Hæstiréttur íslands
Mál nr. 254/2000
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Miðvikudaginn 5. júlí 2000. |
|
Nr. 254/2000.
|
Ákæruvaldið(Kolbrún Sævarsdóttir settur saksóknari) gegn Júlíusi Kristófer Eggertssyni (Kristján Stefánsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. og 106. gr. laga nr. 19/1991.
Skilyrðum var talið fullnægt til að J sætti áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 106. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála meðan mál hans var til meðferðar hjá ríkissaksóknara og fyrir æðra dómi.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Haraldur Henrysson, Arnljótur Björnsson og Markús Sigurbjörnsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 29. júní 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 30. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 27. júní 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til þriðjudagsins 22. ágúst nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 27. júní 2000 var varnaraðili dæmdur til að sæta fangelsi í fimm ár og sex mánuði og upptöku á jafnvirði 8.000.000 króna, svo og til greiðslu hluta sakarkostnaðar, en frá refsivistinni skyldi dragast gæsluvarðhald hans frá 24. september 1999 til dómsuppsögu. Með tilkynningu til ríkissaksóknara 28. júní 2000 lýsti varnaraðila yfir áfrýjun dómsins. Skilyrðum 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 er fullnægt til þess að varnaraðili sæti gæsluvarðhaldi samkvæmt 106. gr. laganna meðan mál hans er til meðferðar hjá ríkissaksóknara og fyrir æðra dómi, en yfirlýsing varnaraðila um áfrýjun héraðsdóms bindur ekki ein sér enda á gæsluvarðhald yfir honum. Samkvæmt þessu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur þriðjudaginn 27. júní 2000.
Ríkissaksóknari hefur krafist þess að gæsluvarðhald sem dómfelldi, Júlíus Kristófer Eggertsson, kt. 271072-5119, Leifsgötu 3, Reykjavík, hefur sætt skv. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19,1991 um meðferð opinberra mála haldist með vísan til heimildar í 106. gr. sömu laga, meðan áfrýjunarfrestur varir.
Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. S-774/2000 sem kveðinn var upp nú í dag var framangreindur Júlíus Kristófer Eggertsson, kt. 271072-5119, Leifsgötu 3, Reykjavík, dæmdur skv. 173. gr. a almennra hegningarlaga, sbr. lög nr. 64,1974, til að sæta fangelsi í 5 ár og 6 mánuði en frá refsivistinni dragist óslitið gæsluvarðahald hans frá 24. september 1999 til dagsins í dag að telja.
Skv. 106. gr. laga nr. 19,1991 lýkur gæsluvarðhaldi þegar dómur hefur verið kveðinn upp í máli. Eftir kröfu ákæranda getur dómari þó úrskurðað að gæsluvarðhald skuli haldast meðan á fresti skv. 2. mgr. 151. gr. laga nr. 19,1991 stendur.
Dómfelldi hefur sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19,1991 vegna þeirra brota sem hann hefur nú verið sakfelldur fyrir. Skilyrði 106. gr. laganna eru fyrir hendi og er krafa ríkissaksóknara tekin til greina eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurðarorð:
Dómfelldi, Júlíus Kristófer Eggertsson, sæti gæsluvarðhaldi meðan áfrýjunarfrestur varir, en þó eigi lengur en til þriðjudagsins 22. ágúst nk. kl. 16.00.