu samningsvextir reiknaðir á samanlagt heildarnafnvirði skuldabréfanna frá 5. febrúar 2008 til og með 22. apríl 2009.

Í öllum tilfellum krefjist sóknaraðili kostnaðar að upphæð 160.862 krónur sem samanstandi af lögfræðikostnaði og útgjöldum sem hafi fallið til í tengslum við fall Glitnis banka hf. og vegna undirbúnings og innheimtu á kröfu sóknaraðila.

Sóknaraðili krefjist dráttarvaxta frá 7. október 2008 en þann dag hafi Fjármálaeftirlitið tekið yfir vald hlutahafafundar, vikið stjórninni frá og skipað skilanefnd yfir bankann. Sóknaraðili veki athygli á að varnaraðili hafi farið í greiðslustöðvun 24. nóvember 2008. Slitastjórnin hafi ranglega hafnað þessari kröfu sóknaraðila og úrskurðað þess í stað að greiða beri samningsbundna vexti til 22. apríl 2009 á þeim grundvelli að enginn lagagrundvöllur sé til þess að heimta lögbundna dráttarvexti.

Sóknaraðili telji að beita verði ákvæðum laga nr. 38/2001 um ákvörðun dráttarvaxta þar sem skilmálar skuldabréfanna kveði ekki á um viðeigandi vaxtastig þeirra. Hvað það varði byggi sóknaraðili einkum á því að óumdeilt sé að varnaraðili sé íslenskt félag sem heyri undir íslensk lög og að um slitameðferð hans fari samkvæmt íslenskum rétti samkvæmt lögum nr. 161/2001 um fjármálafyrirtæki og lögum nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti. Nánar tiltekið sé skýrt tekið fram í 1. mgr. 104. gr. laga um fjármálafyrirtæki að um réttaráhrif, málsmeðferð og framkvæmd ákvörðunarinnar skuli fara að íslenskum lögum, með þeim takmörkunum er greini í 2. mgr. 99. gr. Ákvæðið sem vísað sé til í 99. gr. kveði á um að ýmsar tegundir samninga, þar með taldir ráðningarsamningar, samningar um skuldajöfnuð og fasteignasamningar, en engum slíkum samningum sé til að dreifa í þessu máli, skuli lúta viðeigandi umsömdum landslögum. Samkvæmt því séu skuldabréfin ekki undanskilin og spurningin um rétt sóknaraðila til dráttarvaxta, og upphæð þeirra, falli innan réttaráhrifa, málsferðar og framkvæmdar slitameðferðar og skuli því ákvarðast í samræmi við íslensk lög. Sóknaraðili haldi því fram að þær reglur sem lög um fjármálafyrirtæki kveði á um séu sérreglur um lagaskil og gangi því framar öðrum almennum reglum um sama málefni. Hvorki lög nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki né lög nr. 21/1999 um gjaldþrotaskipti o.fl. kveði á um sérstakar reglur um vexti. Í samræmi við það séu kröfur sóknaraðila um vexti byggðar á lögunum um vexti og verðtryggingu. Í þeim lögum sé að finna ófrávíkjanleg ákvæði um dráttarvexti, þar með talinn rétt til dráttarvaxta og hvenær hann eigi við, þ.e. þegar samningur innihaldi ekki sérstök ákvæði um dráttarvexti, sbr. 1.mgr. 6. gr. Ljóst sé að gildissvið þeirra takmarkist ekki við samninga sem lúti íslenskum lögum eða samningum sem séu í íslenskum krónum.

Sóknaraðili veki athygli á, svo öllu sé til haga haldið, að lög nr. 43/2000, um lagaskil á sviði samningaréttar, skeri almennt úr um álitaefni í tengslum við hvaða lög eigi að gilda um einkaréttarlegar samningsskuldbindingar sem tengist fleiri en einni lögsögu. Þótt lögin um lagaskil kveði á um, undir ákveðnum kringumstæðum, að samningar heyri undir þau lög sem aðilar hafi með berum orðum ákveðið að gildi, þá veki sóknaraðili athygli á því að samkvæmt undantekningu frá gildissviði laganna í c-lið 2. mgr. 1. gr. gildi lögin ekki um samningsskuldbindingar sem byggi á skuldabréfum eða öðrum verðbréfum. Þannig eigi lög um lagaskil einfaldlega ekki við og af ástæðu sem raktar séu að framan þá verði íslensk lög að gilda um rétt til dráttarvaxta.

Komist dómurinn hins vegar að þeirri niðurstöðu að lögin um lagaskil eigi við telji sóknaraðili að 4. gr. laga um lagaskil hafi þau áhrif að dómurinn verði að taka afstöðu til þess hvaða ríki hafi sterkust tengsl við dráttarvaxtakröfuna þar sem skilmálar skuldabréfanna kveði ekki á um rétt sóknaraðila til dráttarvaxta. Samkvæmt lögunum um lagaskil sé það ríki almennt það land sem sá aðili sem efna eigi aðalskyldu samningsins, í þessu tilviki varnaraðili, hafi verið staðsettur í við samningsgerðina, eða Ísland. Enn fremur sé það ríki sem sé mest tengt gjaldþroti varnaraðila án efa Ísland þar sem slitameðferðin fari fram á Íslandi, heyri undir íslenska dómstóla og fari fram samkvæmt íslenskum lögum.

Þar að auki segi í 7. gr. laganna um lagaskil: „… einnig [er] heimilt að beita ófrávíkjanlegum reglum í lögum annars lands sem atvik málsins hafa náin tengsl við, ef og að því marki sem skylt er að beita þeim samkvæmt lögum þess lands, óháð því hvaða lög eiga annars við um samninginn. Þegar metið er hvaða ófrávíkjanlegu reglur eiga við skal litið til eðlis þeirra og tilgangs og afleiðinga þess að beita þeim eða beita þeim ekki.“ Ennfremur segi í 2. mgr. ákvæðisins: „Ekkert í lögum þessum takmarkar beitingu ófrávíkjanlegra reglna íslensks réttar, ef mál er rekið hér á landi, óháð því hvers lands lögum á annars að beita um samninginn.“ Þetta sé í fullkomnu samræmi við 3. mgr. 3. gr. og 7. gr. Rómarsamningsins um lagaskil á sviði samningaréttar. Eins og fram komi að ofan þá gildi ófrávíkjanlegar reglur íslensks réttar, sérstaklega í slitameðferð sem eigi sér stað á Íslandi í tengslum við íslenskt félag. Með hliðsjón af meginreglunni um jafnræði kröfuhafa og sanngjarna meðferð kröfuhafa verði að telja að dóminum beri að beita íslenskum lögum um álitaefni sem rísi í tengslum við slitameðferð, þar með talið um rétt kröfuhafa til dráttarvaxta. Ákvæði 7. gr. laga um lagaskil kveði sérstaklega á um að dómstóllinn meti afleiðingar þess sé ákvæðum ófrávíkjanlegra lagaákvæða ekki beitt, en ljóst sé að slíkt myndi leiða til ójafnræðis og ósanngjarnrar niðurstöðu.

