Hæstiréttur íslands
Mál nr. 54/2012
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Mánudaginn 23. janúar 2012. |
|
Nr. 54/2012. |
Ákæruvaldið (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi áfram, á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Viðar Már Matthíasson, Greta Baldursdóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 19. janúar 2012 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 20. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 19. janúar 2012, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 2. febrúar 2012 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili kærði úrskurðinn fyrir sitt leyti 19. janúar 2012 með sömu kæruheimild og varnaraðili. Hann krefst þess að varnaraðili verði látinn sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 16. febrúar 2012 klukkan 16.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 19. janúar 2012.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess, að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að [X], verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, allt til fimmtudagsins 16. febrúar 2012 kl. 16:00.
Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram, að kærði hafi verið handtekinn aðfaranótt 27. október sl. í kjölfar þess, að lögregla hafi haft af honum afskipti, þar sem hann hafi verið að aka bifreiðinni [...] með skráningarnúmerunum [...] en bifreiðin, sem og skráningarnúmerin, höfðu áður verið tilkynnt stolin. Kærði hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald allt til fimmtudagsins 24. nóvember 2011 kl. 16:00 með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur nr. R-493/2011. Þann 24. nóvember sl. hafi gæsluvarðhaldið verið framlengt með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur nr. R-561/2011 allt til fimmtudagsins 22. desember 2011 kl. 16:00. Þann dag hafi gæsluvarðhaldið verið framlengt með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur nr. R-626/2011 allt til fimmtudagsins 19. janúar 2012 kl. 16:00, staðfest með dómi Hæstaréttar nr. 692/2011.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi gefið út ákæru á hendur kærða þann 22. nóvember sl. Þá hafi ríkissaksóknari gefið út ákæru á hendur kærða vegna fjögurra ránsbrota þann 30. nóvember sl. Hafi ákærurnar verið sameinaðar fyrir dómi og hafi málið verið þingfest þann 1. desember sl. Við þingfestingu málsins hafi ákærði viðurkennt sök að því er varði alla ákæruliði í ákæru lögreglustjóra fyrir utan eitt þjófnaðarbrot (007-2011-61678), þá hafi hann neitað sök varðandi það, sem honum sé gefið að sök með ákæruskjali ríkissaksóknara. Aðalmeðferð málsins hófst þann 19. desember sl. og hafi henni lokið þann 13. janúar sl. og málið hafi nú verið dómtekið.
Með ákæruskjali, dagsettu 22. nóvember sl., höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu mál á hendur kærða vegna eftirfarandi brota:
- 007-2011-26825
Hinn 6. maí sl. hafi verið tilkynnt um gripdeild á handtösku úr bifreið á gatnamótum Grettisgötu og Vitastígs í Reykjavík. Kærði hafi viðurkennt við skýrslutöku að hafa opnað farþegahurð bifreiðarinnar og tekið töskuna sem bílstjórinn hafði lagt frá sér í farþegasætið við hliðina á sér.
- 007-2011-59709
Kærði hafi viðurkennt við skýrslutöku hjá lögreglu að hafa 11. september sl. dælt eldsneyti að fjárhæð kr. 11.041 á bifreið með skráningarmerkinu [...] og ekið henni á brott án þess að greiða fyrir eldsneytið.
- 007-2011-59701
Kærði hafi viðurkennt við skýrslutöku hjá lögreglu að hafa 16. september sl. dælt eldsneyti að fjárhæð kr. 8.549 á bifreið með skráningarmerkinu [...] og ekið henni á brott án þess að greiða fyrir eldsneytið.
- 007-2011-60666
Kærði hafi viðurkennt við skýrslutöku hjá lögreglu að hafa 24. september sl. dælt eldsneyti að fjárhæð kr. 8.075 á bifreið með skráningarmerkinu [...] og ekið henni á brott án þess að greiða fyrir eldsneytið.
- 007-2011-61678
Kærði hafi verið kærður fyrir þjófnað með því að hafa 12. október sl. brotist inn í íbúð að Hverfisgötu [...] í Reykjavík og stolið þaðan tveimur 42“ flatskjám, tveimur bolum og derhúfu. Kærði hafi neitað sök, en samkvæmt vitnum hafi kærði verið á vettvangi umrætt sinn og hafi sést til hans bera út flatskjá úr húsinu.
