Hæstiréttur íslands
Mál nr. 435/2014
Lykilorð
- Kærumál
- Málskostnaður
|
|
Mánudaginn 18. ágúst 2014. |
|
Nr. 435/2014.
|
Maron ehf. (Guðjón Ármann Jónsson hrl.) gegn þrotabúi Perlufisks ehf. (Bjarni Lárusson hrl.) |
Kærumál. Málskostnaður.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem mál þrotabús á hendur M ehf. var fellt niður og M ehf. gert að greiða þrotabúinu málskostnað tilgreindrar fjárhæðar.
Dómur Hæstaréttar
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Eiríkur Tómasson og Þorgeir Örlygsson.
Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. júní 2014 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 24. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 3. júní 2014 þar sem mál varnaraðila á hendur sóknaraðila var fellt niður og sóknaraðila gert að greiða varnaraðila 75.300 krónur í málskostnað. Kæruheimild er í g. lið 1. mgr. 143. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdóms um málskostnað varnaraðila til handa verði felldur úr gildi og sér úrskurðaður málskostnaður í héraði úr hendi varnaraðila auk kærumálskostnaðar.
Varnaraðili krefst þess aðallega að sóknaraðili greiði sér málskostnað í héraði að mati Hæstaréttar, til vara staðfestingar hins kærða úrskurðar en að því frágengnu að málskostnaður verði felldur niður. Í öllum tilvikum krefst hann kærumálskostnaðar.
Varnaraðili hefur ekki kært úrskurð héraðsdóms fyrir sitt leyti og kemur aðalkrafa hans því ekki til álita við úrlausn málsins hér fyrir dómi.
Með vísan til síðari málsliðar 3. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 og forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Sóknaraðili greiði varnaraðila kærumálskostnað eins og nánar greinir í dómsorði en við ákvörðun hans er tekið tillit til dæmds kærumálskostnaðar í samkynja málum aðila nr. 436/2014 og 437/2014.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Sóknaraðili, Maron ehf., greiði varnaraðila, þrotabúi Perlufisks ehf., 125.000 krónur í kærumálskostnað.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 3. júní 2014.
Mál þetta, sem tekið var til úrskurðar 22. maí sl., er höfðað með birtingu stefnu 16. janúar 2014.
Stefnandi er þrotabú Perlufisks ehf., kt. 661104-2440, Kirkjubraut 12, Akranesi.
Stefndi er Maron ehf., kt. 460303-2140, Háseylu 16, Reykjanesbæ.
Dómkröfur stefnanda voru þær að rift yrði þeim gerningi Perlufisks ehf. að afsala til stefnda Marons ehf. eftirfarandi lyfturum og sprautuvél: Saltsprautuvél Farmaco, rafmagnslyftaranum FJ-96 JCB, rafmagnslyftaranum JL-6831 Linde og rafmagnslyftaranum LJ-6684 Caterpillar.
Þá krafðist stefnandi þess að stefndi yrði dæmdur til að greiða stefnanda 5.508.800 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. apríl 2013 til 2. mars 2014, en með dráttarvöxtum frá þeim degi til greiðsludags samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga.
Ennfremur krafðist stefnandi málskostnaðar að skaðlausu úr hendi stefnda og virðisaukaskatts af málflutningsþóknun.
Af hálfu stefnda var krafist sýknu og að honum yrði tildæmdur málskostnaður úr hendi stefnanda að mati dómsins.
Með vísan til c-liðar 1. mgr. 105. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála ber að fella mál þetta niður.
Málið var þingfest 5. febrúar sl. og hefur síðan verið tekið fyrir alls sjö sinnum. Í ljósi framangreinds, atvika málsins og þess að stefndi upplýsti ekki með fullnægjandi hætti um málsatvik fyrr en skömmu áður en aðalmeðferð málsins skyldi fara fram þykir rétt að stefndi greiði stefnanda 75.300 krónur í málskostnað að meðtöldum virðisaukaskatti. Við ákvörðun málskostnaðar er tekið tillit til tildæmds málskostnaðar í samkynja málum aðila nr. E-205/2014 og A-17/2014, sem varða sömu málsatvik og rekin voru samhliða þessu máli.
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari kveður upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Málið er fellt niður.
Stefndi, Maron ehf., greiði stefnanda, þrotabúi Perlufisks ehf., 75.300 krónur í málskostnað.