Hæstiréttur íslands

Mál nr. 282/2002


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gjaldþrotaskipti


Mánudaginn 1

 

Mánudaginn 1. júlí 2002.

Nr. 282/2002.

Frjáls fjölmiðlun ehf.

(Jón Gunnar Zoëga hrl.)

gegn

Sameinaða lífeyrissjóðnum

(Páll Arnór Pálsson hrl.)

 

Kærumál. Gjaldþrotaskipti.

Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms um að F ehf. skyldi tekið til gjaldþrotaskipta.

 

Dómur Hæstaréttar.

         Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Guðrún Erlendsdóttir, Árni Kolbeinsson og Haraldur Henrysson.

Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 13. júní 2002, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 18. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 31. maí 2002, þar sem tekin var til greina krafa varnaraðila um að bú sóknaraðila yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Kæruheimild er í 179. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og hafnað kröfu varnaraðila um að bú sóknaraðila verði tekið til gjaldþrotaskipta. Þá krefst hann þess að sér verði dæmdur málskostnaður í héraði og kærumálskostnaður.

Varnaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur og sér dæmdur kærumálskostnaður.

Fallast ber á það með héraðsdómara að árangurslaus fjárnámsgerð hjá sóknaraðila 19. mars 2002 verði lögð til grundvallar úrskurði um gjaldþrotaskipti á búi hans, enda hefur hann hvorki sýnt fram á að gerðin hafi gefið ranga mynd af fjárhag hans né að hann sé fær um að standa full skil á skuldbindingum sínum, sbr. 2. mgr. 65. gr. laga nr. 21/1991. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Sóknaraðili verður dæmdur til að greiða varnaraðila kærumálskostnað eins og í dómsorði greinir.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Sóknaraðili, Frjáls fjölmiðlun ehf., greiði varnaraðila, Sameinaða lífeyrissjóðnum, 60.000 krónur í kærumálskostnað.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 31. maí 2002.

                Mál þetta var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur 10. þ.m.

                Sóknaraðili er Sameinaði lífeyrissjóðurinn, kt. 620492-2809, Borgartúni 30, Reykjavík.

                Varnaraðili er Frjáls fjölmiðlun ehf., kt. 550282-0469, Þverholti 11, Reykjavík.

Dómkröfur sóknaraðila eru að bú varnaraðila verði tekið til gjaldþrotaskipta.  Þá er krafist málskostnaðar úr hendi varnaraðila að mati dómsins.

Dómkröfur varnaraðila eru að hafnað verði kröfu sóknaraðila.  Þá er krafist málskostnaðar úr hendi sóknaraðila að mati dómsins.

 

Helstu málsatvik eru að varnaraðili hefur ekki staðið sóknaraðila full skil á iðgjöldum fyrir tímabilið september til desember 2000, sem varnaraðila bar að halda eftir af útgreiddum launum starfsfólks síns og standa sjóðnum skil á mánaðarlega ásamt mótframlagi atvinnurekanda.  Þann 19. mars 2002 lýsti fulltrúi hjá sýslumanninum í Reykjavík yfir árangurslausu fjárnámi hjá varnaraðila að kröfu gerðarbeiðanda, Reykjavíkurborgar.

                Með bréfi, sem móttekið var í Héraðsdómi Reykjavíkur 17. apríl 2002, krafðist sóknaraðili að bú varnaraðila yrði tekið til gjaldþrotaskipta á grundvelli fjárnáms án árangurs hjá varnaraðila, 19. mars 2002, samkvæmt 65. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti.  Jafnframt var lýst kröfu að fjárhæð 953.781 kr. með dráttarvöxtum og kostnaði.

                Þann 8. maí 2002 var tekin fyrir í héraðsdómi beiðni sóknaraðila um að bú varnaraðila yrði tekið til gjaldþrotaskipta.  Af hálfu varnaraðila var beiðninni mótmælt.

 

Varnaraðili byggir á því að krafa, sem árangurslausa fjárnámsgerðin 19. mars 2002 var reist á, hafi verið greidd.  Grundvöllur fyrir kröfu sóknaraðila um að bú varnaraðila verði tekið til gjaldþrotaskipta sé því brostinn, lagaskilyrði 2. mgr. 65. gr. laga nr. 21/1991 ekki lengur fyrir hendi.

 

Sóknaraðili byggir á því að varnaraðili hafi ekki haldið því fram að yfirlýsing framkvæmdastjóra fjármálasviðs varnaraðila um eignaleysi varnaraðila 19. mars 2002  gefi ranga mynd af fjárhag varnaraðila.  

 

Niðurstaða:  Nægilegt er fyrir sóknaraðila að vísa til þess að fjárnám var gert hjá varnaraðila án árangurs 19. mars 2002 til að krefjast þess með réttu að bú varnaraðila verði tekið til gjaldþrotaskipta,  enda hefur varnaraðili ekki sýnt fram á að hann sé allt að einu fær um að standa full skil á skuldbindingum sínum þegar þær koma í gjalddaga eða verði það innan skamms tíma.  Sönnunarbyrðin hvílir á varnaraðila.  Raunar verður að telja að varnaraðila, sem bókhaldsskyldum skuldara, hafi verið skylt að gefa bú sitt upp til gjaldþrotaskipta fyrst hann gat ekki staðið í fullum skilum við sóknaraðila, sbr. 64. gr. laga nr. 21/1991.

                Samkvæmt framangreindu verður fallist á kröfu sóknaraðila um að bú varnaraðila verði tekið til gjaldþrotaskipta.

                Rétt er að varnaraðili greiði sóknaraðila 30.000 kr. í málskostnað.

                Páll Þorsteinsson héraðsdómari kveður upp úrskurðinn.

ÚRSKURÐARORÐ:

                Bú varnaraðila, Frjálsrar fjölmiðlunar ehf., er tekið til gjaldþrotaskipta.

                Varnaraðili greiði sóknaraðila, Sameinaða lífeyrissjóðinum, 30.000 krónur í málskostnað.