Hæstiréttur íslands
Mál nr. 45/2010
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Föstudaginn 29. janúar 2010. |
|
Nr. 45/2010. |
Ákæruvaldið (Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari) gegn X (Bragi Björnsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. B. og d. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli b. og d. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 26. janúar 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 27. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 26. janúar 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt þar til dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til þriðjudagsins 23. febrúar 2010 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að hann verði látinn sæta farbanni.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 26. janúar 2010.
Ríkissaksóknari hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...],[...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans en þó eigi lengur en til þriðjudagsins 23. febrúar 2010, kl. 16.00.
Í greinargerð ríkissaksóknara segir, að með ákæru ríkissaksóknara, útgefinni 29. desember 2009, hafi verið höfðað sakamál á hendur X og fleiri mönnum. Sé ákærðu gefið að sök mansal gagnvart stúlkunni A, 19 ára litháískum ríkisborgara, sem beitt hafi verið ólögmætri nauðung, frelsissviptingu og ótilhlýðilegri aðferð áður en og þegar hún var send til Íslands, sem og í meðförum ákærðu hér á landi, sem tóku við stúlkunni, fluttu hana og hýstu í því skyni að notfæra sér hana kynferðislega. Sé brot ákærðu aðallega heimfært til 1. tl. 1. mgr. 227. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 5. gr. laga nr. 40/2003, en til vara við sama ákvæði, sbr. 1. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga. Þá hafi ríkissaksóknari til meðferðar mál nr. 007-2009-57920 er varði ætlaða hylmingu ákærða. Sé ákvörðunar um saksókn í því að vænta innan skamms.
Þá kemur fram í greinargerð ríkissaksóknara að ákærði hafi sætt gæsluvarðhaldi í þágu málsins frá 14. október sl. Málið sé mjög umfangsmikið og hafi rannsókn þess teygt anga sína víða. Liggi fyrir rökstuddur grunur um að ákærði tengist glæpasamtökum í Litháen, en ákærði sé ríkisborgari þar í landi. Vísist nánar um það til hættumats greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Telji greiningardeildin enn fremur að vitnum í málinu, þ. á m. brotaþola, stafi veruleg hætta af kærða verði hann látinn laus. Þá sé vísað til þess að ákærði sé erlendur ríkisborgari og þyki hætta vera á því að hann muni reyna að komast úr landi eða leynast eða koma sér með öðrum hætti undan málssókn. Aðalmeðferð í máli ákærða sé þegar hafin og sé málið því að komast á lokastig.
Með vísan til framangreinds, gagna málsins, b- og d-liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og dóms Hæstaréttar nr. 774/2009 í máli ákærða sé þess beiðst að ofangreind krafa nái fram að ganga.
Af hálfu ákærða er kröfu um gæsluvarðhald mótmælt og þess aðallega krafist að kröfunni verði hafnað en til vara að ákærða verði einungis gert að sæta farbanni í stað gæsluvarðahalds.
Ákærði hefur samkvæmt framansögðu ásamt fleiri mönnum verið ákærður fyrir mansal gagnvart stúlkunni A, 19 ára litháískum ríkisborgara. Slíkt brot getur varðað allt að 8 ára fangelsi samkvæmt 1. mgr. 227. gr. a almennra hegningarlaga. Samkvæmt gögnum málsins er ákærði undir rökstuddum grun um að hafa framið brot það sem honum er gefið að sök. Ákærði er erlendur ríkisborgari og verður því að telja hættu á því að hann muni reyna að komast úr landi, leynast eða koma sér með öðrum hætti undan málssókn áður en mál hans er til lykta leitt. Þá verður að líta til þess að í málinu hefur verið lagt fram hættumat greiningardeildar ríkislögreglustjóra þar sem m. a. kemur fram að vitnum, þ. á m. brotaþola, stafi hætta af ákærða. Er á það fallist að vitnunum stafi veruleg hætta af ákærða verði hann látinn laus. Aðalmeðferð í málinu er hafin en ekki liggur fyrir hvenær henni lýkur. Með vísan til alls framangreinds og b- og d-liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, er því fallist á kröfu ríkissaksóknara, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð þennan kveður upp Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Ákærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans, þó eigi lengur en til þriðjudagsins 23. febrúar 2010, kl. 16.00.