Hæstiréttur íslands
Mál nr. 499/2012
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
Föstudaginn 20. júlí 2012. |
|
|
Nr. 499/2012. |
Ákæruvaldið (Stefanía Sæmundsdóttir settur saksóknari) gegn X (Björgvin Jónsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma Greta Baldursdóttir hæstaréttardómari og Benedikt Bogason og Helgi I. Jónsson settir hæstaréttardómarar.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 18. júlí 2012, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 18. júlí 2012, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans í Hæstarétti, en þó eigi lengur en til fimmtudagsins 8. nóvember 2012 klukkan 17. Kæruheimild er í b. lið 2. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness miðvikudaginn 18. júlí 2012.
Ríkissaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], [...], [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans í Hæstarétti, þó eigi lengur en til fimmtudagsins 8. nóvember 2012, kl. 17:00.
Í greinargerð ríkissaksóknara segir að með dómi Héraðsdóms Reykjaness, í máli nr. S-215/2012, uppkveðnum 20. júní 2012, hafi X verið sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 194. gr. og 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa ruðst í heimildarleysi, ásamt tveimur öðrum, inn á heimili brotaþola, veist að manni sem þar var og þvingað hann með ofbeldi út úr íbúðinni og því næst veist öll þrjú með ofbeldi að brotaþola og brotið gegn henni m.a. með því að sparka í höfuð hennar, skera í fingur hennar með hnífi og slá hana með leðurkylfu, svo og með því að samverkamaður dómfellda, sem hafði hulið andlit sitt, hafi stungið fingrum upp í endaþarm og leggöng brotaþola og klemmt á milli. Hafi niðurstaða dómsins verið sú að um verkaskipta aðild dómfellda og samverkamanna hans hefði verið að ræða. Dómfellda hafi verið gert að sæta fangelsi í fjögur ár.
Með áfrýjunarstefnu útgefinni 2. júlí 2012 hafi dómnum verið áfrýjað til Hæstaréttar af hálfu dómfellda.
Dómfelldi hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 22. desember 2011, sbr. úrskurði Héraðsdóms Reykjaness um gæsluvarðhald hans, nr. R-438/2011, R-26/2012, R-48/2012, R-87/2012, R-130/2012, R-199/2012, R-241/2012, R-274/2012, R-289/2012 og R-296/2012 og dóma Hæstaréttar nr. 694/2011, 23/2012, 52/2012, 108/2012, 165/2012, 245/2012, 322/2012, 391/2012 433/2012 og 442/2012.
Dómfelldi hafi verið sakfelldur fyrir alvarleg brot. Með hliðsjón af því og þess að ríkir almannahagsmunir standi til þess að menn gangi ekki lausir þegar svo stendur á sé þess krafist að dómfellda verði gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan mál hans er til meðferðar fyrir Hæstarétti, sbr. 2. mgr. 95. gr. og 3. mgr. 97. gr. laga nr. 88/2008
Dómfelldi sætti fyrst gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna en síðan með vísan til 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Hinn 20. júní 2012 var hann sakfelldur og dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir brot gegn 1. mgr. 194. gr. og 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Dómnum hefur nú verið áfrýjað til Hæstaréttar af hálfu dómfellda. Með vísan til framangreinds og 3. mgr. 97. laga nr. 88/2008 er fallist á kröfu ríkissaksóknara eins og hún er sett fram og nánar greinir í úrskurðarorði. Þegar litið er til umfangs málsins þykir ekki ástæða til að marka gæsluvarðhaldi skemmri tíma.
Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Dómfelldi, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans í Hæstarétti, þó eigi lengur en til fimmtudagsins 8. nóvember 2012, kl. 17:00.