Hæstiréttur íslands
Mál nr. 290/2017
Lykilorð
- Kærumál
- Farbann
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma Benedikt Bogason hæstaréttardómari og Ingibjörg Benediktsdóttir og Ingveldur Einarsdóttir settir hæstaréttardómarar.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 10. maí 2017 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 8. maí 2017 þar sem varnaraðila var gert að sæta farbanni meðan mál hans er til meðferðar í héraði, en þó eigi lengur en til föstudagsins 30. júní 2017 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að farbanninu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 8. maí 2017.
Ríkissaksóknari hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að varnaraðila, X, kennitala [...], verði gert að sæta farbanni á meðan mál hans er til meðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjaness, þó eigi lengur en til föstudagsins 30. júní 2017, kl. 16:00.
Varnaraðili mótmælir kröfu ríkissaksóknara og krefst þess aðallega að henni verði hafnað en til vara að farbanni verði markaður skemmri tími en krafist er.
Í greinargerð með kröfunni kemur fram að í ákæru ríkissaksóknara, útgefinni 20. janúar 2014, sé varnaraðila gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot; „með því að hafa í ágúst 2011, ásamt þeim A, kt. [...] og B, kt. [...], staðið að innflutningi til Íslands á samtals 30.225 töflum með fíkniefninu MDMA (ecstasy), til söludreifingar í ágóðaskyni. Ákærði fór til Amsterdam og afhenti þar A, sem B hafði fengið til verksins, fíkniefnin í því skyni að þau yrðu flutt til Íslands. Jafnframt sá ákærði um að greiða hluta ferðakostnaðar og uppihalds hans og A vegna ferðarinnar. Fíkniefnin flutti A til Íslands sem farþegi með flugi [...] frá Kaupmannahöfn þriðjudaginn 23. ágúst 2011.“ Háttsemi varnaraðila sé í ákæru heimfærð undir ákvæði 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ríkissaksóknari hafði áður, þann 21. maí 2013, gefið út sameiginlega ákæru á hendur X, A og B vegna þeirrar háttsemi sem ákæran frá 20. janúar 2014 varðar. Við þingfestingu í Héraðsdómi Reykjaness þann 11. júní 2013, sbr. mál nr. S-618/2013, hafi m.a. verið bókað eftir skipuðum verjanda X, Guðmundi St. Ragnarssyni hdl., að X væri staddur erlendis og ekki væntanlegur til Íslands fyrr en í ágúst eða september 2013. Í þinghaldi þann 4. september 2013 hafi m.a. lögð fram gögn um að X sætti farbanni í [...]. Í þinghaldi 27. nóvember 2013 hafi verið bókað að ekki hefði tekist að fá varnaraðila X fyrir dóm. Í því þinghaldi lagði sækjandi til að dómari skildi málið í sundur og dæmdi þátt X sérstaklega en því hafi dómarinn hafnað. Í þinghaldi þann 20. janúar 2014 hafi m.a. verið bókað í þingbók: „Sækjandi óskar bókað að í ljósi afstöðu dómsins þar sem ósk ákæruvaldsins um að skilja málið í sundur var hafnað og í ljósi þess að varnaraðili X er í farbanni í [...] er ljóst að málið muni dragast meðan beðið er eftir honum. Því hefur ákæruvaldið ákveðið að afturkalla ákæru málsins og gefa út nýjar ákærur á hendur ákærðu. Nýjar ákærur verða gefnar út í dag og sendar dóminum til meðferðar.“
Á grundvelli ákærunnar frá 20. janúar 2014 var þingfest sakamál í Héraðsdómi Reykjaness hinn 5. mars 2014, sem mál nr. S-98/2014, og var þá bókað í þingbók að ákæra málsins og fyrirkall hefðu verið birt á tilskilinn hátt. Ákæra ásamt fyrirkalli Héraðsdóms Reykjaness voru aftur send til birtingar og birt fyrir varnaraðila í [...] og í framhaldi þess var málið tekið fyrir að nýju í Héraðsdómi Reykjaness hinn 27. janúar 2016. Varnaraðili var þá ekki mættur en Sveinn Andri Sveinsson hrl. var að ósk varnaraðila skipaður verjandi hans. Í þinghaldinu var bókað að varnaraðili væri búsettur í [...] og upplýsti verjandi hans að varnaraðili myndi mögulega koma til Íslands í júní eða júlí 2016 en ekkert væri þó fastákveðið í þeim efnum. Var málinu frestað um óákveðinn tíma.
