Hæstiréttur íslands

Mál nr. 529/2017

Ákæruvaldið (enginn)
gegn
X (Stefán Karl Kristjánsson hrl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Karl Axelsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 25. ágúst 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 22. ágúst 2017, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 19. september 2017 klukkan 12 eða þar til dómur fellur í máli hans. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili hefur ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti.

Með dómum Hæstaréttar 4. maí 2017 í máli nr. 273/2017 og 2. ágúst sama ár í máli nr. 487/2017 var því slegið föstu að fullnægt væri skilyrðum til þess að varnaraðili sætti gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Eins og greinir í hinum kærða úrskurði var ákæra á hendur varnaraðila gefin út 20. júlí 2017, þar sem honum eru meðal annars gefin að sök fjölmörg brot gegn almennum hegningarlögum nr. 19/1940, og er aðalmeðferð ráðgerð 6. september sama ár. Samkvæmt þessu verður hinn kærði úrskurður staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.                            

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 22. ágúst 2017.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í málum hans en eigi lengur en til þriðjudagsins 19. september 2017 kl. 12:00.

Í greinargerð saksóknarfulltrúa kemur fram að ákærði hafi verið handtekinn þann 1. maí sl. en fyrr um daginn hafi lögreglu borist tilkynning um innbrot og þjófnað í nýbyggingu við [...] í Reykjavík. Þar hafði starfsmaður komið að manni vera að bera verkfæri í bifreið sem hafði verið lagt við húsið. Þegar starfsmaðurinn hafi komið að geranda, þá hafi gerandi hlaupið í burtu. Umrædd bifreið sé í eigu ákærða en hafi verið með stolin skráningarnúmer, þ.e. [...]. Ákærði hafi játað sök í skýrslutöku hjá lögreglu og við þingfestingu málsins.

Auk þessa máls sé ákærði undir rökstuddum grun um eftirfarandi brot framin á undanförnum mánuðum:

„007-2017-[...]– Fjársvik

Þann 11. maí sl. barst lögreglu tilkynning um að þjófnað á veski þann 10. apríl sl. en í veskinu voru m.a. greiðslukort. Í kæruskýrslu kemur fram að búið hafi verið að taka í heimildarleysi 104.795 kr. út af kortunum og að reynt hafi verið að taka meira út en án árangurs. Ákærði þekkti sjálfan sig á upptökum og viðurkenndi að hafa verið með kortin og hafa reynt að taka út af þeim. Við þingfestingu málsins viðkenndi ákærði fjársvikin en neitaði að hafa stolið veskinu.

007-2017-[...]– Þjófnaður

Tilkynnt um þjófnað á sjónvarpi og farangri gesta á hótelherbergi á [...]Reykjavík. Lögreglumenn þekktu ákærða sem geranda af myndbandsupptökum en ákærði játaði sök í skýrslutöku hjá lögreglu og við þingfestingu málsins.

007-2017-[...]– Innbrot, þjófnaður

Þann 30. apríl sl. barst lögreglu tilkynning um að brotist hafi verið inn í bifreiðina [...]við [...] í Reykjavík og þaðan stolið munum. Þá var skráningarnúmerum bifreiðarinnar einnig stolið. Lögreglumenn telja sig þekkja ákærða sem geranda (mál nr. 007-2017-[...]). Við þingfestingu málsins játaði ákærði að hafa stolið skráningarnúmerunum en neitaði að hafa brotist inn í umrædda bifreið.

007-2017-[...] – Hilming

Þann 1. maí sl. fundust ýmsir munir á heimili ákærða sem lögregla ætlar að séu þýfi. Í ljós hafi komið að umræddir munir tengdust innbroti í húsnæði [...] Reykjavíkur (mál nr. 007-2017-[...]). Ákærði játaði sök við þingfestingu málsins.

007-2017-[...] – Innbrot, þjófnaður

Tilkynnt um innbrot í geymslu þann 28. apríl sl. við [...] í Kópavogi. Teknir voru nokkrir munir úr geymslunni, t.d. Canon filmuvél með linsum, háþrýstidæla, stafrænar myndavélar, fartölva, Ipod, gamlar kvikmyndatökuvélar/upptökuvélar. Ákærði hefur játað sök í skýrslutöku hjá lögreglu og við þingfestingu málsins.

