Hæstiréttur íslands
Mál nr. 370/2012
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Miðvikudaginn
30. maí 2012. |
|
Nr. 370/2012. |
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Óli
Á. Hermannsson fulltrúi) gegn X (Súsanna Björg Fróðadóttir hdl.) |
Kærumál.
Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta
gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um
meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Viðar Már Matthíasson,
Greta Baldursdóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 28. maí
2012 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður
Héraðsdóms Reykjaness 26. maí 2012, þar sem varnaraðila var gert að sæta
gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 8. júní 2012 klukkan 16 og einangrun meðan
á gæsluvarðhaldinu stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr.
88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði
úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að beitt verði vægari úrræðum. Að
því frágengnu krefst hún þess að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann
staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 26. maí 2012.
Lögreglustjórinn á
Suðurnesjum hefur í dag krafist þess að kærðu, X, kt.
[...], verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að
sæta gæsluvarðhaldi og einangrun allt til mánudagsins 11. júní 2012, kl. 16:00.
Kærða mótmælir kröfunni, en krefst þess til vara að gæsluvarðahaldinu
verði markaður skemmri tími en krafist er
Í greinargerð lögreglustjórans á Suðurnesjum kemur fram að í
gær þann 25. maí 2012 kl. 16:38 hafi A, kt. [...] komið
til landsins með flugi frá Kaupmannahöfn, Danmörku. Tollgæslan í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar hafi haft afskipti af A ásamt kærasta hennar B, fd.
[...], dönskum ríkisborgara.
Þegar tekið var Itemiser stroksýni úr tösku sem A hafði meðferðis hafi
komið fram há svörun við kókaín. Er stungið var í töskuna hafi mátt sjá hvítt
duft, ætlað kókaín.
Tæknideild
lögreglustjórans á Höfuðborgarsvæðinu sé að rannsaka meint fíkniefni og muni
niðurstöður liggja fyrir á næstunni en um er að ræða nokkurt magn meintra
fíkniefna.
Lögreglustjórinn á
Suðurnesjum hafi upplýsingar um að X og Y, kt. [...],
kærasti kærðu, eigi aðild að innflutningi meintra fíkniefna. A sé móðir kærðu.
Kærða hafi ásamt kærasta sínum verið handtekin í gær vegna rannsóknar málsins
og hafi hún viðurkennt að eiga aðild að innflutningi fíkniefnanna.
Rannsókn þessa máls sé
á algjöru frumstigi og málið umfangsmikið. Meðal þess sem rannsaka þurfi séu
ferðir kærðu og tengsl kærðu við hugsanlega vitorðsmenn á Íslandi og eða
erlendis auk annarra atriða. Magn hinna meintu fíkniefna, sem þegar hafa
fundist, þyki eindregið benda til þess að hin meintu fíkniefni hafi verið ætluð
til sölu og dreifingar og að háttsemi kærðu kunni að varða við ákvæði 173. gr.
a almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 auk ákvæða laga nr. 65, 1974 um ávana- og
fíkniefni. Lögregla telji að ætla megi að kærða kunni að torvelda rannsókn
málsins og hafa áhrif á samseka gangi hún laus.
Þess sé krafist að
kærðu verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldi skv. b-lið 1. mgr. 99. gr.
laga nr. 88, 2008.
Með vísan til alls
framangreinds, rannsóknarhagsmuna, a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88, 2008 um
meðferð sakamála, 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, laga nr. 65,
1974 um ávana og fíkniefni, telji lögreglustjóri brýna rannsóknarhagsmuni
standa til þess að kærðu verði gert að sæta gæsluvarðhaldi og einangrun allt
til mánudagsins 11. júní 2012 kl. 16.00.
Samkvæmt
rannsóknargögnum málsins er kærða undir rökstuddum grun um að hafa gerst sek um
háttsemi sem varðað getur fangelsi samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga
nr. 19/1940 og lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni. Samkvæmt greinargerð lögreglustjóra
er rannsókn málsins, sem virðist umfangsmikið, á algeru frumstigi. Fallist er á
það með lögreglustjóranum á Suðurnesjum að kærða kunni að torvelda rannsókn
málsins og hafa áhrif á hugsanlega samverkamenn sína haldi hún óskertu frelsi.
Með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr.
88/2008, um meðferð sakamála er því fallist á kröfu lögreglustjóra en
gæsluvarðahaldinu markaður skemmri tími en krafist er og nánar greinir í
úrskurðarorði.
Úrskurð þennan kveður
upp Finnbogi H. Alexandersson héraðsdómari.
Ú
r s k u r ð a r o r ð:
Kærði, X, kt. [...], sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 8. júní 2012,
kl. 16:00.
Kærða sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu
stendur.