Hæstiréttur íslands
Mál nr. 766/2013
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
Þriðjudaginn 10. desember 2013. |
|
|
Nr. 766/2013. |
Ákæruvaldið (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Guðmundur St. Ragnarsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 6. desember 2013 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 9. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 6. desember 2013, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 3. janúar 2014 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Varnaraðili sætti gæsluvarðhaldi frá 7. til 19. júlí 2013 á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 og aftur á sama lagagrundvelli frá 10. ágúst til 6. september sama ár, en frá þeim degi hefur hann sætt gæsluvarðhaldi samkvæmt c. lið áðurnefndrar lagagreinar. Með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 7. nóvember 2013 voru varnaraðila gefin að sök 28 auðgunarbrot auk nokkurra brota gegn sérrefsilögum. Málið var þingfest 21. nóvember 2013 og aðalmeðferð ákveðin 13. desember sama ár.
Með dómi Hæstaréttar 10. september 2013 í máli nr. 590/2013 var því slegið föstu að uppfyllt væru skilyrði c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til þess að varnaraðili sætti gæsluvarðhaldi. Er ekkert fram komið í málinu sem fær haggað þeirri niðurstöðu. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 6. desember 2013.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag að X, kt. [...], sæti gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 3. janúar nk. kl. 16:00 eða þar til dómur gengur í málunum, á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Í greinargerð lögreglu er segir að ákærði hafi fyrst verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála 9. júlí 2013 og hafi hann sætt því þar til hann hafi verið látinn laus 19. sama mánaðar.
Hinn 9. ágúst sama ár hafi ákærði svo verið handtekinn að [...] í [...] vegna gruns um aðild að innbrotum og þjófnuðum, sbr. lögreglumál nr. 007-2013-41[...]. Hafi hann daginn eftir verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála til 21. sama mánaðar. Hafi sá úrskurður verið staðfestur með dómi Hæstaréttar í máli nr. 536/2013. Hinn 21. ágúst hafi ákærði síðan verið úrskurðaður í áframhaldandi gæslu á grundvelli rannsóknarhagsmuna til 6. september sama ár. Hafi sá úrskurður einnig verið staðfestur með dómi Hæstaréttar. Hafi ákærði setið í gæsluvarðhaldi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. sakamálalaga frá þeim degi.
Rannsókn allra málanna sé nú lokið og hafi ákæra gefin út á hendur ákærða 7. nóvember sl. Hafi málið verið þingfest 25. nóvember sl. og muni aðalmeðferð fara fram 16. desember nk. Í greinargerð er vísað til ákæru og gagna málsins hvað málsatvik varðar.
Í greinargerðinni segir að ákærði eigi ekki langan sakarferil, en 17. febrúar 2010 hafi hann hlotið sekt vegna brots á 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga.
Við rannsókn mála ákærða hjá lögreglu hafi komið í ljós að hann sé í mikilli neyslu fíkniefna og að hann fjármagni þá neyslu að því er virðist að öllu leyti með auðgunarbrotum.
Með vísan til framangreinds og brotaferils ákærða á undanförnum mánuðum sé það mat lögreglustjóra að fram sé kominn rökstuddur grunur um að kærði hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við, að hann muni næst hljóta óskilorðsbundinn dóm, og að yfirgnæfandi líkur séu á því að kærða muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Eins og rakið hefur verið hefur ákæra verið gefin út á hendur ákærða fyrir fjölmörg hegningar-, umferðarlaga- og önnur sérlagabrot. Aðalmeðferð í málinu er fyrirhugð 16. desember nk. Er fallist á með lögreglustjóra að rökstuddur grunur sé um að ákærði hafi gerst sekur um brot sem fangelsisrefsing er lögð við og að líkur séu á því að hann muni hljóta óskilorðsbundinn dóm. Ákærði kveðst hafa verið edrú frá því að hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald í byrjun ágúst sl. og hefur lagt fram gögn, sem staðfesta að hann hafi innritast á meðferðargang fangelsisins að Litla-Hrauni 16. september sl. Þar kemur og fram að hann hafi verið virkur í öllu starfi sem þar hafi verið boðið upp á og verið duglegur að mæta á AA-fundi. Jafnframt hefur ákærði lagt fram gögn, sem staðfesta að hann hafi vísa vinnu og aðsetur hjá móður sinni verði gæsluvarðhaldi aflétt. Eins og að framan greinir hefur rannsókn málsins leitt í ljós að ákærði var í mikilli neyslu fíkniefna og fjármagnaði þá neyslu sína með auðgunarbrotum. Með hliðsjón af þeim skamma tíma, sem liðinn er frá því að ákærði hóf meðferð sína, þykir lítil reynsla vera komin á vilja hans og staðfestu til að halda sig frá fíkniefnum. Með vísan til þess og með hliðsjón af þeim mikla fjölda brota, sem honum eru gefin að sök samkvæmt ákæru, þykja líkur standa til þess að hann muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna. Eru brotin þess eðlis að telja verður nauðsynlegt að stöðva brotastarfsemi hans. Er það mat dómara að skilyrði c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála séu uppfyllt. Að þessu virtu og með vísan til c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála er fallist á kröfu lögreglustjóra, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð þennan kveður upp Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
X, sæti gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 3. janúar 2014, kl. 16:00, eða þar til dómur gengur í máli hans.