007-2017-[...] – Þjófnaður og nytjastuldur ökutækis

Þann 28. apríl sl. barst lögreglu tilkynning um að farið hafi verið í óleyfi inn á skrifstofu við [...] í Reykjavík og teknir lyklar af bifreiðinni [...], lyklar af fyrirtæki og að heimili tilkynnanda. Þá var bifreiðinni [...] einnig stolið eða hún tekin í heimildarleysi. Lögreglumenn þekktu ákærða á upptökum og fundu umærdda bifreið við heimili kærustu ákærða. Ákærði játaði sök í skýrslutöku hjá lögreglu og við þingfestingu málsins.

007-2017-[...] – Þjófnaður

Þann 27. apríl sl. barst lögreglu tilkynning um farið hafi verið inn í skrifstofuhúsnæði við [...] í Reykjavík og þaðan teknir nokkrir munir, þ.á.m. skjávarpi. Lögreglu barst síðan ábending um að ákærði hafi farið þarna inn og tekið umrædda muni. Við leit að ákærða vegna rannsóknar lögreglu á öðru máli, þá fór lögregla að heimili kærustu ákærða. Þar afhenti móðir kærustu ákærða lögreglu meint þýfi sem ákærði hafði komið með inn á heimilið, þ.á.m. umræddan skjávarpa. Ákærði sagðist hafa keypt umræddan skjávarpa af ónafngreindum manni. Ákærði neitaði sök við þingfestingu málsins.

007-2017-[...] – Þjófnaður

Ákærði játaði í skýrslutöku hjá lögreglu og við þingfestingu málsins að hafa farið inn á hótelherbergi við [...] og stolið þaðan sjónvarpi, ferðatösku, heyrnartólum, rakvél og hleðslutæki þann 27. apríl sl.

007-2017-[...]– Nytjastuldur ökutækis

Ákærði viðurkenndi í skýrslutöku hjá lögreglu og við þingfestingu málsins að hafa þann 24. apríl sl. tekið bifreiðina [...] í heimildarleysi frá N1 [...] og notað hana þar til lögregla hafði afskipti af honum sama dag á bifreiðinni.

007-2017-[...] – Innbrot, þjófnaður

Ákærði er grunaður um að hafa þann 10. apríl sl. klippt á lás á bílageymsluhúsnæði í fyrirtækinu [...], [...], Kópavogi og stolið kerru með tveimur vélsleðum samtals að verðmæti um 5.000.000 kr. Ákærði viðurkenndi sök í skýrslutöku hjá lögreglu en hann sagðist einungis hafa ætlað að nota vélsleðana, ekki að selja þá. Ákærði játaði sök við þingfestingu málsins.

007-2017-[...] og [...] – Innbrot, þjófnaður

Þann 3. apríl sl. var borist inn í bílageymslu við [...] og þaðan stolið nokkru magni af verkfærum. Lögregla hafði síðan afskipti af ákærða daginn eftir við umferðareftirlit og sáu lögreglumenn umrædd verkfæri í bifreið ákærða. Ákærði viðurkenndi sök í skýrslutöku hjá lögreglu og við þingfestingu málsins.

007-2017-[...] – Þjófnaður

Kæra barst lögreglu frá Olís vegna þjófnaðar á eldsneyti þann 1. apríl sl. Ákærði viðurkenndi að hafa sett eldsneyti á bifreið sína fyrir 5.079 kr. án þess að hafa greitt fyrir það.

007-2016-[...] – Innbrot, þjófnaður

Þann 12. desember sl. var tilkynnt um innbrot og þjófnað í fyrirtæki við [...] í Kópavogi og þaðan stolið töluverðu magni af verkfærum. Umrædd verkfæri fundust í geymslu sem ákærði var með á leigu og viðurkenndi hann sök í skýrslutöku hjá lögreglu. Ákærði neitaði sök við þingfestingu málsins.