- 007-2011-63565
Kærði hafi viðurkennt við skýrslutöku hjá lögreglu að hafa þann 13. október sl. stolið súrmjólk í verslun [...], Laugavegi [...], Reykjavík.
- 007-2011-63066, 007-2011-63560 og 007-2011-64086
Kærði hafi viðurkennt við skýrslutöku hjá lögreglu að hafa aðfaranótt 27. október sl. ekið bifreiðinni [...] með röngum skráningarmerkjum, sem kærði hafði áður stolið, en kærði vissi að bifreiðin var stolin og jafnframt að hafa ekið bifreiðinni undir áhrifum ávana og fíkniefna.
- 007-2011-60111
Kærði hafi viðurkennt í skýrslutöku hjá lögreglu að hafa mánudaginn 3. október sl. ekið bifreiðinni [...] undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
- 007-2011-61990
Kærði hafi viðurkennt við skýrslutöku hjá lögreglu að hafa þann 8. október sl. blekkt starfsfólk í staðgreiðsluviðskipum í verslun [...], með því að framvísa og greiða með greiðslukorti í eigu annars aðila og þannig svikið út vörur að fjárhæð kr. 89.920.
Með ákæruskjali dagsettu 30. nóvember sl. höfðaði ríkissaksóknari mál á hendur kærða vegna eftirfarandi brota:
- 007-2011-60662
Hinn 6. október sl. hafi verið tilkynnt um rán við Þórsgötu í Reykjavík. Er lögregla hafi komið á vettvang, hafi þar setið gömul kona á bekk og hafi vegfarendur verið að hlúa að henni. Kvaðst hún hafa verið á göngu er tveir einstaklingar hafi komið skyndilega aftan að henni, hrint henni og hrifsað veski hennar af henni. Kærði hafi viðurkennt við skýrslutöku hjá lögreglu að hafa átt þátt í ráninu ásamt annarri stúlku. Kærði hafi aftur á móti neitað sök fyrir dómi við aðalmeðferð málsins.
- 007-2011-60685
Hinn 6. október sl. hafi verið tilkynnt um rán í undirgöngum við Lautasmára við Fífuhvammsveg í Kópavogi. Hafði kona leitað aðstoðar á „Stöðinni“ við Hagasmára í Kópavogi. Er lögregla hafi komið þangað, hafi konan verið í miklu sjokki og kvaðst finna til eymsla í sköflungi eftir að árásaraðili hafði sparkað í hana. Kvað hún tvo aðila, mann og konu, hafa verið fyrir aftan sig, þar sem hún hafi verið að ganga í undirgöngunum og þar hafi konan ráðist á sig og þær slegist í stutta stund, en konan hafi náð að hrifsa af henni veskið og hlaupa burt. Kvað hún manninn ekki hafa ráðist á sig heldur staðið álengdar og fylgst með.
Kærði hafi viðurkennt í skýrslutöku hjá lögreglu að hafa verið þarna með stúlku og að þau hafi ákveðið í sameiningu að ná veskinu af konunni, en það hafi verið skyndiákvörðun. Kærði hafi aftur á móti neitað sök fyrir dómi við aðalmeðferð málsins.
- 007-2011-61916
Hinn 14. október sl. hafi verið óskað eftir aðstoð lögreglu að Sundhöll Reykjavíkur. Þar hafi verið kona, sem kvaðst hafa verið að koma úr sundi og verið að ganga heim til sín, er par hefði komið að henni og hrifsað til sín töskuna hennar. Hún kvaðst hafa haldið fast í töskuna og fallið fram fyrir sig, er töskunni hafi verið kippt af henni. Við skýrslutöku hjá lögreglu kvaðst kærði ekkert muna þar sem hann hafi verið undir miklum áhrifum fíkniefna. Fyrir dómi kvaðst kærði vera saklaus af þessu broti.
