Hæstiréttur íslands
Mál nr. 369/2012
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Miðvikudaginn
30. maí 2012. |
|
Nr.
369/2012. |
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Óli
Á Hermannsson fulltrúi) gegn X (Jóhannes Árnason hdl.) |
Kærumál.
Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi,
á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var
staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Viðar Már Matthíasson,
Greta Baldursdóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 26. maí
2012 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 29. sama mánaðar. Kærður er
úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 26. maí 2012, þar sem varnaraðila var gert að
sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 8. júní 2012 klukkan 16 og einangrun
meðan á gæsluvarðhaldinu stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga
nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði
úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður
skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann
staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 26. maí 2012.
Lögreglustjórinn á
Suðurnesjum hefur í dag krafist þess að kærða, X, kt.
[...], verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að
sæta gæsluvarðhaldi og einangrun allt til mánudagsins 11. júní 2012, kl. 16:00.
Kærði mótmælir kröfunni, en krefst þess til vara að gæsluvarðahaldinu
verði markaður skemmri tími en krafist er
Í greinargerð lögreglustjórans á Suðurnesjum kemur fram að í
gær þann 25. maí 2012 kl. 16:38 hafi A, kt. [...] komið
til landsins með flugi frá Kaupmannahöfn, Danmörku. Tollgæslan í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar hafi haft afskipti af A ásamt kærasta hennar B, fd.
[...], dönskum ríkisborgara.
Þegar tekið var Itemiser stroksýni úr tösku sem A hafði meðferðis hafi
komið fram há svörun við kókaín. Er stungið var í töskuna hafi mátt sjá hvítt
duft, ætlað kókaín.
Tæknideild
lögreglustjórans á Höfuðborgarsvæðinu sé að rannsaka meint fíkniefni og muni niðurstöðurstöður liggja fyrir á næstunni en um er að ræða
nokkurt magn meintra fíkniefna.
Lögreglustjórinn á
Suðurnesjum hafi upplýsingar um að kærði og Y, kærasta kærða, eigi aðild að
innflutningi meintra fíkniefna. A sé móðir Y. Kærði hafi ásamt kærustu sinni
verið handtekinn í gær vegna rannsóknar málsins. Kærði hafi verið yfirheyrður
einu sinni frá handtöku sinni. Hann hafi veitt lögreglu takmarkaðar upplýsingar
og neitað að mestu að tjá sig við lögreglu. Y hafi verið yfirheyrð vegna
málsins og hafi hún viðurkennt að eiga aðild að innflutningi fíkniefnanna.
Rannsókn þessa máls sé
á algjöru frumstigi. Meðal þess sem rannsaka þurfi séu ferðir kærða og tengsl
kærða við hugsanlega vitorðsmenn á Íslandi og eða erlendis auk annarra atriða.
Magn hinna meintu fíkniefna, sem þegar hafa fundist, þyki eindregið benda til
þess að hin meintu fíkniefni hafi verið ætluð til sölu og dreifingar og að
háttsemi hans kunni að varða við ákvæði 173. gr. a almennra hegningarlaga nr.
19, 1940 auk ákvæða laga nr. 65, 1974 um ávana- og fíkniefni. Lögregla telji að
ætla megi að kærði kunni að torvelda rannsókn málsins og hafa áhrif á samseka
gangi hann laus.
Þess sé krafist að
kærða verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldi skv. b-lið 1. mgr. 99. gr.
laga nr. 88, 2008.
Með vísan til alls
framangreinds, rannsóknarhagsmuna, a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88, 2008 um
meðferð sakamála, 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, laga nr. 65,
1974 um ávana og fíkniefni, telji lögreglustjóri brýna rannsóknarhagsmuni
standa til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi og einangrun allt
til mánudagsins 11. júní 2012 kl. 16.00.
Samkvæmt
rannsóknargögnum málsins er kærði undir rökstuddum grun um að hafa gerst sekur
um háttsemi sem varðað getur fangelsi samkvæmt 173. gr. a almennra
hegningarlaga nr. 19/1940 og lögum nr. 65/1974 um áana- og fíkniefni. Samkvæmt
greinargerð lögreglustjóra er rannsókn málsins, sem virðist umfangsmikið, á
algeru frumstigi. Fallist er á það með lögreglustjóranum á Suðurnesjum að kærði
kunni að torvelda rannsókn málsins og hafa áhrif á hugsanlega samverkamenn sína
haldi hann óskertu frelsi. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr.
99. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála er því fallist á kröfu
lögreglustjóra en gæsluvarðahaldinu markaður skemmri tími en krafist er og
nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð þennan kveður
upp Finnbogi H. Alexandersson héraðsdómari.
Ú
r s k u r ð a r o r ð:
Kærði, X, kt. [...], sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 8. júní 2012,
kl. 16:00.
Kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu
stendur.