Hæstiréttur íslands

Mál nr. 396/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                            

Þriðjudaginn 22. júní 2010.

Nr. 396/2010.

Lögreglustjórinn á

höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Karl Georg Sigurbjörnsson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur en gæsluvarðhaldinu markaður skemmri tími, sbr. 4. mgr. 95. gr. sömu laga.  

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 18. júní 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 21. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 18. júní 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 9. júlí 2010 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðahaldinu verði markaður skemmri tími. Hann krefst einnig kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Varnaraðili var fyrst úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna máls þessa á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 frá 11. apríl 2010 til 23. sama mánaðar. Sú niðurstaða var staðfest með dómi Hæstaréttar 16. apríl 2010 í máli nr. 239/2010. Gæsluvarðhaldið var framlengt með vísan til sama lagaákvæðis til 30. apríl 2010 með úrskurði 23. sama mánaðar, sem staðfestur var með dómi Hæstaréttar 27. apríl sama ár í máli nr. 258/2010. Gæsluvarðhaldið var enn framlengt til 21. maí 2010 með vísan til 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 með úrskurði 30. apríl sama ár. Var hann staðfestur var með dómi Hæstaréttar 5. maí 2010 í máli nr. 269/2010. Gæsluvarðhaldið var loks framlengt með vísan til sama lagaákvæðis til 18. júní 2010 með úrskurði 21. maí sama ár og var sú niðurstaða staðfest með dómi Hæstaréttar 26. maí 2010 í máli nr. 321/2010. Sóknaraðili krefst nú framlengingar gæsluvarðhaldsins til 9. júlí 2010.

Eins og að framan greinir hefur varnaraðili sætt gæsluvarðhaldi samfellt frá 11. apríl 2010. Hæstiréttur hefur í tveimur síðastgreindum dómum talið að skilyrði séu í máli þessu til að beita gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Í 4. mgr. 95. gr. laganna er kveðið á um að ekki sé heimilt að úrskurða sakborning til að sæta gæsluvarðhaldi lengur en tólf vikur nema mál hafi verið höfðað gegn honum eða brýnir rannsóknarhagsmunir krefjist þess. Samkvæmt framansögðu eru skilyrði til þess að fallast á kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald varnaraðila, en þó ekki lengur en til 4. júlí 2010 klukkan 16, en þá eru liðnar tólf vikur frá því að gæsluvarðhaldsvist hans hófst.

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur, sbr. 3. mgr. 220. gr. laga nr. 88/2008.

Dómsorð:

Varnaraðili, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi til sunnudagsins 4. júlí 2010 klukkan 16.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 18. júní 2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 9. júlí nk. kl. 16. 

Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu segir að kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins frá 11. apríl sl. til dagsins í dag, nú síðast með dómi Hæstaréttar Íslands og þá á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Að kvöldi laugardagsins 10. apríl sl., um kl. 23:00, hafi lögreglan lagt hald á mikið magn hættulegra fíkniefna, sem flutt hafi verið til landsins með flugi frá Alicante á Spáni fyrr um daginn. Efnin, sem hafi verið kyrfilega falin í þremur ferðatöskum, hafi reynst vera kókaín, um 1.600 grömm. Samkvæmt matsgerð lyfjafræðistofnunar Háskóla Íslands, dags. 14. apríl sl., sé styrkur kókaínsins mjög mikill eða um og yfir 80%. 

Kærði sé sterklega grunaður um aðild að fíkniefnainnflutningnum, enda hafi lögreglan fylgst með honum umrætt kvöld fara, ásamt meðkærða Y, að heimili meðkærða Z, sem hefði flutt efnin til landsins, þar sem hann hefði sótt efnin og flutt þau í bifreiðinni [...] að húsi við [...] í Reykjavík. Þá hefði hann sótt meðkærða Þ á heimili hans að [...] og ekið með honum að efnunum, þar sem hann hefði sýnt Þ töskurnar með efnunum í. Kærði hafi stuttu síðar verið handtekinn og þá haft í fórum sínum 1.010.000 krónur í umslagi.

Meðkærðu Z, Y og Þ sæti nú allir gæsluvarðhaldi samkvæmt úrskurðum Héraðsdóms Reykjaness 21. maí sl., á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála til dagsins í dag, kl. 16. Þá sæti einnig gæsluvarðhaldi, á grundvelli sama lagaákvæðis, meðkærði Æ.

Kærði hafi í yfirheyrslum hjá lögreglu neitað sök.

Í málinu liggi fyrir framburður Y um að hann hafi sett sig í samband við Z og óskað eftir því að hann að hann tæki að sér að flytja fíkniefnin til landsins. Y hafi fengið Z til verksins að beiðni þess aðila sem hefði farið með honum að heimili Z til að sækja efnin, þ.e. kærða X.

Þá liggi fyrir í málinu framburður meðkærða Þ, þess efnis að hann hafi laugardaginn 10. apríl sl. hitt kærða X í Kringlunni. Þeir hafi svo farið saman í Garðabæ og sótt bifreiðina [...], sem hafi verið í umráðum meðkærða Æ. Þeir hafi svo ekið í samfloti upp í Breiðholt þar sem bifreiðin hafi verið skilin eftir við heimili Z. Því næst hafi hann ekið kærða X aftur í Kringluna. Kærði X hefði svo hafa haft samband við sig seinna um kvöldið og þeir farið í sameiningu að bifreiðinni [...] þar sem hún hafi staðið við [...]. Hann hafi skoðað þar í töskurnar. Þeir hafi svo stuttu seinna báðir verið handteknir af lögreglu.

Rannsókn málsins sé lokið verði málið sent ríkissaksóknara á næstu dögum til ákvörðunar um saksókn.

Það sé mat lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að lagaskilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 sé fullnægt, enda sé kærði undir sterkum grun um að hafa framið afbrot sem varði allt að 12 ára fangelsi. Þá sé brot hans svo svívirðilegt að almannahagsmunir krefjist þess að honum verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, uns dómur gengur í máli hans.

Í málinu liggi fyrir dómur Hæstaréttar Íslands í málum nr. 269/2010 og 321/2010 þar sem lagaskilyrði almannagæslu séu talin vera fyrir hendi og hafi ekkert nýtt komið fram í málinu sem breytt geti þeirri niðurstöðu.

Staða kærða þyki sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. t.d. dóma Hæstaréttar Íslands í málum nr. 593/2006 og 161/2007, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að dómi, enda undir sterkum grun um beina aðild að innflutningi á sambærilegu magni kókaíns í ágóðaskyni. Um refsmat og hugsanleg viðurlög, sannist sök kærða, sé vísað til dóma Hæstaréttar í málum nr. 149/2007 og 415/2008.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Samkvæmt rannsóknargögnum málsins er kærði undir sterkum grun um aðild að innflutningi á miklu magni af sterku kókaíni. Meint brot kærða getur varðað allt að 12 ára fangelsi. Verður því að telja nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna að kærði sæti gæsluvarðhaldi, sbr. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Er því fallist á kröfu lögreglustjóra, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurð þennan kveður upp Finnbogi H. Alexandersson héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 9. júlí 2010, kl. 16.00.