Hæstiréttur íslands

Mál nr. 635/2007


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Þriðjudaginn 4

 

Þriðjudaginn 4. desember 2007.

Nr. 635/2007.

Ákæruvaldið

(Jón H. B. Snorrason, saksóknari)

gegn

X

(Guðmundur Ómar Hafsteinsson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson, Hjördís Hákonardóttir og Páll Hreinsson. 

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 29. nóvember 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. nóvember 2007, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, en þó eigi lengur en til fimmtudagsins 10. janúar 2008 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldið verði stytt verulega. 

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

       Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

                               Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. nóvember 2007.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], [heimilisfang], Reykjavík, sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 10. janúar 2008, kl. 16:00 og/eða uns dómur gengur í hans málum.

Í kröfu lögreglustjóra kemur fram að ávana- og fíkniefnadeild rannsaki ætlaðan innflutning á stórfelldu magni fíkniefna til Íslands.  Um kl. 6:00 hinn 20. september sl. hafi A og B lagt skútu við bryggju á Fáskrúðsfirði og hafi þeir verið handteknir af lögreglu í kjölfarið vegna gruns um fíkniefnamisferli, en þeir hafi reynt að koma sér undan með því að sigla skútunni frá bryggju þegar þeir hafi orðið lögreglu varir.  Um borð í skútunni hafi fundist mikið magn af fíkniefnum.  Litlu seinna hafi kærði ekið bifreiðinni Y að bryggjunni, en lögreglumenn þekkt hann sem grunaðan í þessu máli og hafi hann því verið handtekinn vegna rannsóknar málsins, en kærði hefur játað hjá lögreglu að hlutverk hans hafi verið að móttaka umrædd fíkniefni við komuna til landsins.  B og A hafi játað að hafa ætla að sigla aftur til Noregs strax eftir afhendingu fíkniefnanna.  C hafi svo átti að fá fíkniefnin afhent fyrir milligöngu D sem hafi haft það hlutverk að geyma fíkniefnin á sumarbústaðarlandi sínu.  E hafi játað að hafa pakkað umræddum fíkniefnum í íbúð í Danmörku stuttu áður en þau hafi verið flutt til landsins.

Lögregla hafi í langan tíma búið yfir upplýsingum um skipulagningu innflutnings og dreifingar fíkniefna í miklu magni, þar sem m.a. kærði sé talinn eiga hlut að máli.  Formleg lögreglurannsókn málsins hafi staðið yfir síðan í nóvember á síðasta ári og á þeim tíma hafi verið fylgst grannt með E og C og hafi það eftirlit leitt til þess að lögregla hafi handtekið kærða, A og B á Fáskrúðsfirði hinn 20. september sl. eftir að skútan hafi lagt að bryggju.  Bæði E og C hafi játað aðild sína að umræddum innflutningi, m.a. hafi C játað að hafa fjármagnað og skipulagt hann.  Við rannsókn málsins hafi m.a. komið í ljós, að C hafi tekið þátt í að senda peninga til Færeyja þegar B og A hafi verið þar vegna viðgerðar á skútunni og hafi X verið með honum í umrætt sinn.  Þetta hafi X játað við rannsókn málsins.  C hafi játað að hafa látið af hendi peninga sem notaðir hafi verið til greiðslu þess kostnaðar sem fallið hafi til við brotastarfsemi þessa. 

Gögn og upplýsingar sem fundist hafi og aflað hafi verið gefi mynd af málinu og hlutverkum þeirra sem því tengist.  Meðal þess sem hafi fundist hjá kærða, við handtöku á Fáskrúðsfirði, hafi verið gögn með upplýsingum sem svari til upplýsinga og áætlana sem séu í dagbók sem hafi fundist hjá C.  Talið sé að fíkniefnunum hafi verið pakkað í Kaupmannahöfn og hafi allmargir aðilar verið handteknir þar og yfirheyrðir vegna málsins.  Þá hafi D verið handtekinn vegna málsins en þáttur hans sé talinn hafa verið að taka við fíkniefnasendingunni frá kærða þegar hún kæmi til landsins og geyma hana á sumarhúsalóð rétt austan Hellu á Rangárvöllum.

Grunsemdir séu um að með sömu verknaðaraðferð hafi umtalsverðu magni fíkniefna verið komið til landsins með skútunni  Z til Fáskrúðsfjarðar árið 2005, en skútan sé í eigu C og bróður hans F.  Þá liggi fyrir grunur lögreglu um að samverkamenn kærða hafi notað ágóðann af sölu og dreifingu þeirra fíkniefna til þess að fjármagna þann fíkniefnainnflutning sem hafi átt sér stað hinn 20. september sl.