Telji dómurinn hins vegar, gagnstætt því sem sóknaraðili haldi fram, að um álitaefni varðandi dráttarvexti fari samkvæmt enskum rétti en ekki íslenskum þá vísi sóknaraðili til þess að ensk lög mæli fyrir um 8% vexti frá 7. október 2008 með hliðsjón af atvikum málsins. Vísi sóknaraðili til álitsgerðar sem hann hafi lagt fram um enskan rétt og veki athygli á því að regla 4.93 ensku gjaldþrotalaganna frá 1986 kveði á um að vextir séu til greiðslu miðað við lögbundið vaxtastig þegar um endurheimt vaxta af skuld í slitameðferð sé að ræða. Reglan kveði sérstaklega á um að hægt sé að krefjast vaxta miðað við lögbundið vaxtastig undir þeim kringumstæðum að skuldin sé gjaldfallin á tilteknum tímapunkti, byggist skuldin á skriflegu skjali, en það vaxtastig sem við eigi sé 8% á ári. Vextirnir eigi við um slitameðferð skuldara og gildi frá gjalddaga til upphafsdags slitameðferðar.

Á grundvelli þess að skilmálar skuldabréfanna kveði ekki á um viðeigandi vaxtastig dráttarvaxta, sem gilda skuli í tengslum við kröfu sóknaraðila, þá sé vaxtastigið samkvæmt enskum rétti 8% á ári, sem reiknist á allar upphæðir sem greiða skuli sóknaraðila frá 7. október til og með 22. apríl 2009. Sé hér um að ræða vexti á höfuðstól, þ.m.t. heildarfjárhæð afsláttar og samningsvexti, frá 7. október til og með 22. apríl 2009. Sé þá með talin sú vaxtagreiðsla sem gjaldfallið hafi og verið hafi til greiðslu á þessu tímabili. Sóknaraðili krefjist því 464.607.853 króna.

Varðandi kostnað vísi sóknaraðili til þess að samkvæmt íslenskum rétti eigi kröfuhafi rétt á að endurheimta kostnað í tengslum við innheimtu kröfu sinnar gagnvart þrotabúi. Þetta megi m.a. sjá í 114. gr. laga nr. 21/1991 þar sem beinlínis sé vísað til innheimtukostnaðar. Þessi meginregla í skiptarétti, þ.e. að kröfuhafi geti krafist kostnaðar úr búinu, hafi ítrekað verið staðfest í dómsúrlausnum. Gildi þessi meginregla augljóslega um kröfu hans með sama hætti og hún gildi um kröfur íslenskra kröfuhafa, þ.e. að kostnaður í tengslum við innheimtu og lýsingu krafna sé endurheimtanlegur frá búinu.

Sú regla að um kostnaðarkröfur skuli fara samkvæmt löggjöf heimaríkis slitameðferðarinnar sé sett fram í Evróputilskipun 2001/24/EC um fjárhagslega endurskipulagningu og slit fjármálastofnana, nánar tiltekið í k-lið 2. mgr. 10. gr. Þetta sé mikilvæg regla þar sem önnur niðurstaða myndi leiða til þess að kröfuhöfum yrði mismunað þegar greitt yrði úr búinu eingöngu á grundvelli þess undir hvaða lög samningar þeirra féllu.

Sóknaraðili krefjist kostnaðar sem fallið hafi til í tengslum við sönnun og framsetningu kröfunnar við slitameðferðina. Sóknaraðili hafi óhjákvæmilega þurft að leita faglegrar ráðgjafar vegna gjaldþrots varnaraðila enda hafi slitameðferðin áhrif í mörgum löndum. Í því skyni að lágmarka kostnaðinn hafi sóknaraðili, ásamt hópi annarra skuldabréfaeigenda, leitað eftir lögfræðiráðgjöf og annarri ráðgjöf erlendra og innlendra sérfræðinga. Hafi kostnaðinum verið skipt á milli kröfuhafanna og krefjist sóknaraðili greiðslu á þeim hluta kostnaðarins sem á hann hafi fallið. Sé sá kostnaður bein afleiðing af ógjaldfærni varnaraðila. Hafi hann verið nauðsynlegur og óhjákvæmilegur og standi í beinum tengslum við innheimtu sóknaraðila á kröfu sinni.

Kostnaðurinn sé sem fyrr segi samkvæmt reikningum sem sóknaraðili hafi greitt vegna ráðgjafar og sérfræðiþjónustu fyrir 22. apríl 2009. Sóknaraðili sé einnig kröfuhafi annarra gjaldþrota íslenskra banka en varnaraðila og tengist kostnaðurinn í mörgum tilvikum álitaefnum sem séu sameiginleg við allar slitameðferðirnar. Að því marki sem kostnaðurinn varði fleiri en einn af hinum föllnu íslensku bönkum hafi sóknaraðili skipt honum jafnt niður og krefjist þannig í þessu máli tiltekins hluta kostnaðarins. Enn fremur hafi sóknaraðili skipt kostnaðinum jafnt milli allra þeirra krafna sem hann hafi lýst við slitameðferð varnaraðila.

Sóknaraðili veki athygli á því að kostnaði hafi verið lýst sem hluta af kröfu sóknaraðila við slitameðferðina, svo sem fram komi í kröfulýsingu. Slitastjórn hafi á fyrri stigum til einföldunar skráð heildarkostnaðarkröfuna undir sérstökum lið á kröfuskrá. Óumdeilt sé milli aðila að rétt sé að fjalla um í þessu dómsmáli þann þátt kostnaðarins sem tengist þeirri kröfu sóknaraðila sem sé til meðferðar, sbr. framangreindar útskýringar á því hvernig kostnaðinum hafi verið skipt niður á kröfur sóknaraðila við slitameðferðina.

