Hæstiréttur íslands

Mál nr. 139/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
  • Gæsluvarðhald. D. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Miðvikudaginn 10. mars 2010. 

Nr. 139/2010.

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir fulltrúi)

gegn

X

(Bragi Björnsson hdl.)                           

Kærumál. Gæsluvarðhald. B. og d. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli b. og d. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 8. mars 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 9. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 8. mars 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi meðan áfrýjunarfrestur dóms í máli Héraðsdóms Reykjaness nr. S-1064/2009 stendur yfir, allt til mánudagsins 5. apríl 2010 klukkan 16:00. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að honum verði gert að sæta farbanni en að því frágengnu að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur eins og í dómsorði greinir.

Dómsorð:

Varnaraðili, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi meðan áfrýjunarfrestur dóms í máli Héraðsdóms Reykjaness nr. S-1064/2009 stendur, en þó ekki lengur en til mánudagsins 5. apríl 2010 klukkan 16.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 8. mars 2010.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...],[...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi, á meðan áfrýjunarfrestur samkvæmt 199. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, í máli S-1064/2009 stendur, en þó eigi lengur en til þriðjudagsins 6. apríl nk. kl. 16:00.

Í greinargerð lögreglustjóra segir að með ákæru ríkissaksóknara dagsettri 29. desember 2009 var höfðað sakamál á hendur X og fleiri mönnum. Er þeim gefið að sök mansal gagnvart stúlkunni A, 19 ára litháískum ríkisborgara, sem beitt var ólögmætri nauðung, frelsissviptingu, og ótilhlýðilegri meðferð áður en og þegar  hún var send til Íslands, sem og í meðförum þeirra hér á landi, sem tóku við stúlkunni, fluttu hana og hýstu í því skyni að notfæra sér hana kynferðislega. Er brot dómfelldu aðallega heimfært til 1. tl. 1. mgr. 227. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 5. gr. laga nr. 40/2003, en til vara við sama ákvæði, sbr. 1. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga. 

Dómfelldi hefur sætt gæsluvarðhaldi í þágu málsins frá 14. október sl. Lögreglustjóri vísar til hættumats greiningardeildar ríkislögreglustjóra þar sem fram kemur að vitnum í málinu, þ. á m. brotaþola, stafi hætta af ákærða. Verði því að telja að vitnunum stafi veruleg hætta af dómfellda verði hann látinn laus. Þá er vísað til þess að dómfelldi sé erlendur ríkisborgari og þyki hætta vera á því að muni reyna að komast úr landi eða leynast eða koma sér með öðrum hætti undan málssókn. Loks vísar lögreglustjóri til dóms yfir dómfellda frá því í dag.

Um lagarök vísar lögreglustjóri til b- og d-liða 1. mgr. 95. gr., 3. mgr. 97. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 199. gr. sömu laga.

Af hálfu dómfellda er kröfu um gæsluvarðhald mótmælt og þess krafist að henni verði hafnað.

Samkvæmt 3. mgr. 97. gr. laga nr. 88/2008 lýkur gæsluvarðhaldi þegar dómur hefur verið kveðinn upp í málinu. Eftir kröfu ákæranda getur dómari þó úrskurðað að gæsluvarðhald skuli haldast meðan á áfrýjunarfresti samkvæmt 199. gr. laganna stendur. Dómfelldi var fyrr í dag dæmdur til að sæta fangelsi í 5 ár. Hann hefur lýst því yfir að hann taki sér lögmæltan fjögurra vikna áfrýjunarfrest í málinu. Dómfelldi hefur áður sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli b- og d-liða 95. gr. laganna. Með tilliti til þess og með því að skilyrði 3. mgr. 97. gr. eru uppfyllt, verður krafan um gæsluvarðhald tekin til greina. Áfrýjunarfrestur samkvæmt 199. gr. laga nr. 88/2008 er fjórar vikur og þykir því rétt að marka gæsluvarðhaldinu ekki lengri tíma en til 5. apríl nk. kl. 16:00.

Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

                Ákærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi meðan áfrýjunarfrestur í máli Héraðsdóms Reykjaness nr. S-1064/2009 stendur yfir, allt til mánudagsins 5. apríl nk. kl. 16:00.