Hæstiréttur íslands

Nr. 2019-230

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari)
gegn
X (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)

Lykilorð

  • Áfrýjunarleyfi
  • Kynferðisbrot
  • Skaðabætur
  • Hafnað

Ákvörðun Hæstaréttar.

Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Markús Sigurbjörnsson og Viðar Már Matthíasson.

Með beiðni 5. júlí 2019 leitar X leyfis Hæstaréttar til að áfrýja dómi Landsréttar 31. maí sama ár í málinu nr. 141/2018: Ákæruvaldið gegn X, á grundvelli 1. mgr., sbr. 4. mgr., 215. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Ákæruvaldið telur ekki efni til að verða við beiðninni.

Með fyrrnefndum dómi Landsréttar var leyfisbeiðandi sakfelldur fyrir að hafa brotið gegn 199. gr. og 1. og 2. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa nýtt sér andlega fötlun brotaþola og beitt hana ólögmætri nauðung til að ná fram kynferðislegum samskiptum við hana í þrjú skipti. Var refsing hans ákveðin fangelsi í tvö ár auk þess sem honum var gert að greiða brotaþola skaðabætur. Leyfisbeiðandi telur að skilyrði 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008 fyrir veitingu áfrýjunarleyfis séu uppfyllt. Vísar hann til þess að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni til þar sem skilyrði 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga um ólögmæta nauðung hafi ekki verið fullnægt. Þá hafi ranglega og andstætt niðurstöðu matsgerðar dómkvaddra yfirmatsmanna verið lagt til grundvallar að brotaþoli hafi ekki getað spornað við verknaðinum sökum andlegrar fötlunar, sbr. 2. mgr. sömu lagagreinar.

Að virtum gögnum málsins verður ekki séð að það lúti að atriðum sem hafi verulega almenna þýðingu eða að mjög mikilvægt sé af öðrum ástæðum að fá úrlausn Hæstaréttar um þau þannig að fullnægt sé skilyrðum 2. málsliðar 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008. Þá eru ekki efni til að beita heimild 3. málsliðar 4. mgr. sömu lagagreinar í málinu. Niðurstaða Landsréttar um sakfellingu byggir jafnframt fyrst og fremst á mati á sönnunargildi munnlegs framburðar leyfisbeiðanda, brotaþola og nafngreindra vitna, en það mat verður ekki endurskoðað fyrir Hæstarétti, sbr. 5. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008. Er beiðni um áfrýjunarleyfi því hafnað.