Varðandi lagarök kveðst sóknaraðili vísa m.a. til laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, sérstaklega 1., 5. og 6. gr. laganna, laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl., sérstaklega 113. gr., og laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002, sérstaklega 104. og 99. gr., laga um lagaskil á sviði samningaréttar nr. 43/2000, Rómarsamningsins um lagaskil á sviði samningaréttar og Evróputilskipunar 2001/24/EC um endurskipulag og gjaldþrotaskipti fjármálastofnana. Þá sé vísað til enskra laga, einkum gjaldþrotaskiptareglna (Insolvency Rules 1986). Krafa sóknaraðila um málskostnað byggist á 130. gr. laga nr. 91/1991.

IV.

Varnaraðili vísar til þess að umrædd skuldabréf hafi verið gefin út með afföllum og hafi sóknaraðili greitt 99,687 % af nafnverði bréfanna. Samkvæmt skilmálum bréfsins hafi átt að greiða nafnverðið á lokagjalddaga en aldrei hafi komið til þess vegna falls varnaraðila. Til að gæta jafnræðis kröfuhafa hafi varnaraðili reiknað skuldabréfið á þann hátt að útgáfuafföllin hafi verið afskrifuð með svokallaðri beinlínuaðferð, sem þýði að þeim hafi verið dreift jafnt á líftíma skuldabréfanna. Sé á því byggt að fara beri með upphaflegu afföllin sem jafngildi ógjaldfallinna vaxta, þannig að sóknaraðili geti aðeins krafist greiðslna samkvæmt 113. gr. laga nr. 21/1991 varðandi upphæð upphafsútgáfunnar, með afföllum miðað við upphafsdag slitameðferðar varnaraðila 22. apríl 2009. Sóknaraðili hafi því fengið afföllin sem fallið hefðu til fyrir 22. apríl 2009, auk samningsvaxta, viðurkennda sem almenna kröfu. Afföll eftir 22. apríl 2009 teldust því til ógjaldfallina vaxta sem farið hafi verið með sem víkjandi kröfur skv. 114. gr. gjaldþrotaskiptalaga nr. 21/1991. Þessi niðurstaða sé að mati varnaraðila réttlát og sanngjörn þar sem hún tryggi sambærilega meðferð kröfuhafa sem eigi vaxtaberandi skuldabréf sem gefin hafi verið út með afföllum og þeirra sem ekki hafi verið gefin út með afföllum. Sú aðferð sé í fullu samræmi við meginreglur gjaldþrotalaga um jafnræði kröfuhafa. Ef þessari aðferð varnaraðila hefði ekki verið beitt hefðu þeir kröfuhafar sem keypt hefðu bréf með afföllum og þeir sem ekki gerðu það fengið sömu fjárhæð, að þeirri forsendu gefinni að vextir hefðu verið eins í báðum útgáfum.

Ekki sé mótmælt þeim staðhæfingum sem fram komi í greinargerð sóknaraðila að í skilmálum skuldabréfanna sé staðfest að þegar innlausn skuldabréfanna eigi sér stað á lokagjalddaga skuli skuldabréfin innleyst á lokainnlausnargengi (final redemtion amount) eins og það sé skilgreint í lokaskilmálunum. Lokainnlausnargengi samkvæmt viðaukanum sé „1.000 EUR fyrir hvert skuldabréf sem tilgreint sé með nafnverði 1.000 EUR“ sem jafngildi samanlögðu nafnvirði skuldabréfanna. Lokagjalddagi bréfanna hafi verið 5. febrúar 2010. Hins vegar geti annað átt við þegar skuldabréfin séu innleyst fyrir gjalddaga. Í 10. gr. skilmálanna sé kveðið á um að þegar send sé gjaldfellingartilkynning til útgefanda í kjölfar vanefndaatviks skuli skuldabréfin greidd á „innlausnargengi við uppgreiðslu“ (early redemption amount). Sóknaraðili hafi hins vegar ekki sent skriflega tilkynningu til varnaraðila þar sem hann hafi gjaldfellt skuldabréfin eins og skilyrt sé skv. 10. gr. skilmálanna.

Sóknaraðili virðist byggja málsástæður sínar að mestu leyti á fyrirliggjandi álitsgerð bresks lögfræðings sem aflað hafi verið einhliða af sóknaraðila. Beri að meta sönnunargildi hennar með hliðsjón af þeirri staðreynd. Umræddur álitsgjafi hafi ekki  verið dómkvaddur eftir reglum laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og sé sönnunargildi álitsgerðarinnar mótmælt. Varnaraðili hafi ekki verið gefinn kostur á að gæta hagsmuna sinna og koma sjónarmiðum sínum á framfæri við gerð hennar. Geti álitsgerðin því ekki haft neina þýðingu við úrlausn málsins enda reist á hæpnum forsendum að mati varnaraðila. Vegna þessa hafi varnaraðili einnig óskað eftir álitsgerð bresks málflutningsmanns og lagt fyrir hann svipaðar spurningar og sóknaraðili hafi gert. Samkvæmt því áliti eigi sóknaraðili ekki rétt á nafnverði skuldabréfanna þar sem hann hafi ekki sent skriflega tilkynningu til varnaraðila og lýst yfir gjaldfellingu á skuldabréfinu eins og beri að gera við vanefnd samkvæmt tilvitnaðri 10. gr. skilmálanna. Ekki sé annað að sjá en að álitsgerð sú sem sóknaraðili hafi aflað byggist á þeirri forsendu að gjaldfellingartilkynning hafi verið send varnaraðila. Ljóst sé að umrædd skuldabréf hafi ekki gjaldfallið sjálfkrafa þegar til vanefndar þeirra kom. Þar sem sóknaraðili hafi ekki sent skriflega tilkynningu eins og áskilið sé hafi hann gjaldfellt skuldabréfin í fyrsta lagi með kröfulýsingu sinni, eða 24. nóvember 2009.

Varðandi rétt sóknaraðila til vaxta að öðru leyti sé á það bent að skv. 2. mgr. 117. gr. gjaldþrotaskiptalaga nr. 21/1991 skuli í kröfulýsingu tiltaka kröfur svo skýrt sem verða megi, svo sem fjárhæð kröfu og vaxta í krónum, og hverrar stöðu sé krafist að krafan njóti í skuldaröð við gjaldþrotaskipti. Af fyrirmælum í 2. mgr. 117. gr. laganna megi ráða að kröfugerð þurfi nánast að vera með sama hætti og í stefnu í einkamáli, sbr. d-lið 1. mgr. 80. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Þó sé gerður áskilnaður um efni kröfugerðar í kröfulýsingu sem gangi lengra en gert sé varðandi stefnu. Þannig verði í kröfulýsingu að tilgreina fjárhæð peningakröfu í krónum með sundurliðuðum útreikningi hennar til fullnaðar. Þannig nægi ekki að krefjast vaxta með hliðstæðum hætti og í stefnu heldur sé beinlínis boðið að reikna þá út og tiltaka fjárhæð þeirra sem þátt í heildarkröfunni.