Rannsókn þessa máls, sem sé mjög umfangsmikil, hafi miðað ágætlega.  Rannsóknarlögreglumenn hafi yfirheyrt fjölda manns hér á landi og hafi aflað upplýsinga í samræmi við það.  Lögregla í Danmörku, Noregi og víðar í Evrópu hafi unnið að rannsókninni, bæði með rannsóknaraðgerðum, samkvæmt ósk frá íslenskum yfirvöldum, og með því að rannsóknarlögreglumenn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi unnið í nefndum löndum við hlið hinna erlendu rannsóknarlögreglumanna í þágu málsins. 

Lögreglan hafi nú þegar handtekið fjölda manns og sitji nú m.a. fjórir aðilar í gæsluvarðhaldi á Íslandi vegna rannsóknar málsins og einn hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í Færeyjum.  Enn hafi ekki öll gögn borist lögreglu erlendis frá en muni berast á næstunni.  Þá sé beðið eftir niðurstöðu Rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræðum vegna rannsóknar á fíkniefnunum.  Rannsókn málsins verði flýtt eftir föngum en nú sé unnið að úrvinnslu gagna, skjalmerkingum og gerð greinargerðar til ríkissaksóknara í samræmi við 1. mgr. 77. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.  Kærði sé undir sterkum rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnalagabroti.  Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 20. september sl., en með úrskurði héraðsdóms frá 20. september 2007, nr. R-450/2007, hafi kærði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19, 1991, um meðferð opinberra mála, til 27. september sl.  Með úrskurði héraðsdóms, nr. R-463/2007, 27. september sl., hafi kærði verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald, einnig á grundvelli a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19, 1991, til 18. október 2007.  Sá úrskurður hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar nr. 492/2007.  Með úrskurði héraðsdóms nr. R-527/2007, 18. október sl., hafi kærði verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til dagsins í dag, en á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Meint aðild kærða þyki mikil en hann sé talin tengjast skipulagningu, milligöngu og móttöku fíkniefnanna.  Um sé að ræða mjög mikið magn sterkra og hættulegra fíkniefna.  Nær öruggt þyki, að fíkniefnin hafi átt að fara í sölu og dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi.  Hið meinta brot kærða sé mjög alvarlegt.  Með tilliti til hagsmuna almennings sé þannig nauðsynlegt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan mál hans sé til meðferðar en telja verði, að ef sakborningur, sem orðið hafi uppvís að jafn alvarlegu broti og kærði, gangi laus, áður en máli lýkur með dómi, valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings.  Staða kærða í málinu þykir sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. mál Hæstaréttar nr.: 376/2006, 377/2006, 378/2006, 154/2006, 368/2005, 93/2005, 488/2004, 269/2004, 417/2000 og 471/1999, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að uppkvaðningu dóms þegar legið hafi fyrir rökstuddur grunur um beina aðild að innflutningi að miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni.  Ekki sé talin ástæða til að ætla að refsimat og réttarvitund almennings í slíkum málum hafi breyst frá því téðir dómar voru uppkveðnir og sé talið að skilyrðum 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála sé fullnægt í því máli sem hér um ræði.

Verið sé að rannsaka ætluð brot gegn fíkniefnalöggjöfinni og megi ætla, ef þau sönnuðust, myndu þau geta varðað allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.  Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19, 1991 um meðferð opinberra mála.

Með úrskurði þessa réttar uppkveðnum 18. október sl. var kærða gert að sæta gæsluvarðhaldi til kl. 16 í dag.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og með vísan til rannsóknargagna er rökstuddur grunur um að kærði eigi aðild að stórfelldu fíkniefnabroti.  Kærði hefur setið í gæsluvarðhaldi um nokkurt skeið, fyrst á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, en frá 18. október 2007, samkvæmt 2. mgr. sömu greinar.  Fram kemur í málinu að sóknaraðili bíður nú gagna sem hann hefur óskað eftir erlendis frá.  Fallist er á að fyrir hendi sé sterkur grunur um að varnaraðili hafi framið brot, sem að lögum getur varðað allt að 12 ára fangelsi, samkvæmt 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með áorðnum breytingum.  Um er að ræða skipulagða starfsemi sem lýtur að innflutningi á miklu magni fíkniefna og er brotið þess eðlis að telja verður gæsluvarðhald nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna.  Er því fullnægt skilyrðum 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála um að kærða verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi eins og krafist er.  Verður krafa lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu því tekin til greina eins og hún er sett fram og nánar greinir í úrskurðarorði.  Þrátt fyrir að kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins frá 20. september sl., þykir það ekki breyta mati dómsins á því að nauðsynlegt sé að beita gæsluvarðhaldi áfram eins og heimilt er með framangreindu ákvæði í lögum um meðferð opinberra mála.  Ber því samkvæmt þessu að taka kröfuna til greina.

Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurðinn.

                                          Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kærði, X, kt. [...], sæti áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, en þó eigi lengur en til fimmtudagsins 10. janúar 2008, kl. 16:00.