Hæstiréttur íslands
Mál nr. 417/2000
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Miðvikudaginn 22. nóvember 2000. |
|
Nr. 417/2000. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík(Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Karl Georg Sigurbjörnsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Gunnlaugur Claessen.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 17. nóvember 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 20. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 15. nóvember 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 10. janúar 2001 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 15. nóvember 2000.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess, með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, að X verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi, frá lokum þess gæsluvarðhalds sem hann nú sætir en lýkur í dag kl. 16:00, uns dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 10. janúar 2001, kl. 16:00.
[ . . . ]
Samkvæmt gögnum málsins hefur kærði viðurkennt aðild sína að innflutningi á rúmum 8 kg af amfetamíni og verður því fallist á það með lögreglustjóra að sterkur grunur sé um að hann hafi framið brot er geti að lögum varðað allt að 10 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a alm. hegningarlaga, og að brotið sé þess eðlis að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Skilyrðum 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála er því fullnægt og verður því krafa lögreglustjóra tekin til greina eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði. Ekki eru efni til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma en krafist er.
Ragnheiður Bragadóttir settur héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 10. janúar nk., kl. 16:00.