Dráttarvaxtakrafa sóknaraðila hafi ekki verið sett fram í kröfulýsingunni sjálfri heldur í sérstökum viðauka með henni. Þá hafi sóknaraðili reiknað dráttarvexti á allar skuldabréfakröfur sínar í einu lagi án sérstakrar sundurliðunar. Sé í því sambandi bent á að sóknaraðili hafi átt tuttugu og níu skuldabréf undir ellefu skuldabréfaútgáfum sem útgefnar hafi verið í evrum. Byggist hver slík útgáfa á eigin forsendum og skilmálum. Hafi varnaraðila því verið ómögulegt að sjá hvaða dráttarvaxtafjárhæðar væri krafist fyrir skuldabréfakröfur með auðkennið XS0284757308 sem um sé deilt í máli þessu. Varnaraðili telji því kröfu sóknaraðila um dráttavexti vanreifaða og að útreikningur kröfunnar samkvæmt fylgiskjali með kröfulýsingu hafi ekki veitt fullnægjandi skýringar á þeim forsendum sem þar séu lagðar til grundvallar. Vaxtafótur sé þó tilgreindur, en engar upplýsingar séu um sundurliðun dráttarvaxtakröfunnar á þau skuldabréf sem hafi verið í eigu sóknaraðila, þ.e. varnaraðili hafi ekki getað áttað sig á því hvaða dráttarvaxtakrafa ætti við um hvert skuldabréf kröfuhafa fyrir sig.

Varnaraðili bendi á að sóknaraðili hafi ekki rökstutt kröfuna frekar eða lagt fram frekari sundurliðun á henni á kröfuhafafundum. Þannig hafi hann ekki gert athugasemdir við skráningu á kröfu sinni á fyrsta kröfuhafafundinum sem haldinn hafi verið 17. desember. 2009. Hann hafi hins vegar mótmælt afstöðu slitastjórnar án frekari rökstuðnings, en eins og komið hafi fram hafi varnaraðili ekki skráð dráttarvaxtakröfuna á kröfuskrá þar sem hún hafi verið vanreifuð og óljós. Þá hafi sóknaraðili hvorki lagt fram sundurliðun á kröfu sinni á kröfuhafafundi 2. desember 2010 né á sérstökum sáttafundi hinn 14. mars sl.

Komi til þess að dómari telji dráttarvaxtakröfu sóknaraðila nægjanlega skýrt fram komna þá vísi sóknaraðili til þess að óumdeilt sé, og verði að leggja til grundvallar, að hvorki útgáfuáætlun né viðaukinn vegna verðlagningar innihaldi ákvæði um greiðslu dráttarvaxta eða annarra vaxta, annarra en samningsvaxta. Þar sem ekki hafi verið sérstaklega kveðið á um hvernig vextir skyldu reiknaðir ef vanskil yrðu hafi varnaraðili valið þá leið að samþykkja samningsvexti af bréfunum til 22. apríl 2009, eins og til vanskila hefði ekki komið. Varnaraðili telji þá leið bæði eðlilega og sanngjarna.

Þá komi skýrt fram að um umrædd skuldabréf gildi ensk lög. Dráttarvextir séu einn hluti samningssambandsins og fari sá hluti því einnig eftir enskum lögum skv. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 43/2000. Sé það og í samræmi við reglur íslensks skiptaréttar um lagaskil að um málsmeðferðina fari samkvæmt íslenskum lögum, en efnisréttindi kröfuhafa kunni að ráðast af erlendum lögum, t.d. hafi um það verið samið eins og hér eigi við. Gildi því ensk lög um rétt sóknaraðila til vaxta af kröfu sinni enda séu íslenskar lagaskilareglur ákvarðandi um heimfærslu til réttarsviðs. Þar sem samkvæmt íslenskum rétti teljist réttur til vaxta hluti af hinni samningsbundnu kröfu beri að beita breskum lögum um rétt kröfuhafa.

Varnaraðili telji óþarft að fara ítarlega í lög um lagaskil nr. 43/2000 eins og sóknaraðili geri enda sé skýrt tekið fram í samningi aðila að samningurinn skuli fara eftir enskum lögum og í 3. gr. laganna komi m.a. fram að um samninga skuli beita þeim lögum sem samningsaðilar hafi valið berum orðum. Með hliðsjón af ofangreindu mótmæli varnaraðili aðalkröfu sóknaraðila um íslenska dráttarvexti samkvæmt lögum nr. 38/2001.

Í álitsgerð lögmannstofunnar sem varnaraðili hafi lagt fram í málinu sé tekið fram að reglu 4.93 í breskri reglugerð frá 1986 (Insolvency rules 1986) yrði beitt þar sem í samningi aðila komi fram vaxtastig. Hins vegar eigi reglur 4.93 (2) til (6) aðeins við þegar ekki hafi verið samið um vexti. Samkvæmt breskum rétti yrði ákvæðum um samningsvexti beitt til 22. apríl 2009, eins og varnaraðili hafi þegar samþykkt. Þá beri þess að geta að dómur hafi ekki gengið í Englandi um kröfu sóknaraðila um 8% vexti skv. 17. kafla enskra réttarfarslaga (English judgements Act 1838) eins og áskilið sé í ákvæðinu. Verði lögum þessum því ekki beitt til stuðnings vaxtakröfu sóknaraðila.

Varnaraðili telji að hafna beri kröfu sóknaraðila um íslenska dráttarvexti eða aðra vexti samkvæmt enskum lögum fram til 22. apríl 2009. Samkvæmt 102. gr. laga um fjármálafyrirtæki gildi við slit fjármálafyrirtækis sömu reglur og við gjaldþrotaskipti um gagnkvæma samninga þess og kröfur á hendur því, að öðru leyti en því að dómsúrskurður um að það sé tekið til slita leiði ekki sjálfkrafa til þess að kröfur á hendur því falli í gjalddaga. Í frumvarpi til laganna komi fram að þessi regla breyti ekki ákvæðum 99. gr. laga nr. 21/1991 um að heildarfjárhæð einstakra krafna skuli miðast við þann tíma sem fyrirtæki sé tekið til slitameðferðar og ákvæði 114. gr. sömu laga um að kröfur um vexti, verðbætur, gengismun og kostnað af innheimtu kröfu, sem falli til eftir upphaf slitameðferðar, skuli standa að baki öðrum kröfum. Gjalddagi umræddra skuldabréfa hafi verið 5. febrúar 2010, þ.e. eftir upphafsdag skipta.

