Hæstiréttur íslands
Mál nr. 590/2016
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir, Benedikt Bogason og Helgi I. Jónsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 19. ágúst 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 22. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 17. ágúst 2016, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 31. ágúst 2016 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 17 ágúst 2016.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur krafist þess fyrir dóminum í dag að erlendum aðila, X, fæddur [...], verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 31. ágúst 2016 til kl. 16.00 og að honum verð gert að sæta einangrun á meðan gæsluvarðhaldi stendur.
Krafan er reist á a og b liðum 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og b lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga.
Lögreglustjóri telur að meint brot kærða geti varðað við ákvæði laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Kærði mótmælir kröfunni. Hann krefst þess að kröfunni verði hafnað en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími en krafist er.
I
Í greinargerð lögreglustjóra segir meðal annars að lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafi til rannsóknar innflutning kærða á ætluðum ávana- og fíkniefnum. Rannsókn málsins hafi hafist þriðjudaginn 16. ágúst 2016 í kjölfar tilkynningar frá tollgæslunni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar um afskipti af kærða við tollhliði vegna gruns um að hann kynni að hafa fíkniefni falin í fórum sínum. Hafi kærði verið að koma með flugi [...] frá [...] í [...].
Við leit í farangri kærða hafi fundist hylki með meintum fíkniefnum. Kærði hafi verið handtekinn og færður á lögreglustöðina við Hringbraut, Reykjanesbæ. Hann hafi gengist undir röntgenrannsókn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja að kvöldi 16. ágúst 2016. Niðurstaða þeirrar rannsóknar hafi leitt í ljós að innvortis hafði kærði yfir 30 pakkningar af ætluðum fíkniefnum
Að svo stöddu hafi 33 pakkningar af meintum fíkniefnum gengið niður af kærða. Þá hafi lögregla ekki fengið staðfestingu frá tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um tegund hinna meintu fíkniefna sem kærði hafi verið með í ferðatösku sinni. Lögregla bíði þess nú að afgangurinn af hinum meintu fíkniefni gangi niður af kærða þannig að hægt verði að staðfesta hvert endanlegt magn þeirra og tegund sé.
Kærði hafi verið yfirheyrðu einu sinni vegna málsins og kvaðst hann ekki vita hvaða efni þetta væru en taldi magnið vera undir einu kílói. Kærði hafi jafnframt greint frá því að hann hafi fengið þessi efni í [...] frá aðila sem kalli sig „[...]“ en sá aðili hafi haft í hótunum við kærða. Kærði hafi sagt [...] hafa hótað því að ef kærði færi ekki í þessa ferð myndi hann ekki eiga konu og börn á morgun og þar með þvingað hann til ferðarinnar. Kærði kveðst ekki hafa átt að fá greitt fyrir. Kærði sagði hins vegar að [...] hafi fullvissað sig um að það yrði maður sem myndi fylgjast með honum í sömu flugvél og sjá til þess að hann myndi skila efnunum á réttan stað. Annar aðili, sem talin sé vera sá sem hafi átt að fylgjast með kærða í fluginu, hafi einnig verið handtekinn vegna málsins í gær þann 16. ágúst 2016.
Rannsókn málsins miði við að kærði hafi flutt töluvert magn ávana- og fíkniefna hingað til lands sem ætluð hafi verið ætluð til sölu og dreifingar. Lögregla telji einsýnt að kærði hafi ekki staðið einn að innflutningi á því magni ætlaðra fíkniefna sem um ræðir. Vinni lögregla að því að upplýsa um hlutverk kærða í málinu, m.a. um aðdraganda og fjármögnun ferðar hans svo og upplýsinga um ætlaða samverkamenn kærða hér og landi og erlendis. Kærði hafi verið yfirheyrður einu sinni vegna málsins þar sem fram komi að hann hafi einungis verið burðadýr. Vísist nánar til gagna málsins. Rannsóknin sé í fullum gangi og teygir anga sína víða. Sé nú m.a. unnið að úrvinnslu þeirra gagna sem aflað hafi verið auk þess sem fyrirliggjandi sé viðamikil gagnaöflun hér á landi og erlendis.
Verið sé að rannsaka innflutning á hættulegum ávana- og fíkniefnum sem að mati lögreglu hafi verið flutt hingað til lands í þeim tilgangi að selja þau til ótiltekins fjölda fólks. Að mati lögreglustjóra sé fyrir hendi rökstuddur grunur um að kærði hafi gerst brotlegur við ákvæði laga um ávana og fíkniefni nr. 65/1974 og 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Lögreglustjóri telji nauðsynlegt að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi. Megi ætla að kærði kunni að torvelda rannsókn málsins svo sem með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á samseka eða vitni gangi hann laus. Séu þannig uppfyllt skilyrði a liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Auk þess telji lögreglustjóri að mikil hætta sé á að kærði muni reyna að komast úr landi eða leynast og koma sér þannig undan málsókn eða fullnustu refsingar gangi hann laus. Sé á það bent að kærði, sem sé erlendur ríkisborgari, virðist ekki eiga nein tengsl við landi. Eigi hann þannig hvorki fjölskyldu né stundi atvinnu hér. Sé skilyrðum b liðar liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála einnig fullnægt.
Að framangreindu virtu, sem og gögnum málsins að öðru leyti, verður fallist á það með lögreglustjóra að kærði sé undir rökstuddum grun um brot sem geta varðað fangelsisrefsingu. Rannsókn málsins er á frumstigi og haldi kærði óskertu frelsi sínu gæti hann torveldað rannsókn málsins, m.a. með því að hafa áhrif á framburð vitorðsmann og vitna. Skilyrði a liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála eru því fyrir hendi í málinu. Kærði er erlendur ríkisborgari og hefur að því er virðist engin tengsl við Ísland. Verður því talið að uppfyllt séu skilyrði b liðar 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Samkvæmt framansögðu verður fallist á kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð þennan kveður upp Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari.
Ú r s k u r ð a r o r ð :
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 31. ágúst nk. kl. 16:00.
Kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.