Hæstiréttur íslands
Mál nr. 41/2015
Lykilorð
- Kærumál
- Kæra
- Frávísun frá Hæstarétti
|
|
Föstudaginn 16. janúar 2015 |
|
Nr. 41/2015. |
Ákæruvaldið (Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari) gegn X (Brynjólfur Eyvindsson hdl.) |
Kærumál. Kæra. Frávísun frá Hæstarétti.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem ákvörðun innanríkisráðherra um framsal X til Póllands var staðfest. Málinu var vísað frá Hæstarétti þar sem kæran uppfyllti ekki áskilnað 2. mgr. 193. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma Helgi I. Jónsson hæstaréttardómari og Guðrún Erlendsdóttir og Karl Axelsson settir hæstaréttardómarar.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. janúar 2015 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 15. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. janúar 2015, þar sem staðfest var ákvörðun innanríkisráðuneytisins 17. nóvember 2014 um að framselja varnaraðila til Póllands. Kæruheimild er í 24. gr. laga nr. 13/1984 um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Samkvæmt 2. mgr. 193. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála skal í skriflegri kæru til héraðsdómara greint frá því hvaða úrskurður sé kærður, kröfu um breytingu á honum og ástæður sem kæran er reist á. Í kæru varnaraðila var ekki gerð grein fyrir þeim ástæðum sem hún var reist á. Kæran fullnægir því ekki skilyrðum fyrrgreinds lagaákvæðis og verður málinu samkvæmt því vísað frá Hæstarétti.
Samkvæmt 2. mgr. 16. gr. laga nr. 13/1984 greiðist kærumálskostnaður úr ríkissjóði, þar með talin þóknun skipaðs réttargæslumanns varnaraðila vegna meðferðar málsins fyrir Hæstarétti, sem ákveðin verður eins og í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Máli þessu er vísað frá Hæstarétti.
Kærumálskostnaður greiðist úr ríkissjóði, þar með talin þóknun skipaðs réttargæslumanns varnaraðila, Brynjólfs Eyvindssonar héraðsdómslögmanns, 124.000 krónur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. janúar 2015.
Ár 2015, föstudaginn 9. janúar er á dómþingi héraðsdóms Reykjavíkur, sem haldið er í Dómhúsinu við Lækjartorg, kveðinn upp úrskurður um kröfu X um það að úrskurðað verði, hvort fyrir hendi séu skilyrði laga um framsal sakamanna o.fl. nr. 13, 1984 til þess að hann verði framseldur til Póllands við að beiðni þarlendra dómsmálayfirvalda. Málið var tekið til úrskurðar í gær, en það barst dóminum með bréfi sóknaraðila, ríkissaksóknara, hinn 5. desember sl.
Sóknaraðili krefst þess að framangreind ákvörðun innanríkisráðherra verði staðfest en varnaraðili krefst þess að ákvörðunin verði felld úr gildi.
Málavextir eru þeir að innanríkisráðherra ákvað 17. nóvember sl. að fallast á beiðni dómsmálayfirvalda í Póllandi um að framselja til Póllands X, pólskan ríkisborgara, sem hér dvelst. Varnaraðila var kynnt þessi ákvörðun 24. nóvember sl. og krafðist hann samdægurs úrskurðar dómsins um hana. Í gögnum málsins kemur fram að beiðni pólskra yfirvalda er gerð í krafti ákvörðunar héraðsdóms í [...] þar í landi, 11. desember 2013, um það að varnaraðili verði látinn afplána 7 mánaða og 15 daga fangelsi, eftirstöðvar refsingar samkvæmt þremur dómum sem hann hlaut 30. janúar og 28. apríl 2004 og loks 24. október 2010 fyrir ýmisleg skjalabrot samkvæmt 270. og 275. gr. pólskra hegningarlaga. Jafnframt kemur þar fram að varnaraðila hafði verið veitt skilorðsbundin reynslulausn af refsingunni en reynslulausnin verið endanlega felld niður með úrskurði yfirréttar í [...], 19. apríl 2012. Handtökuskipun var gefin út á hendur varnaraðila 5. mars 2013 af héraðsdóminum í [...].
Brot þau sem varnaraðila var refsað fyrir í Póllandi hefðu varðað hann fangelsisrefsingu í allt að 8 ár samkvæmt 1. mgr. 155. gr. íslenskra hegningarlaga nr. 19, 1940. Refsing varnaraðila telst ófyrnd sbr. 1. og 5. mgr. 83. gr. sömu laga. Þá liggur fyrir að framsalsbeiðnin barst íslenskum yfirvöldum eftir diplómatískum leiðum.
Dómurinn lítur svo á að skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 3. gr. og skilyrði 12. gr. laga um framsal sakamanna o.fl. séu uppfyllt. Þá hefur ekkert komið fram um það í málinu að ákvæði 5. mgr. 3. gr., eða 6. og 7. gr. framsalslaga eigi við í því. Ber því að synja kröfu varnaraðila um það að felld verði úr gildi ákvörðun innanríkisráðuneytisins 17. nóvember sl. um að framselja hann til Póllands og taka jafnframt til greina kröfu sóknaraðila um að staðfesta þá ákvörðun.
Með vísan til 2. mgr. 16. gr. framsalslaga greiðist þóknun réttargæslumanns varnaraðila, Brynjólfs Eyvindssonar hdl., úr ríkissjóði og þykir hún hæfilega ákveðin 450.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari kveður upp þennan úrskurð.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð:
Kröfu varnaraðila, X, er synjað.
Staðfest er ákvörðun innanríkisráðuneytisins, 17. nóvember 2014, um að framselja varnaraðila til Póllands.
Þóknun réttargæslumanns varnaraðila, Brynjólfs Eyvindssonar hdl., 450.000 krónur, greiðist úr ríkissjóði.