007-2016-[...] – Rán

Þann 17. október sl. var óskað eftir aðstoð lögreglu að [...] í Reykjavík. Tilkynnandi greindi frá því að maður hafi ruðst inn í íbúð hans, heimtað að fá hjá honum lyf og hótað því að stinga hann með hnífi. Maðurinn hafi slegið tilkynnanda nokkrum sinnum og tekið síma hans. Tilkynnandi var með sjáanlega áverka í andliti. Í skýrslutöku hjá lögreglu neitaði ákærði því að hafa ruðst þarna inn heldur hafi tilkynnandi boðið honum inn. Ákærði neitaði að hafa hótað manninum. Ákærði viðurkenndi að hafa tekið lyf og síma mannsins og að hann hafi slegið hann eftir að hafa reiðst.“

Í greinargerðinni kemur einnig fram að með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur þann 2. maí í máli nr. R-129/2017 hafi ákærða verið gert að sæta gæsluvarðhaldi til 30. maí sl. en sá úrskurður hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar í máli nr. 273/2017. Þann 30. maí sl. hafi gæsluvarðhaldið síðan verið framlengt til 27. júní sl. með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. R-162/2017. Þann 27. júní hafi gæsluvarðhaldið verið framlengt til 25. júlí með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. R-217/2017. Þá hafi gæsluvarðhaldið verið framlengt þann 25. júlí til dagsins í dag með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. R-253/2017 en sá úrskurður hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar í máli nr. 487/2017. Rannsókn ofangreindra mála sé lokið og lögreglustjóri hafi gefið út ákæru þann 20. júlí sl. en málið hafi síðan verið þingfest þann 8. ágúst sl. (mál nr. S-[...]/2017). Aðalmeðferð málsins fari fram 6. september nk.

Ákærði eigi að baki nokkurn sakarferil og hafi hlotið  dóma fyrir auðgunarbrot. Við rannsókn mála ákærða hjá lögreglu hafi komið í ljós að hann sé í neyslu fíkniefna og megi ætla að hann fjármagni fíkniefnaneyslu sína með afbrotum.

Með vísan til brotaferils ákærða á undanförnum vikum og mánuðum sé það mat lögreglustjóra að yfirgnæfandi líkur séu á því að ákærði muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna en nauðsynlegt sé að ljúka þeim málum sem eru til meðferðar hjá lögreglu og dómstólum sem fyrst.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Niðurstaða

                Ákærði hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 2. maí sl. á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að rannsókn málanna á hendur ákærða sé lokið og lögreglustjóri hafi gefið út ákæru á hendur honum þann 20. júlí sl. Málið hefur verið þingfest og hefur aðalmeðferð verið ákveðin 6. september nk. Ákærði hefur játað sök í hluta þeirra mála sem um er að ræða. Er því fallist á að fyrir hendi sé rökstuddur grunur um að ákærði hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við.

                Ákærði á nokkurn brotaferil að baki og hefur hann m.a. hlotið dóma vegna auðgunarbrota. Þá liggur fyrir að hann á við fíkniefnavanda að etja. Fram kom fyrir dóminum að ákærði hefði undanfarið stundað meðferð í gæsluvarðhaldinu og vinnu. Engin gögn hafa þó verið lögð fyrir dóminn um það. Í þessu ljósi og að teknu tilliti til þess fjölda mála sem upp hafa komið að undanförnu, og með hliðsjón af dómi Hæstaréttar í máli nr. 487/2017, verður á það fallist að fullnægt sé skilyrði c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 þess efnis að ætla megi að ákærði muni halda áfram brotum meðan máli hans er ólokið og það er til meðferðar hjá dómstólum. Verður því samkvæmt framangreindu fallist á kröfu sóknaraðila eins og hún er sett fram og ákærða gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi meðan mál hans er til meðferðar fyrir dómstólum en þó eigi lengur en til þriðjudagsins 19. september 2017 kl. 12.00.

                Barbara Björnsdóttir héraðsdómari kveður upp þennan úrskurð.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð :

                Ákærði, [...], kt. [...], skal áfram sæta gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í málum hans, en þó eigi lengur en til þriðjudagsins 19. september 2017 kl. 12:00.