Rétthæð krafna og önnur réttaráhrif ráðist af þeim degi sem úrskurður um slitameðferð gangi. Í tilviki varnaraðila sé miðað við gildistökudag laga nr. 44/2009, þ.e. 22. apríl 2009. Gildistaka laga nr. 44/2009 marki þannig ákveðinn skurðpunkt sem leiði til þess að kröfur um vexti, verðbætur og kostnað af innheimtu kröfu skv. 113. gr. laga nr. 21/1991, sem hafi fallið til eftir úrskurð um slitameðferð, teljist eftirstæðar kröfur samkvæmt 114. gr. laganna.

Í (vi) a-lið 10. gr. útgáfulýsingarinnar, þar sem kveðið sé á um vanefndartilvik, komi fram að sé dómsmeðferð, skiptameðferð eða gjaldþrotaskipti hafin gegn útgefanda sé kröfuhafa heimilt að gjaldfella skuldina. Til að neyta slíks vanefndarúrræðis verði kröfuhafi að beina skriflegri tilkynningu um það til skuldara og hafi slík ákvöð áhrif gagnvart skuldaranum frá því að hún berist honum. Engin ákvæði í skráningarlýsingunni, skilmálunum eða verðlagningarskránni veiti kröfuhafa heimild til að víkja frá þessari almennu reglu. Ekkert liggi fyrir um að sóknaraðili hafi beint tilkynningu um gjaldfellingu skuldabréfanna til varnaraðila, en slík tilkynning hefði þurft að berast áður en varnaraðili fór í greiðslustöðvun, eða fyrir 24. nóvember 2008.

Þar sem hvorki skráningarlýsingin né verðlagningarskráin hafi að geyma ákvæði um greiðslu dráttarvaxta sé ekki unnt að líta svo á að krafa sóknaraðila um dráttarvexti samkvæmt umræddum skuldabréfum hafi gjaldfallið fyrr en í fyrsta lagi þegar úrskurður um slitameðferð varnaraðila leiddi til þess skv. 102. gr. laga um fjármálafyrirtæki, sbr. 1. mgr. 99. laga nr. 21/1991. Krafa sóknaraðila hafi því ekki verið fallin í gjalddaga við upphaf slitameðferðar varnaraðila hinn 22. apríl 2009. Beri með hliðsjón af framanröktu að hafna kröfu sóknaraðila um íslenska dráttarvexti eða aðra vexti skv. enskum lögum fram til 22. apríl 2009.

Varnaraðili vísi til álitsgerðar sem hann hafi lagt fram í málinu varðandi enskan rétt þar sem fram komi að þar sem sóknaraðili hafi ekki nýtt rétt sinn til að gjaldfella skuldabréfin eigi að fara með þau eins og vanefndatilvik hafi ekki átt sér stað.

Varðandi innheimtukostnað byggi varnaraðili á því að hafna beri alfarið kröfu sóknaraðila um innheimtukostnað á þeim grundvelli að engin lögbundin eða samningsbundin ákvæði skuldbindi varnaraðila til þess að greiða slíka kröfu. Sé krafa sóknaraðila byggð á því að um sé að ræða kostnað sem fallið hafi til í tengslum við sönnun og framsetningu kröfunnar við slitameðferðina. Þessu mótmæli varnaraðili og bendi á að samkvæmt yfirliti því sem sé að finna í viðauka með kröfulýsingunni tengist meginhluti umkrafins kostnaðar á engan hátt sönnun og framsetningu kröfu sóknaraðila við slitameðferð varnaraðila. Þvert á móti virðist kostnaðurinn til kominn vegna umfangsmikillar íslenskrar og erlendrar lögfræðiráðgjafar sem tengist í fyrsta lagi atriðum er varði framkvæmd slitameðferðar, viðbrögð Íslands við bankahruninu og áhrif á kröfu sóknaraðila, íslensk gjaldþrotalög og reglur varðandi útgreiðslu, möguleg greiðsluform til kröfuhafa og önnur álitaefni tengd eftir á greiðslum. Þá tengist þessi kostnaður bréfaskriftum og fundahöldum lögfræðiráðgjafa sóknaraðila, m.a. með skilanefnd varnaraðila, fulltrúum íslenskra yfirvalda, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum svo og þátttöku þeirra í formlegum og óformlegum kröfuhafafundum varnaraðila og öðrum fundum sem séu ekki tilgreindir nánar. Í þriðja lagi tengist kostnaðurinn mati á eignum og skuldum varnaraðila og hugsanlegrar sölu á eignum. Í fjórða lagi lögfræðiráðgjöf varðandi álitaefni tengdum áhrifum nýja bankans á kröfur sóknaraðila sem og samráði við kröfuhafahópa og samráði við aðra kröfuhafa. Samkvæmt þessu sé með engu móti hægt að komast að þeirri niðurstöðu að framangreindur útlagður kostnaður sóknaraðila tengist eingöngu innheimtu kröfunnar heldur þyki ljóst að hann sé til kominn vegna annarra ótengdra atriða. Þá virðist vinna þessi vera langt umfram það sem geti talist eðlilegt við þann einfalda gerning að lýsa kröfu við slitameðferð. Sá kostnaður falli til eftir upphaf slitameðferðar og teljist því eftirstæð krafa skv. 114. gr. laga nr. 21/1991. Stofnað hafi verið til þessa kostnaðar að eigin frumkvæði sóknaraðila og geti hann ekki vænst þess að fá kostnað við almenna lögfræðiþjónustu greiddan úr búi varnaraðila. Ekki verði með vissu ráðið af fyrirliggjandi gögnum hvernig fjárhæð umrædds kostnaðar sé fengin eða hvenær til hans hafi verið stofnað sem telja verði lykilatriði við mat á því hvort hann hafi fallið til fyrir eða eftir upphaf slitameðferðarinnar.

Sóknaraðili vísi til Evróputilskipunar 200/24/EC um fjárhagslega endurskipulagningu og slit fjármálastofnana, nánar tiltekið til k-liðar 2. mgr. 10. gr., þar sem fram komi að með kröfur um kostnað skuli fara samkvæmt löggjöf heimaríkis. Varnaraðili mótmæli þessu ekki og bendi á 22. gr. laga nr. 21/1991 í því sambandi. Kostnaður sóknaraðila verði til eftir að varnaraðili hafi farið í greiðslustöðvun hinn 24. nóvember 2008 og eftir það tímamark sé því ekki heimilt að samþykkja kostnað vegna innheimtu krafna.

