Hæstiréttur íslands
Mál nr. 536/2013
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Þriðjudaginn 13. ágúst 2013. |
|
Nr. 536/2013.
|
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stæði.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 10. ágúst 2013 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 12. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 10. ágúst 2013, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 21. ágúst 2013 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og að honum verði ekki gert að sæta einangrun.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Af gögnum málsins verður ekki ráðið að íbúar að [...] „þekki til“ varnaraðila eins og haldið er fram af hálfu sóknaraðila. Ekki liggja fyrir önnur tengsl varnaraðila við innbrot í umrætt hús. Er því ekki rökstuddur grunur um að varnaraðili hafi gerst sekur um innbrot í það. Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness laugardagur 10. ágúst 2013.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], sæti gæsluvarðhaldi, allt til miðvikudagsins 21. ágúst 2013, kl. 16:00. Þá er gerð krafa um að kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Í greinargerð lögreglustjóra er vísað til eftirfarandi:
Mál 007-2013-31327, innbrot og þjófnaður að [...].
Þann 16. júní sl. hafi lögregla verið kölluð að íbúðarhúsinu við [...], en þar hafi verið brotist inn og stolið peningakassa úr stáli, $1.000 og evrum að verðmæti 550.000 kr., auk skartgripa. Sonur tjónþola þekki kærða og segi að hann hafi komið og bankað upp á hjá foreldrum sínum að [...] daginn fyrir innbrotið. Við húsleit að [...] hjá kærða hafi fundist munir úr innbrotinu.
Mál 007-2013-32058, innbrot og þjófnaður að [...].
Þann 19. júní hafi lögregla verið kölluð að íbúðarhúsinu við [...], en þar hafi gluggi í stofu verið spenntur upp og þaðan stolið tveimur fartölvum, spjaldtölvu, myndavél, armbandsúri, Ray ban sólgleraugum auk bakpoka merktum Stjörnunni. Við húsleit hjá kærða hafi bakpokinn fundist, en tjónþoli segi hann auðþekktan þar sem slíkur bakpoki hafi ekki verið seldur á almennum markaði.
Mál 007-2013-38931, innbrot og þjófnaður að [...].
Þann 28. júlí sl. hafi lögregla verið kölluð að íbúðarhúsinu við [...], en þar hafði verið farið inn um svalahurð á húsnæðinu og þaðan stolið fartölvu, leikjatölvu, Tivoli tæki undir ipod nano og ipod nano. Tjónþolar þekki til kærða.
Mál 007-2013-38919, innbrot og þjófnaður að [...].
Þann 28. júlí sl. hafi lögregla verið kölluð að íbúðarhúsinu við [...], en þar hafi verið spennt upp útihurð og þaðan stolið sjónvarpi, myndavél, fartölvu, Bang&Olufsen dokku ásamt peningum úr sparibaukum. Tjónþolar þekki til kærða og þá hafi kærði haft samband við tjónþola skömmu eftir innbrotið er tjónþoli hafi lýst eftir tölvu með persónulegum myndum á facebook og kvaðst myndu hugsanlega getað reddað honum tölvunni gegn greiðslu.
Mál 007-2013-40569, þjófnaður að [...] á tímabilinu 26. 31. júlí.
Kærði hafi viðurkennt í skýrslutöku hjá lögreglu að hafa farið til ömmu sinnar og afa og stolið þaðan 500.000 í reiðufé. En þaðan sé einnig saknað 6.000 evra sem kærði neiti að hafa tekið.
Mál 007-2013-39221, innbrot og þjófnaður í bifreið framan við Bláa Lónið að Svartsengi.
Þann 30. júlí hafi verið tilkynnt um innbrot og þjófnað úr bifreið, en þaðan hafi verið stolið Nikon myndavél, en myndavélin hafi fundist við húsleit að [...] í gær.
Mál 007-2013-39413, innbrot og þjófnaður á Hótel Garði við Hringbraut í Reykjavík.
Þann 30. júlí hafi lögregla verið kölluð að Hótel Garði, en þar hafi verið brotist inn á eitt hótelherbergi og þaðan stolið myndavélum sem og bifreiðinni [...] sem sé hvít VW Polo bifreið. Lögregla hafi fundið bifreiðina í námunda við [...] í gær, en þá hafi hún verið á stolnum númeraplötum, bæði að framan og aftan en þó með sitthvoru númerinu. Sjónarvottur hafi sagt umráðamann bifreiðarinnar ávallt ganga inn í [...], en kærði hafi neitað að hafa verið á bifreiðinni. Þá hafi grunaður samverkamaður greint lögreglu frá því að munir sem fundust í bifreiðinni tilheyri honum.
Mál 007-2013-38929 og -40085, innbrot og þjófnaður að Hótel Garði við Hringbraut í Reykjavík.
Dagana 28. júlí og 2. ágúst hafi verið brotist inn í hótelherbergi að Hótel Garði. Við húsleit að [...] hafi fundist farsími í sama herbergi og kærði hafi verið handtekinn í í gær, en farsíminn sé talinn vera úr innbrotinu þann 28. júlí sl.
Mál 007-2013-41200, þjófnaður í garði við [...] í Reykjavík.
Þann 2. ágúst sl. hafi verið tilkynnt um stolið Jet Ski sem hafi verið á kerru í garði við [...]. Aðili á bifreiðinni [...] sem kærði hafi viðurkennt að hafa verið með til umráða hafi sést á vettvangi stuttu fyrir þjófnaðinn.
