Hæstiréttur íslands
Mál nr. 386/2001
Lykilorð
- Kærumál
- Upplýsingaskylda
- Fjarskipti
- Kærufrestur
- Frávísun frá Hæstarétti
|
|
Föstudaginn 12. október 2001. |
|
Nr. 386/2001. |
Ríkislögreglustjóri(Jón H. Snorrason saksóknari) gegn X Y Z Þ og C
|
Kærumál. Upplýsingaskylda. Fjarskipti. Kærufrestur. Frávísun máls frá Hæstarétti.
Héraðsdómur gerði símafyrirtækinu T hf. að veita sóknaraðila nánar tilteknar upplýsingar um notkun síma varnaraðila. Kæra T hf. barst ekki héraðsdómi fyrr en að liðnum kærufresti og samkvæmt því var málinu vísað frá Hæstarétti.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Gunnlaugur Claessen.
Tal hf. skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 9. október 2001, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 10. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 5. október 2001, þar sem Tali hf. var gert að veita sóknaraðila nánar tilteknar upplýsingar um notkun síma varnaraðila. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Tal hf. krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og sér dæmdur kærumálskostnaður úr ríkissjóði.
Sóknaraðili krefst þess aðallega að málinu verði vísað frá Hæstarétti, en til vara að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur um að annað en skyldu Tals hf. til að veita upplýsingar um notkun síma varnaraðilans Júlíusar Funimisho Ajayi.
Samkvæmt gögnum málsins var hinn kærði úrskurður kveðinn upp á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur 5. október 2001 kl. 14.30. Í greinargerð sóknaraðila fyrir Hæstarétti er staðhæft að starfsmönnum Tals hf. hafi um tveimur klukkustundum síðar verið afhent endurrit af úrskurðinum og óskað eftir því að látnar yrðu í té upplýsingarnar, sem þar var mælt fyrir um. Hæstarétti hefur ekki borist greinargerð í málinu frá Tali hf. og hefur ekki á annan hátt verið hreyft mótmælum gegn þessari staðhæfingu sóknaraðila. Samkvæmt því verður að leggja hana til grundvallar.
Í 2. mgr. 144. gr. laga nr. 19/1991 er mælt svo fyrir að kærandi skuli lýsa kæru sinni innan þriggja sólarhringa frá því hann fékk vitneskju um þá úrlausn, sem hann vill kæra. Þessi frestur var liðinn þegar kæra Tals hf. barst Héraðsdómi Reykjavíkur 9. október 2001. Samkvæmt því verður málinu vísað frá Hæstarétti.
Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.
Dómsorð:
Máli þessu er vísað frá Hæstarétti.