Hæstiréttur íslands
Mál nr. 57/2016
Lykilorð
- Kærumál
- Farbann
|
|
Föstudaginn 22. janúar 2016. |
|
Nr. 57/2016.
|
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Ómar Örn Bjarnþórsson hdl.) |
Kærumál. Farbann
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram farbanni á grundvelli b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma Helgi I. Jónsson hæstaréttardómari og Guðrún Erlendsdóttir og Ingveldur Einarsdóttir settir hæstaréttardómarar.
Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 21. janúar 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 19. janúar 2016 þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram farbanni allt til þriðjudagsins 2. febrúar 2016 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Sóknaraðili krefst þess að varnaraðila verði gert að sæta farbanni allt til þriðjudagsins 16. febrúar 2016 klukkan 16.
Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að farbanni verði markaður skemmri tími en kveðið var á um í hinum kærða úrskurði, en að því frágengnu að hann verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður staðfest niðurstaða hans um að fullnægt sé lagaskilyrðum til að varnaraðili sæti farbanni.
Varnaraðili er einn fjögurra manna sem sætt hafa gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á umfangsmiklu fíkniefnamáli frá 29. september 2015 til 22. desember sama ár, en frá þeim tíma hefur hann sætt farbanni. Með dómum réttarins uppkveðnum 21. janúar 2016 var þremur þeirra manna, sem sætt hafa sömu þvingunarúrræðum og varnaraðili vegna rannsóknar málsins, gert að sæta áframhaldandi farbanni til 16. febrúar 2016. Standa engin rök til þess að marka tíma farbanns varnaraðila skemmri tíma en gert var með fyrrgreindum dómum réttarins. Verður því fallist á kröfu sóknaraðila eins og nánar greinir í dómsorði.
Dómsorð:
Varnaraðili, X, sæti farbanni allt til þriðjudagsins 16. febrúar 2016 klukkan 16.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 19. janúar 2016.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess fyrir dóminum í dag að X, fæddum [...], verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta farbanni allt til þriðjudagsins 16. febrúar 2016, kl. 16:00.
Kærði mótmælir kröfu lögreglustjóra.
I
Í greinargerð með kröfu lögreglustjóra segir að lögregla hafi til rannsóknar stórfellt fíkniefnalagabrot er varði innflutning á sterkum fíkniefnum hingað til lands.
Hinn 22. september sl. hafi kærði komið hingað til lands ásamt erlendri konu á bifreiðinni [...] með ferjunni Norrænu. Kærði sé umráðamaður bifreiðarinnar [...]. Lögregla hafi haft eftirlit með bifreiðinni á meðan henni var ekið til Reykjavíkur og þaðan til Keflavíkur á tímabilinu 22.25. september sl. Föstudaginn 25. september hafi kærði farið með flugi frá Íslandi, en skilið bifreiðina eftir á bifreiðastæði við Keflavíkurflugvöll. Kærði hafi komið aftur til landsins 28. september sl. og sótt bifreiðina. Hann hafi ekið sem leið lá inn í [...] á [...] að gistiheimili við [...] í [...]. Kærði hafi þar hitt meðkærða A og hafi þeir báðir verið handteknir stuttu eftir komuna þangað. Lögregla hafi haldlagt bifreiðina og við leit í henni hafi fundist rúmlega 19,5 kg af amfetamíni og rúmlega 2,5 kg af kókaíni, falin í bifreiðinni. Alls hafi fjórir aðilar verið handteknir vegna málsins og hafi þeir allir sætt gæsluvarðhaldi um tíma í þágu rannsóknar þess.
Kærði hafi í fyrstu neitað sök við skýrslutöku hjá lögreglu. Nú hafi hann hins vegar játað að hafa flutt fíkniefni í bílnum til landsins. Í framburði kærða og meðkærða A komi fram að tveir Hollendingar hafi átt þátt í skipulagningu innflutningsins og að kærði hafi ekið bifreiðinni að beiðni þeirra og átt að fá greitt fyrir. Kærði hafi upplýst lögreglu um að hann hefði nokkrum sinnum hitt samverkamenn sína á fundum í Hollandi, áður en haldið var til Íslands, þar sem ferðin var skipulögð.
Lögreglustjóri segir kærða vera undir sterkum grun um aðild að broti sem varðað geti allt að 12 ára fangelsi. Lögregla telji kærða eiga mikla aðild að málinu og tengjast skipulagningu og flutningi fíkniefnanna hingað til lands. Um mjög mikið magn hættulegra fíkniefna sé að ræða. Því verði að telja ætlað brot kærða mjög alvarlegt og þess eðlis að uppfyllt séu í ljósi dómaframkvæmdar skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, svo fallist verði á kröfu lögreglustjóra.
Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins frá 29. september sl. í fullar 12 vikur. Þar sem mál hafi enn ekki verið höfðað á hendur honum telji lögreglustjóri í samræmi við 4. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 að ekki sé heimilt að úrskurða hann nú í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Lagaskilyrði séu hins vegar uppfyllt til þess að úrskurða hann í farbann til dagsins í dag, svo sem slagið hafi verið föstu í dómi Hæstaréttar.
Lögreglustjóri vísar til þess að til rannsóknar sé ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem varðað geti allt að 12 ára fangelsi. Krafa lögreglustjóra byggist bæði á því að skilyrði 2. mgr. 95. gr. séu uppfyllt, svo sem áður var rakið, og að fyrir hendi séu skilyrði til að úrskurða kærða í farbann á grundvelli b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Kærði sé erlendur ríkisborgari sem engin sérstök tengsl hafi við landið. Sæti hann ekki farbanni megi ætla að hann reyni að komast úr landi til að komast undan málssókn eða fullnustu refsingar. Því telji lögreglustjóri brýnt að tryggja nærveru kærða á meðan mál hans sé til meðferðar fyrir yfirvöldum hér á landi. Nauðsynlegt sé því að honum verði gert að sæta farbanni þar til mál hans er til lykta leitt.
Lögreglustjóri segir rannsókn lögreglu vera vel á veg komna. Hún sé að hluta til unnin í samstarfi við erlend yfirvöld og beinist meðal annars að því að hafa uppi á samverkamönnum kærðu í Hollandi. Einnig hafi verið óskað eftir aðstoð annarra erlendra lögregluyfirvalda. Óskað hafi verið eftir húsleitum og skýrslutökum og vinni lögregla nú að þeim aðgerðum í samstarfi við erlend yfirvöld.
II
Samkvæmt framansögðu og rannsóknargögnum málsins er fram kominn rökstuddur grunur um að kærði hafi gerst sekur um háttsemi sem varðað getur allt að 12 ára fangelsi.
Kærði er erlendur ríkisborgari með engin tengsl við Ísland svo kunnugt sé. Eins og málið liggur fyrir dómnum þykir mega ætla að kærði muni reyna að komast úr landi eða leynast ellegar koma sér með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu refsingar fari hann frjáls ferða sinna, sbr. dóm Hæstaréttar Íslands í máli nr. 852/2015 sem kveðinn var upp 23. desember sl. Skilyrði b-liðar 1. mgr. 95. gr. og 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála til þess að banna kærða brottför af landinu eru því uppfyllt. Í ljósi þess langa tíma sem liðinn er frá því málið kom upp og þeirrar samvinnu sem kærði hefur sýnt undir rannsókn málsins þykir rétt að marka farbanninu skemmri tíma en krafist er, svo sem nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, [...], skal sæta farbanni allt til þriðjudagsins 2. febrúar 2016, kl. 16:00.