Þá sé ljóst með hliðsjón af 2. mgr. 117. gr. laga nr. 21/1991 að krafa sóknaraðila sé verulega vanreifuð og leiði það eitt til þess að hafna beri kröfunni.

Um lagarök kveðst varnaraðili vísa m.a. til laga nr. 125/2008 um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl., laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl., laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 44/2009, laga um lagaskil nr. 43/2000, laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, meginreglna gjaldþrotaskiptaréttar um jafnræði kröfuhafa, meginreglna samningaréttar um túlkun samninga og enskra reglna um greiðsluþrot. Kröfu um málskostnað byggi varnaraðili á 130. gr., sbr. 129. gr., laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

V.

Eins og áður er lýst kemur fram í útgáfulýsingu vegna skuldabréfaútgáfu varnaraðila (offering sircular), dags. 26. júní 2006, að um þau skuldabréf gildi almennir skilmálar sem þar komi fram og skilmálar sem komi fram í sérstökum viðauka með henni. Þá var hinn 20. september 2007 gefið út sérstakt skjal sem kallast lokaskilmálar (final terms) sem hefur að geyma frekari skilmála um bréfin. Hefur sóknaraðili sem kaupandi bréfanna gengist undir framangreinda skilmála þeirra og sýnist óumdeilt að hann sé af þeim bundinn. Fram kemur, bæði í útgáfulýsingunni sjálfri og í skilmálum bréfanna, að skuldabréfin og skilmálar þeirra lúti enskum lögum og skuli túlkast í samræmi við þau. Samkvæmt þessu, og með vísan til 3. gr. laga um lagaskil nr. 43/2000, verður þetta samkomulag aðilanna lagt til grundvallar varðandi það að um skuldabréfin og skilmála þeirra skuli beita enskum lögum. Verður ekki talið að ákvæði c-liðs 2. mgr. 1. gr. laga breyti neinu í þessu sambandi, eins og sóknaraðili heldur fram, enda á sú undanþága einungis við að svo miklu leyti sem álitaefni sem til úrlausnar eru snerta eðli skuldabréfanna sem viðskiptabréfa.

Báðir málsaðilar hafa lagt fram í málinu allítarleg sérfræðiálit og gögn frá breskum lögmannsstofum um þau ágreiningsefni sem hér eru til úrlausnar með tilliti til enskra laga og um efni þeirra lagareglna. Samkvæmt því verður að telja að bæði tilvist og efni þeirra lagareglna sem um ræðir sé nægilega í ljós leitt í skilningi 2. mgr. 44. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

Í greindum lokaskilmálum bréfanna kemur fram að útgáfudagur allra skuldabréfa í skuldabréfaflokknum sé 5. febrúar 2007 og gjalddagi 5. febrúar 2010. Segir og að bréfin beri fasta 4,375% vexti sem greiðast skuli hinn 5. febrúar ár hvert. Liggur fyrir að varnaraðili var í skilum með vaxtagreiðslur þegar Fjármálaeftirlitið tók yfir starfsemi hans og setti yfir hann skilanefnd hinn 7. október 2008, eins og áður hefur komið fram.

Krafa sóknaraðila byggist á skuldabréfum að nafnvirði 28.110.000 evra sem hann keypti í skuldabréfaútboði varnaraðila, en eins og fram kemur í lokaskilmálunum var útgáfuverð bréfa (issue price of tranche) í skuldabréfaflokknum 99,687% af nafnvirði og fékk sóknaraðili því afslátt af nafnvirðinu sem nam 87.984,3 evrum, eða 0,313%. Í kröfulýsingu sinni til slitastjórnar varnaraðila gerði sóknaraðili kröfu til að fá samþykkta, sem almenna kröfu skv. 113. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl., höfuðstólsfjárhæð sem næmi upphaflegu heildarnafnvirði bréfanna. Niðurstaða slitastjórnar varnaraðila var hins vegar sú að samþykkja heildarnafnvirði bréfanna, að frádregnum afslættinum, sem höfuðstól kröfunnar, eða 28.022.015,70 evrur, samsvarandi 4.742.165.717 krónum, auk þess að fallast á þann hluta afsláttarins sem telja mætti áfallinn fyrir viðmiðunardag slitameðferðarinnar hinn 22. apríl 2009, að fjárhæð 64.864,34 evrur, samsvarandi 10.976.992 krónum. Var í því sambandi út frá því gengið að líta bæri á upphaflegu útgáfuafföllin sem eins konar vaxtaþátt, sem yrði þá að afskrifa eftir svokallaðri beinlínuaðferð og dreifa afföllunum jafnt yfir líftíma bréfanna.

Fram kemur í lokaskilmálum skuldabréfanna að bréfin skuli á gjalddaga greiðast á lokainnlausnargengi sem samsvari 100% af nafnvirði þeirra. Frá þessu er gerð sú undantekning í a-lið 10. gr. skilmála skuldabréfanna að komi til vanefndatilviks í skilningi ákvæðisins (event of default) geti handhafi skuldabréfs sent útgefanda tilkynningu um gjaldfellingu bréfsins og eigi handhafinn þá rétt til greiðslu á snemmbúnu innlausnarverði (early redemtion amount), eins og það sé nánar skilgreint í skilmálunum. Segir í 23. tl. lokaskilmálanna að fjárhæð við innlausn fyrir gjalddaga, eða snemmbúið innlausnarverð, teljist 100% af upphæð höfuðstóls (principal amount), að viðbættum áföllnum vöxtum fram að gjalddaga. Verður að líta svo á að yfirtaka skilanefndar fyrir hönd Fjármálaeftirlitsins á rekstri Glitnis banka hf. hinn 7. október 2008, eins og að framan getur, falli undir þau vanefndatilvik sem talin eru upp í ákvæðinu. Óumdeilt er hins vegar að sóknaraðili sendi varnaraðila ekki sérstaka tilkynningu í skilningi framangreinds a-liðs 10. gr. en telja verður það skýra forsendu þess að uppfyllt séu skilyrði ákvæðisins. Með hliðsjón af því að sóknaraðili nýtti sér ekki þessa undantekningarheimild í skilmálunum til að öðlast rétt til snemmbúins innlausnarverðs verður að hafna kröfu hans til 100% af nafnvirði skuldabréfanna. Þykir verða að skýra skilmála skuldabréfanna þannig að fara beri fremur með nafnvirðisafsláttinn sem ígildi vaxta en hluta af höfuðstól kröfunnar og hafi slitastjórn varnaraðila því verið rétt að reikna höfuðstól kröfu sóknaraðila og ákvarða meðferð afsláttarins á þann veg sem hún gerði og krefst staðfestingar á. Er niðurstaða slitastjórnarinnar hvað þetta varðar því staðfest.

