Hæstiréttur íslands
Mál nr. 126/2007
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Miðvikudaginn 7. mars 2007. |
|
Nr. 126/2007. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu(Jón H. Snorrason saksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 2. mars 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 5. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 2. mars 2007, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. mars 2007 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Eins og rakið er í hinum kærða úrskurði fundust fíkniefni við leit tollgæslu í bifreið, sem hafði þá nýlega verið flutt inn til landsins frá Þýskalandi. Voru fíkniefnin fjarlægð og gerviefnum komið fyrir í staðinn. Liggur fyrir rökstuddur grunur um að varnaraðili hafi ásamt öðrum manni fjarlægt úr bifreiðinni umrædd gerviefni. Með þessum athugasemdum en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 2. mars 2007 .
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt fram kröfu þess efnis að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, [kt. og heimilisfang], sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. mars 2007, kl. 16.00.
Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að ávana- og fíkniefnadeild rannsaki nú innflutning á miklu magni af fíkniefnum til landsins sem fundust við leit tollgæslu í bifreið á hafnarsvæði Samskipa í Reykjavík. Bifreiðin hafi nýlega verið flutt til landsins frá Þýskalandi og hafði fíkniefnunum verið komið fyrir í bifreiðinni. Grunur leiki á því að fíkniefnin hafi átt að fara í sölu og dreifingu hér á landi. Lögregla hafi komið gerviefnum fyrir í bifreiðinni og hafi fylgst með henni síðan. Þann 6. febrúar hafi A svo leyst bifreiðina út úr tollgeymslu vöruafgreiðslu Samskipa og í kjölfarið látið flytja bifreiðina á bifreiðastæði við dvalarstað sinn. Þann 8. febrúar sl. hafi A svo bifreiðinni að bænum [...]. Gögn lögreglu bendi til þess bifreiðinni hafi verið ekið inn í skemmu við [...] um þann 9. febrúar og að þar hafi A ásamt kærða losað fíkniefnin úr mælaborði bifreiðarinnar. A hafi í kjölfarið verið handtekinn kl. 15:45 á Kringlumýrarbraut vegna rannsóknar málsins. Kærði hafi verið handtekinn vegna málsins í gær og hafi hann tjáð sig um aðild sína að málinu. Kærði hafi verið yfirheyrður í gærkvöldi og játað að hafa verið með A að [...] og losað efni úr bifreiðinni, en um afstöðu hans til sakarefnisins og nánar um framburð hans sé vísað til framburðarskýrslu kærða. Sé nánar vísað til gagna málsins.
Rannsókn málsins miði áfram, málið sé talið umfangsmikið, framundan séu frekari yfirheyrslur af kærða og meintum samverkamönnum hans. Þá sé frekari gagnaöflun og gagnaúrvinnsla framundan sem skýrt geti frekar aðdraganda brotsins, samskipti kærða við meinta samverkamenn sem kunni að tengjast málinu. Upplýsa þurfi hvar, hvenær og hvernig fíkniefnunum hafi verið komið fyrir í bifreiðinni og hverjir komu þeim fyrir. Nauðsynlegt sé að kærði sæti gæsluvarðhaldi en ljóst sé að gangi kærði laus geti hann sett sig í samband við meinta vitorðsmenn sem gangi lausir eða þeir geti sett sig í samband við hann eða kærði geti komið undan gögnum með sönnunargildi sem ekki hafi verið lagt hald á. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus.
Verið sé að rannsaka ætluð brot gegn fíkniefnalöggjöfinni og megi ætla að ef þau sönnuðust myndu þau geta varðað allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 191991 um meðferð opinberra mála.
Með vísan til framlagðra rannsóknargagna er fallist á að fyrir hendi séu skilyrði þess að kærði sæti gæsluvarðhaldi á grundvelli a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 til föstudagsins 16. mars 2007, kl. 16.00 eins og krafist er.
Ásgeir Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 16. mars 2007, kl. 16:00.