Hæstiréttur íslands

Mál nr. 110/2000


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Mánudaginn 20

 

Mánudaginn 20. mars 2000.

Nr. 110/2000.

 

Ákæruvaldið

(Kolbrún Sævarsdóttir settur saksóknari)

gegn

Júlíusi Kristófer Eggertssyni

(Kristján Stefánsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að J skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Haraldur Henrysson, Arnljótur Björnsson og Markús Sigurbjörnsson.

          Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 15. mars 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 17. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 15. mars 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 26. apríl 2000 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykja­víkur 15. mars 2000.

Ríkissaksóknari hefur krafist þess með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 að Júlíusi Kristófer Eggertssyni, kt. 271072-5119, með lögheimili að Leifsgötu 3, Reykjavík, verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans þó eigi lengur en til miðvikudagsins 26. apríl nk., kl. 16.00. 

[...]

Samkvæmt því sem hér að framan hefur verið rakið er rannsókn málsins lokið og bárust málsgögn embætti ríkissaksóknara þann 2. mars sl.

Í málinu þessu er kærði borinn sökum um aðild að innflutningi á verulegu magni fíkniefna til landsins sem ætlað var til sölu.  Kærði hefur neitað að eiga aðild að innflutningi þessum.  Af hálfu ríkissaksóknara er grunur um aðild kærða byggður á framburði annarra sakborninga í málinu og hlustun á símtöl sem kærði hefur átt við þá.  Telst því sterkur grunur um að kærði hafi framið brot sem varðað geti hann allt að 10 ára fangelsi samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940.  Þá þykir hafa verið færð fyrir því viðhlítandi rök að brotið sé þess eðlis að gæsluvarðhald teljist nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna enda þykir farbann ekki vernda þá hagsmuni sem stefnt er að með kröfu ríkissaksóknara.

Mál þetta er verulega umfangsmikið og eðlilegt að nokkurn tíma taki að vinna að útgáfu ákæru og leggja á það dóm.  Ákæra mun verða gefin út á næstu dögum samkvæmt því fulltrúi ríkissaksóknara hefur upplýst hér fyrir dómi.  Telst tímalengd gæsluvarðhalds samkvæmt kröfu ríkissaksóknara því eðlileg í því sambandi.  Með vísan til þess, sem hér hefur verið rakið, þykja uppfyllt skilyrði 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 þannig að fallast ber á kröfu ríkissaksóknara.  Kærði er því úrskurðaður til að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 26. apríl 2000 kl. 16.00.

Valtýr Sigurðsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærði, Júlíus Kristófer Eggertsson, kt. 271072-5119, sæti gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 26. apríl 2000, kl. 16:00.