Auk þess að samþykkja sem almenna kröfu framangreint útgáfuverð bréfanna, auk áfallins hluta affallanna hinn 22. apríl 2009, samþykkti slitastjórn varnaraðila, sem almenna kröfu skv. tilvitnaðri 113. gr., ógreidda samningsvexti á höfuðstól kröfu sóknaraðila til 22. apríl 2009. Aðalkrafa sóknaraðila vegna vaxtaþáttarins lýtur hins vegar að því að hann eigi að fá viðurkennda samningsvexti frá 5. febrúar 2008 til 7. október s.á., en dráttarvexti samkvæmt íslenskum lögum á tímabilinu frá 7. október 2008 til upphafsdags slitameðferðar varnaraðila hinn 22. apríl 2009. Varnaraðili hefur mótmælt þessu og vísar í því sambandi í fyrsta lagi til þess að í kröfulýsingu sóknaraðila hafi krafa hans um þessa vexti ekki verið tilgreind svo nákvæmlega sem lögboðið sé í 2. mgr. 117. gr. laga nr. 21/1991 og hljóti því þegar af þeirra ástæðu að verða að hafna slíkri kröfu. Í málinu liggur fyrir kröfulýsing sóknaraðila ásamt viðaukum og fylgiskjölum sem fylgdu með henni til slitastjórnar varnaraðila. Eru skjöl þessi öll rituð á enska tungu og hafa ekki verið lögð fram í málinu í íslenskri þýðingu. Af þeim og öðrum gögnum má þó ráða að með umræddri kröfulýsingu sé sóknaraðili að lýsa í einu lagi kröfu vegna skuldabréfa útgefnum af varnaraðila í ellefu skuldabréfaflokkum í evrum. Er í kröfulýsingunni vísað til meðfylgjandi yfirlits varðandi fjárhæðir höfuðstólsins, vaxta og kostnaðar og má í yfirlitinu greina hvaða kröfum vegna höfuðstóls og samningsvaxta lýst sé vegna þeirra skuldabréfa sem um ræðir í máli þessu.  Auk þess er vísað til sérstakra viðauka varðandi útreikning á dráttarvöxtum og kostnaði. Er í fyrrgreinda viðaukanum gerð grein fyrir útreikningi dráttarvaxta á samanlagðan höfuðstól allra bréfa sóknaraðila í evrum til 22. apríl 2009, án þess að gerð sé nánari grein fyrir útreikningi þeirra varðandi hvern skuldabréfaflokk fyrir sig. Enda þótt framsetning kröfulýsingar sóknaraðila sé ekki svo skýr sem skyldi þykir þó verða að líta svo á, eins og hér háttar, og með hliðsjón af niðurstöðu Hæstaréttar í málinu nr. 673/2010, að greindur viðauki teljist hluti kröfulýsingar sóknaraðila og að krafa hans um dráttarvexti rúmist innan þeirra marka sem 2. mgr. 117. gr., sbr. 1. mgr. 177. gr., laga nr. 21/1991 heimilar. Telst þessum hluta kröfu sóknaraðila því lýst með fullnægjandi hætti.

Ekki sýnist um það ágreiningur að í þeim skilmálum sem um skuldabréfin gilda sé ekkert kveðið á um greiðslu dráttarvaxta eða útreikning vaxta við vanskil. Er áður komið fram að samkvæmt ákvæðum skilmálanna skuli ensk lög gilda um þau skuldabréf er hér um ræðir og skilmálarnir túlkaðir í samræmi við þau. Leiðir af c-lið 1. mgr. 10. gr. laga nr. 43/2000 að ensk lög gildi einnig um afleiðingar vanefnda varnaraðila á greiðslum samkvæmt skuldabréfinu, þar á meðal um rétt til vanefndavaxta. Er því hafnað þeirri kröfu sóknaraðila að reikna beri íslenska dráttarvexti, samkvæmt lögum nr. 38/2001, á kröfu hans.

Sóknaraðili gerir þá varakröfu vegna vaxtaþáttarins að viðurkenndur verði réttur hans til 8% vaxta frá 7. október 2008 samkvæmt enskum rétti. Af málatilbúnaði aðila má ráða að komist dómurinn að þeirri niðurstöðu að ensk lög gildi um skilmála skuldabréfanna og ákvörðun vaxta sé ágreiningslaust að réttur sóknaraðila til dráttarvaxta ráðist af gr. 4.93 í breskum reglum um greiðsluþrot frá 1986 (Insolvency Rules 1986), en um efni þeirra sé heldur ekki ágreiningur. Er í ákvæðinu kveðið á um á hvaða grunni kröfuhafi við gjaldþrotaskipti geti krafist dráttarvaxta af skuld. Segir í 1. tölulið greinarinnar að beri skuld sem samþykkt sé í gjaldþrotaskiptum vexti séu þeir sannanlega hluti skuldar nema þeir vextir sem tilkomnir séu vegna tímabilsins eftir viðkomandi dagsetningu (relevant date). Er ákvæðið orðað svo: „Where a debt proved in liquidation bears interest, that interest is provable as part of the debt except in so far as it is payable in respect of any period after the relevant date.“ Í 2. tölulið greinarinnar kemur fram að í síðar greindum tilvikum geti skuld borið vexti vegna tímans fyrir viðkomandi dagsetningu þótt þeir hafi ekki verið áskildir eða samþykktir áður. Er ákvæðið svohljóðandi: „In the following circumstances the creditor´s claim may include interest on the debt for periods before the relevant date, although not previously reserved or agreed.“ Þau tilvik sem 2. töluliður vísar til eru síðan rakin í 3. og 4. tölulið ákvæðisins. Samkvæmt 3. tölulið gr. 4.93 er heimilt að krefjast vaxta af skuld fyrir tímabilið frá gjalddaga til upphafsdags gjaldþrotaskipta eða slitameðferðar ef skuldin er gjaldfallin samkvæmt skriflegum gerningi. Er ákvæðið orðað svo: „If the debt is due by virtue of a written instrument, and payable at a certain time, interest may be claimed for the period from that time to the relevant date.“ Í 4. tölulið gr. 4.93 kemur fram að gjaldfalli skuld á annan hátt verði vaxta einungis krafist ef kröfuhafi eða einhver fyrir hans hönd hefur skriflega krafist greiðslunnar fyrir viðkomandi dag og jafnframt tilkynnt að vextir leggist við kröfuna frá þeim degi til greiðsludags. Er ákvæðið svohljóðandi: „If the debt is due otherwise, interest may only be claimed if, before the relevant date, a demand for payment of the debt was made in writing by or on behalf of the creditor, and notice given that interest would be payable from the date of the demand to the date of payment.“ Í 6. tölulið gr. 4.93 kemur fram að vextir sem unnt væri krefjast samkvæmt 3. og 4. tölulið séu þeir vextir sem tilgreindir eru í 17. kafla laga um dóma frá 1838 (The Judgments Act 1838). Er ákvæðið svohljóðandi: „The rate of interest to be claimed under paragraph (3) and (4) is the rate specified in section 17 of the Judgments Act 1838 on the relevant date.“ Viðkomandi dagur samkvæmt framansögðu (relevant date) telst sá dagur sem fyrirtæki er tekið til gjaldþrotaskipta, eða ef gjaldþrotaskipti koma strax á eftir slitameðferð þá sá dagur þegar fyrirtækið var tekið til slitameðferðar, sbr. skilgreiningu þess hugtaks í lið (A1) í gr. 4.93. Er ákvæðið orðað svo í lið (A1): „In this Rule, „the relevant date“ means the date on which company went into liquidation or, if the liquidation was immediately preceded by an administration, the date on which the company entered administration.“

