Hæstiréttur íslands

Mál nr. 291/2014


Lykilorð

  • Kærumál
  • Málskostnaður


                                                                                              

Mánudaginn 26. maí 2014.

Nr. 291/2014.

Helga Laufey Guðmundsdóttir

(Þórður Heimir Sveinsson hdl.)

gegn

Íslandsbanka hf.

(enginn)

Kærumál. Málskostnaður.

H kærði úrskurð héraðsdóms þar sem mál Í hf. gegn H var fellt niður og Í hf. gert að greiða H 75.000 krónur í málskostnað. Var tekið fram í hinum kærða úrskurði að með nefndri fjárhæð hefði ekki verið tekið tillit til reglna um virðisaukaskatt. H krafðist hærri málskostnaðar úr hendi Í hf. sem tæki mið af umfangi málsins, hagsmununum sem í húfi væru og tímaskýrslu lögmanns H. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að samkvæmt ákvæðum XXI. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála yrði málskostnaður dæmdur einum málsaðila úr hendi annars til að bæta þeim fyrrnefnda að fullu eða nokkru kostnað hans af rekstri dómsmáls. Þegar sú fjárhæð væri ákveðin yrði meðal annars að líta til raunverulegs eða áætlaðs kostnaðar aðila að flutningi málsins, þar á meðal kostnaðar vegna virðisaukaskatts af endurgjaldi fyrir þjónustu lögmanns samkvæmt lögum nr. 50/1998 um virðisaukaskatt. Að þessu gættu og að virtu umfangi málsins var Í hf. gert að greiða H 300.000 krónur í málskostnað í héraði. 

Dómur hæstaréttar

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Benedikt Bogason og Þorgeir Örlygsson.  

Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. apríl 2014 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 28. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 8. apríl 2014 þar sem mál varnaraðila á hendur sóknaraðila var fellt niður og varnaraðila gert að greiða sóknaraðila 75.000 krónur í málskostnað. Kæruheimild er í g. lið 1. mgr. 143. gr. laga nr.  91/1991 um meðferð einkamála. Sóknaraðili krefst þess að ,,hinum kærða úrskurði verði hrundið og breytt og varnaraðili dæmdur til greiðslu málskostnaðar sóknaraðila að skaðlausu, eða að mati dóms.“ Þá krefst hún kærumálskostnaðar.

Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti.

Varnaraðili höfðaði mál þetta 5. mars 2013 og krafðist þess að staðfestur yrði veðréttur sinn samkvæmt tryggingarbréfi 7. mars 2000 í fasteign sóknaraðila að Spóaási 22 í Hafnarfirði til tryggingar skuld Ocean Direct ehf. við varnaraðila. Sóknaraðili tók til varna og krafðist þess aðallega að málinu yrði vísað frá dómi en til vara að kröfu varnaraðila yrði hafnað. Í þinghaldi 8. nóvember 2013 krafðist varnaraðili þess að málinu yrði frestað þar til dæmt hefði verið um samkynja mál sem rekið væri fyrir Hæstarétti. Með úrskurði 27. sama mánaðar var fallist á þá kröfu. Úrskurðinum var skotið til Hæstaréttar sem með dómi 20. janúar 2014 í máli nr. 797/2013 felldi hann úr gildi og lagði fyrir héraðsdóm að taka málið til meðferðar um frávísunarþátt þess. Í þinghaldi 18. mars sama ár lýsti lögmaður varnaraðila því yfir að hann felldi málið niður og krafðist sóknaraðili þá málskostnaðar og í kjölfarið gekk hinn kærði úrskurður.

Með vísan til c. liðar 1. mgr. 105. gr. laga nr. 91/1991 er staðfest ákvæði hins kærða úrskurðar um niðurfellingu málsins. Jafnframt er staðfest sú niðurstaða að varnaraðila beri að greiða sóknaraðila málskostnað, sbr. 2. mgr. 130. gr. sömu laga.

Í hinum kærða úrskurði var kveðið á um skyldu varnaraðila til að greiða sóknaraðila málskostnað sem þótti þar hæfilega ákveðinn 75.000 krónur og tekið fram að þá hefði ekki verið tekið tillit til reglna um virðisaukaskatt. Eins og greinir í dómi Hæstaréttar 24. mars 1997 í máli nr. 119/1997, sem birtur er í dómasafni réttarins það ár á bls. 1106, verður málskostnaður samkvæmt ákvæðum XXI. kafla laga nr.  91/1991 dæmdur einum málsaðila úr hendi annars til að bæta þeim fyrrnefnda að fullu eða nokkru kostnað hans af rekstri dómsmáls. Þegar sú fjárhæð er ákveðin í niðurstöðu dómsúrlausnar verður meðal annars að líta til raunverulegs eða áætlaðs kostnaðar aðilans af flutningi málsins, sbr. a. lið 1. mgr. 129. gr. laga nr. 91/1991, þar á meðal kostnaðar sem hann kann að þurfa að bera vegna virðisaukaskatts af endurgjaldi fyrir þjónustu lögmanns síns samkvæmt lögum nr. 50/1998 um virðisaukaskatt. Að þessu gættu og að virtu umfangi málsins verður varnaraðila gert að greiða sóknaraðila 300.000 krónur í málskostnað í héraði.

Varnaraðila verður gert að greiða sóknaraðila kærumálskostnað eins og greinir í dómsorði.

Dómsorð:

Ákvæði hins kærða úrskurðar um að málið sé fellt niður er staðfest.

Varnaraðili, Íslandsbanki hf., greiði sóknaraðila, Helgu Laufeyju Guðmundsdóttur, 300.000 krónur í málskostnað í héraði.

Varnaraðili greiði sóknaraðila 250.000 krónur í kærumálskostnað.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 8. apríl 2014.

                Mál þetta var þingfest 20. mars 2013 og tekið til úrskurðar 18. mars sl. um kröfu stefnanda um niðurfellingu málsins og ágreining aðila um málskostnað.

                Stefnandi er Íslandsbanki hf., Kirkjusandi 2, Reykjavík, en stefnda er Helga Laufey Guðmundsdóttir, Spóaási 22, Hafnarfirði.

                Stefnandi gerir þær kröfur að staðfestur verði veðréttur hans samkvæmt veðtryggingabréfi, útg. 7. mars 2000, allsherjarveð tryggðu upphaflega með 1. veðrétti í fasteigninni Spóaási 22, Hafnarfirði, af höfuðstól 6.000.000 króna til tryggingar skuld Ocean Direct ehf. við stefnanda. Þá krefst stefnandi málskostnaðar.

                Stefnda krefst sýknu og málskostnaðar.

                Í þinghaldi 18. mars sl. krafðist stefnandi þess að málið yrði fellt niður með vísan til c-liðar 1. mgr. 105. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Stefnda ítrekaði kröfu sína um málskostnað og var málið síðan tekið til úrskurðar. Samkvæmt 2. mgr. 105. gr. laga nr. 91/1991 skal kveða upp úrskurð um málskostnað og niðurfellingu málsins.

                Málið er fellt niður. Málskostnaður til handa stefndu þykir hæfilega ákveðinn 75.000 krónur og hefur þá ekki verið tekið tillit til reglna um virðisaukaskatt.

                Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð

                Máli er fellt niður.

                Stefnandi, Íslandsbanki hf., greiði stefndu, Helgu Laufeyju Guðmundsdóttur, 75.000 krónur í málskostnað.