- 007-2011-63096
Hinn 21. október sl. hafi verið óskað eftir aðstoð lögreglu við Kirkjusand [...] í Reykjavík vegna ránstilraunar. Þar hafi verið kona, sem kvaðst hafa verið á gangi ásamt barnabarni sínu á gangstétt skammt sunnan við Íslandsbanka í Kirkjusandi, er stúlka hefði komið upp að þeim og reynt að hrifsa af henni veskið. Kvaðst hún hafa haldið fast í veskið og stúlkan togað, en við það hafi hún fallið í jörðina og lent á vinstri öxl. Stúlkan hafi svo hlaupið upp í bíl þar rétt hjá, en kærði hafi viðurkennt að hafa verið ökumaður bifreiðarinnar greint sinn og að hafa gert sér grein fyrir því hver ætlun félaga hans hefði verið. Fyrir dómi kvaðst kærði vera saklaus af þessu broti.
Kærði eigi langan sakaferil að baki og hafi margsinnis hlotið fangelsisdóma fyrir hegningarlagabrot, s.s. þjófnaði, gripdeildir, rán og líkamsárás. Þykir að mati lögreglu ljóst, að kærði hafi einbeittan brotavilja og virðist ekkert lát vera á brotastarfsemi hans.
Með vísan til framangreinds og ferils kærða telji lögregla yfirgnæfandi líkur á því að kærði muni halda brotastarfsemi áfram fari hann frjáls ferða sinna og því s+e nauðsynlegt að kærði sæti gæsluvarðhaldi á meðan mál hans sæta dómsmeðferð. Sakarefni málanna séu talin varða við 244., 245., 248., 252. og 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk umferðarlaga nr. 50/1987, en brot gegn ákvæðunum geta varðað fangelsi allt að 10 árum ef sök sannist. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
Kærði hefur setið í gæsluvarðhaldi í 12 vikur á grundvelli c-liðar 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 eða frá því hann var handtekinn 27. október sl. Samkvæmt gögnum málsins á hann að baki sér nokkuð langan sakarferil og hefur margsinnis hlotið fangelsisdóma, þ.á.m. fyrir þjófnað, gripdeild, rán og líkamsárás. Í greinargerð lögreglustjóra er rakin ætluð brotastarfsemi kærða frá 6. maí til 27. október 2011, og virðist sem hrina ætlaðra brota frá 11. september 2011 allt þar til kærði var handtekinn vera nokkuð samfelld. Þau brot eru talin varða við 244., 245., 248., 252. og 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Við brotum þessum liggur fangelsisrefsing, verði sýnt fram á sök kærða. Sakamál hefur verið höfðað á hendur kærða vegna ætlaðra brota hans og hefur verið upplýst af hálfu lögreglustjóra, að dómur verði kveðinn upp innan skamms tíma. Með vísan til framangreindra atriða og gagna málsins verður fallist á, að líkur séu til þess, að kærði haldi áfram brotastarfsemi meðan málum hans er enn ekki lokið, fari hann frjáls ferða sinna. Haggar það ekki því mati, þótt kærði hafi sýnt vilja til að snúa frá fyrra líferni sínu í gæsluvarðhaldinu. Þykja því skilyrði áframhaldandi gæsluvarðhalds vera fyrir hendi og verður því fallist á kröfu lögreglustjórans eins og nánar greinir í úrskurðarorði. Hins vegar verður ekki litið hjá því, að kærði hefur setið í gæsluvarðhaldi í 12 vikur, en óheimilt er að úrskurða sakborning til að sæta gæsluvarðhaldi í lengri tíma en 12 vikur, nema mál hafi verið höfðað gegn honum eða brýnir rannsóknarhagsmunir standi til þess, sbr. 4. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Af hálfu lögreglustjóra er farið fram á, að kærði sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi í 4 vikur, en jafnframt hefur verið upplýst, að mál hafi þegar verið höfðað á hendur kærða og muni dómur falla innan skamms tíma. Enda þótt fallist sé á, að skilyrði fyrir áframhaldandi gæsluvarðhaldi séu fyrir hendi, sbr. 4. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, þá þykir ekki ástæða til að marka því lengri tíma en þar til dómur gengur í máli hans, þó ekki lengur en til 2. febrúar nk. eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Hrannar Már S Hafberg settur héraðsdómari kvað upp úrskurð þennan.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð :
Kærði, [X], skal sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans, þó ekki lengur en til fimmtudagsins 2. febrúar 2012 kl. 16:00.