Fram er komið að lokagjalddagi umræddra skuldabréfa samkvæmt skilmálunum var eftir viðmiðunardag slitameðferðarinnar, eða hinn 5. febrúar 2010. Hvorki verður leitt af skilmálum bréfanna né ákvæðum laga að þau hafi fallið sjálfkrafa í gjalddaga hinn 7. október 2008 við yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á rekstri varnaraðila, eins og sóknaraðili heldur fram, eða á einhverjum öðrum tímapunkti fyrir framangreindan viðmiðunardag 22. apríl 2009. Þá liggur fyrir að sóknaraðili sendi ekki varnaraðila kröfu um greiðslu höfuðstóls og vaxta eins og kveðið er á um í 4. tölulið gr. 4.93 bresku reglnanna. Með hliðsjón af framangreindu verður ekki talið að dráttarvextir á höfuðstól verði dæmdir á grundvelli tilvitnaðrar gr. 4.93 í hinum bresku reglum.

Sóknaraðili byggir einnig á því að dráttarvextir eigi að reiknast á gjaldfallna vexti fyrir 22. apríl 2009. Verður talið að krafa hans þar um sé nægilega fram sett og rúmist innan upphaflegrar kröfugerðar samkvæmt kröfulýsingu. Verður að líta svo á, með vísan til 3. tl. gr. 4.93, að sóknaraðili eigi rétt á umræddum 8% vöxtum af ógreiddum gjaldföllnum samningsvöxtum til 22. apríl 2009.

Sóknaraðili gerir í máli þessu kröfu um að viðurkennd verði krafa hans um áfallinn kostnað sem nemi 160.862 krónum. Kveður hann kostnað þennan hafa fallið til í tengslum við sönnun og framsetningu kröfu sinnar við slitameðferðina. Samkvæmt þeim skjölum sem sóknaraðili hefur lagt fram til stuðnings þessari kröfu sinni verður ráðið að greindur kostnaður sé fjárhæð sem reiknuð hafi verið út sem hlutfall af heildarkostnaði sóknaraðilans vegna umfangsmikillar lögfræðilegrar ráðgjafar íslenskra og erlendra lögfræðistofa vegna slitameðferðar föllnu bankanna, Glitnis banka hf., Kaupþings banka hf. og Landsbanka Íslands hf. Liggur engan veginn ljóst fyrir af þessum gögnum hvað af þessum kostnaði tengist beint slitameðferð varnaraðila. Þá liggur heldur ekki fyrir hvenær kostnaður þessi féll til. Þannig virðist sem verulegur hluti kostnaðarins hafi fallið til eftir að úrskurður um greiðslustöðvun varnaraðila var kveðinn upp hinn 24. nóvember 2008 og hluti hans hafi fallið til eftir viðmiðunardag slitameðferðarinnar hinn 22. apríl 2009. Eru flestir þeirra reikninga sem sóknaraðili byggir kröfu sína á dagsettir eftir greindan viðmiðunardag. Með hliðsjón af framangreindu þykir sóknaraðili, þegar af þessum ástæðum, ekki hafa sýnt fram á það með haldbærum gögnum að til kostnaðar þessa hafi verið stofnað með þeim hætti að hann geti átt réttmæta kröfu að þessu leyti. Verður þessari kröfu hans því hafnað.

Að öllu því virtu sem að framan er rakið, og með tilliti til fyrirliggjandi sameiginlegrar bókunar aðila og annarra gagna um útreiknaðar fjárhæðir í íslenskum krónum miðað við gengi 22. apríl 2009, er það niðurstaða máls þessa að viðurkennd er höfuðstólskrafa sóknaraðila að fjárhæð 4.742.165.717 krónur, áfallinn afsláttur fyrir 22. apríl 2009 að fjárhæð 10.976.992 krónur, ógreiddir samningsvextir og 9% vextir á ógreidda samningsvexti samkvæmt enskum rétti fram til 22. apríl 2009 að fjárhæð 268.767.233 krónur. Samtals er því viðurkennd sem almenn krafa skv. 113. gr. laga nr. 21/1991 við slit varnaraðila krafa sóknaraðila að fjárhæð 5.021.909.942 krónur.

Með vísan til þess að veruleg vafaatriði þykja vera fyrir hendi í máli þessu þykir rétt, með vísan til 3. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, að hvor aðili beri sinn hluta málskostnaðar.

Mál þetta fluttu Kári Hólmar Ragnarsson hdl. fyrir hönd sóknaraðila og Páll Eiríksson hdl. fyrir hönd varnaraðila.

Úrskurð þennan kveður upp Ásgeir Magnússon héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Krafa sóknaraðila, Burlington Loan Management Limited, að fjárhæð 5.021.909.942 krónur, á hendur varnaraðila, Glitni banka hf., er viðurkennd við slit varnaraðila sem almenn krafa skv. 113. gr. laga nr. 21/1991.

Málskostnaður fellur niður.