Frá þingfestingu málsins hafi varnaraðili ekki gefið sig fram, hvorki við ákæruvaldið né héraðsdóm, og hafi ákæruvaldinu engar upplýsingar borist um dvöl hans hér á landi fyrr en þær upplýsingar hafi borist frá lögregluyfirvöldum á Suðurnesjum 7. apríl sl. að svo virtist sem varnaraðili væri staddur hér á landi. Var varnaraðili handtekinn í Leifsstöð 10. apríl sl. er hann var á leið úr landi.
Í kjölfar handtöku varnaraðila 10. apríl sl. hafi ríkissaksóknari sett fram kröfu um að varnaraðila yrði gert að sæta farbanni. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. R-204/2017, sem staðfestur hafi verið með dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 233/2017, hafi varnaraðila verið gert að sæta farbanni til dagsins í dag, á þeim forsendum að talið væri að ætla mætti að varnaraðili myndi reyna að komast úr landi, leynast eða koma sér undan málssókn með öðrum hætti færi hann frjáls ferða sinna og þótti því nauðsynlegt að tryggja nærveru hans á meðan sakamáli hans væri ekki lokið.
Nýtt fyrirkall hafi verið gefið út í sakamáli nr. 98/2014 og birt fyrir varnaraðila þann 12. apríl 2017. Þinghald var haldið í málinu þann 19. apríl 2017 og mætti þá varnaraðili ásamt verjanda sínum og neitaði sök. Nýtt þinghald hafi farið fram í málinu þann 5. maí 2017 og var málinu þá á ný frestað og ákveðið að næsta þinghald skuli fara fram 17. maí nk. Hafi ákæruvaldið væntingar um að í framhaldi þess þinghalds verði unnt að hefja aðalmeðferð í málinu og að aðalmeðferð málsins fari fram nú í lok maímánaðar.
Í ljósi þess að ákæruvaldið hafi samkvæmt framangreindu allt frá árinu 2013 reynt að fá varnaraðila fyrir dóm vegna málsins en það ekki tekist vegna dvalar hans erlendis, þá telur ríkissaksóknari sömu líkur vera fyrir því nú, og er varnaraðili var handtekinn á leið úr landi þann 10. apríl sl. og úrskurðaður í farbann, að hann muni fara aftur af landi brott og koma áfram í veg fyrir að mál hans geti hlotið meðferð fyrir dómstólum. Af þeim sökum telur ríkissaksóknari nauðsynlegt að varnaraðila verði gert að sæta áfram farbanni til að unnt verði að ráða málum hans til lykta með dómi.
Er vísað til þess að sakarefnið varði við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Um heimild til farbanns vísar ríkissaksóknari til b-liðar 1. mgr. 95. gr., sbr. 100. gr., laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Varnaraðili er undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við. Er varnaraðili borinn alvarlegum sökum í sakamálinu nr. S-98/2014, en í ákæru málsins er honum gefið að sök brot gegn 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem varðað getur allt að 12 ára fangelsi. Þinghald í málinu var haldið 19. apríl sl. og verður næsta þinghald 17. maí nk. Þess er að vænta að aðalmeðferð málsins fari fram í lok þessa mánaðar og mun varnaraðili eiga að gefa skýrslu við aðalmeðferð málsins. Að öllum atvikum virtum þykir mega ætla að varnaraðili muni reyna að komast úr landi, leynast eða koma sér undan málssókn með öðrum hætti fari hann frjáls ferða sinna. Er því fallist á það með ríkissaksóknara að nauðsynlegt sé að tryggja nærveru varnaraðila á meðan sakamáli hans er ekki lokið, enda telst fullnægt skilyrðum b. liðar 1. mgr. 95. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála til að varnaraðila verði bönnuð för frá landinu. Krafa ríkissaksóknara er því tekin til greina á þann hátt sem í úrskurðarorði greinir.
Úrskurð þennan kveður upp Jón Höskuldsson héraðsdómari.
Ú r s k u r ð a r o r ð:
Varnaraðili, X, skal sæta farbanni meðan mál hans nr. S-98/2014 er til meðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjaness, þó eigi lengur en til föstudagsins 30. júní 2017 kl. 16:00.