Hæstiréttur íslands
Mál nr. 465/2006
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Föstudaginn 25. ágúst 2006. |
|
Nr. 465/2006. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík(Ingimundur Einarsson varalögreglustjóri) gegn X(Guðrún Sesselja Arnardóttir hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 24. ágúst 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 22. ágúst 2006, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 1. september 2006 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Þá krefst hún kærumálskostnaðar.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Samkvæmt gögnum málsins fundust rúmlega 160 grömm af kókaíni innvortis í varnaraðila við komu hennar til Íslands 21. ágúst 2006, auk þess sem samferðamaður hennar hefur viðurkennt að hafa haft um 200 grömm af sama efni meðferðis. Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 22. ágúst 2006.
Ár 2006, þriðjudaginn 22. ágúst, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Sigrúnu Guðmundsdóttur héraðsdómara, kveðinn upp svofelldur úrskurður.
Lögreglan í Reykjavík hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, [kt. og heimilsfang], sæti gæsluvarðhaldi til þriðjudagsins 5. september 2006, kl. 16:00
Í greinargerð lögreglu kemur fram að ávana- og fíkniefnadeild rannsaki meint fíkniefnabrot sem varði innflutning á fíkniefnum til landsins frá Amsterdam. X og A, [kt.], hafi verið handtekin í gær kl. 16:58 á Keflavíkurflugvelli eftir tollskoðun eftir að fíkniefnin höfðu fundist í fórum þeirra. Sé nánar vísað til upplýsingaskýrslu Ævars Pálma Pálmasonar, rannsóknarlögreglumanns, dags. 21. þ.m.
Kærða hafi verið yfirheyrð í dag þar sem hún viðurkenndi að hafa tekið við kókaíni og flutt innvortis til landsins og hafi gefið þá skýringu að hún hefði ákveðið að taka við fíkniefnunum og flytja til landsins til að losna við fíkniefnaskuldir. Kærða hafi greint nánar frá ferðalagi sínu með A, kærða hafi verið óstöðug í framburði og kvaðst ekki muna einstök atriði sem hún var spurð um. Kærða hafi greint frá því að hún hafi haft vitneskju um að A hefði líka tekið við fíkniefnum og flutt með sér til landsins. Sé nánar vísað til framburðarskýrslu kærðu, dags. 22. þ.m. Fyrir liggi yfirheyrsluskýrsla af A en nánar sé vísað til skýrslunnar um það sem þar kemur fram.
Rannsókn málsins sé á frumstigi en nauðsynlegt sé að yfirheyra kærðu frekar og fleiri einstaklinga sem kunna að tengjast málinu eða geta veitt upplýsingar við rannsóknina. Um sé að ræða talsvert magn fíkniefna sem víst þyki að hafi átt að afhenda vitorðsmönnum hér á landi og efnið hafi átt að fara í sölu- og dreifingu hér á landi. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærða gangi laus. Meint brot kærðu varði fangelsisrefsingu ef sök sannast.
Sakarefnið sé talið geta varðað við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974. Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.
Kærða hefur viðurkennt innflutning á kókaíni og gefið þá skýringu að hún hefði ákveðið að flytja inn fíkniefni til landsins til þess að losna við fíkniefnaskuldir. Rannsókn málsins er á frumstigi. Nauðsyn ber til að yfirheyra kærðu frekar og aðra er geta veitt upplýsingar svo og að afla gagna. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991verður krafa lögreglu því tekin til greina eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð :
Kærða, X, [kt. og heimilisfang], sæti gæsluvarðhaldi til föstudagsins 1. september 2006, kl. 16:00.