Mál 007-2013-40432, innbrot og þjófnaður að [...].
Þann 5. ágúst sl. hafi lögregla verið kölluð að íbúðarhúsinu við [...], en þar hafi verið skrúfuð rúða úr útidyrahurð íbúðarinnar og þaðan stolið peningaveski með 6.000 kr. í reiðufé, tveimur gullhringum og gullhálsmeni. Sjónarvottur hafi lýst því að maður hafi verið með borvél framan við íbúðina að morgni 4. ágúst og hafi hann lýst geranda skilmerkilega, en lýsingin passi við kærða. Þá þekki tjónþoli kærða.
Mál 007-2013-40552, innbrot og þjófnaður að [...].
Þann 6. ágúst sl. hafi lögregla verið kölluð að íbúðarhúsinu að [...], en þar hafi verið spenntur upp gluggi í kjallara og farið inn í húsið um nótt á meðan heimilismenn sváfu og stolið þaðan tveimur farsímum, fartölvu og Rolex armbandsúri. Framan við húsnæðið hafi sést hvítur Polo, en kærði sé grunaður um að hafa ekið um á stolinni bifreið af sama lit og gerð.
Mál 007-2013-40649, innbrot og þjófnaður að [...].
Þann 6. ágúst sl. hafi lögregla verið kölluð að íbúðarhúsinu að [...], en þar hafi verið spenntur upp gluggi í stofu og stolið þaðan reiðhjóli, riffli, haglabyssu, sveðju, tveimur minni hnífum, silfurborðbúnaði, jakka auk fjölda skartgripa.
Mál 007-2013-40461, innbrot og þjófnaður í fimm herbergi á Hótel Hafnarfirði við Reykjavíkurveg 72 í Hafnarfirði.
Þann 6. ágúst sl. hafi lögregla verið kölluð að Hótel Hafnarfirði vegna innbrots í fimm herbergi hótelgesta. Úr fjórum herbergjanna hafi verðmætum verið stolið. Tilkynnandi hafi sagt að um kvöldmatarleytið daginn áður hafi íslenskur maður verið að þvælast um hótelið en engir íslenskir gestir hafi verið bókaðir á hótelinu. Allar fimm hurðarnar hafi verið spenntar upp með einhverju verkfæri. Í öryggismyndavélakerfi hótelsins megi sjá mann sem lögregla telur vera kærða, en hann sé með áberandi húðflúr á báðum handleggjum. Þá hafi bakpoki, ásamt munum frá einum hótelgestanna, fundist í bifreið kærða.
Mál 007-2013-40793, innbrot og þjófnaður að [...].
Þann 7. ágúst sl. hafi lögregla verið kölluð að íbúðarhúsinu við [...], en þar hafi verið farið inn um glugga í bílskúr og þaðan inn í íbúðarhúsið og stolið iphone farsíma og ipad spjaldtölvu.
Mál 007-2013-40921, innbrot og þjófnaður að [...].
Þann 7. ágúst sl. hafi lögregla verið kölluð að íbúðarhúsinu við [...], en þar hafi verið farið inn um ólæsta bílskúrshurð og spennt upp millihurð inn í húsnæðið og þaðan stolið um 300.000 kr. í reiðufé auk vegabréfa og erlends gjaldeyris, bandarískum dollurum, tyrkneskum lírum og pakistönskum rúplum.
Í gærdag hafi kærði verið handtekinn að [...] vegna gruns um aðild að framangreindum málum. Kærði hafi neitað sök fyrir utan aðild að máli 007-2013-40569. Lögregla hafi náð að tengja kærða við fjölda þessara innbrota, en enn sé nokkuð langt í land og ljóst að lögregla þurfi ráðrúm til frekari rannsóknar, svo sem að fara í fleiri húsleitir, taka skýrslur af mögulegum samverkamönnum og þá eigi enn eftir að greina muni sem haldlagðir hafa verið. Verknaðaraðferð sé í fjölda tilvika sú sama auk þess sem innbrotin hafi átt sér stað á svipuðum stöðum. Þá þekki kærði, eða hafi tengsl við fjölda tjónþola í framangreindum málum.
Það sé mat lögreglu að verði kærði látinn laus muni hann eiga þess kost að torvelda rannsókn málanna, svo sem með því að koma undan munum og hafa áhrif á framburð samverkamanna og vitna. Lögregla telur brýnt fyrir framgang málsins að fallist verði á framkomna kröfu um gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna svo unnt sé að rannsaka málið án hættu á að kærði getið spillt rannsókn þess.
Sakarefni málsins er talið varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og/eða eftir atvikum 254. gr. sömu laga sem og við 259. gr. sömu laga. Kærði sé undir rökstuddum grun um aðild að málunum samkvæmt rannsókn lögreglu. Það sé því brýnt og nauðsynlegt með vísan til alls framanritaðs og gagna málsins að öðru leyti að kærða verði með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 gert að sæta gæsluvarðhaldi til miðvikudagsins 21. ágúst kl. 16.00 og til að sæta einangrun samkvæmt b-lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga.
Að mati dómsins má fallast á með verjanda kærða að í framangreindri greinargerð lögreglustjóra komi ekki fram rökstuddur grunur um aðild kærða að sumum brotum, þ.e. innbrotum og þjófnaði að [...], [...] og [...], í [...]. Samkvæmt rannsóknargögnum málsins er kærði hins vegar undir rökstuddum grun um að hafa framið önnur brot sem tilgreind eru í greinargerð lögreglustjóra. Haldi kærði óskertu frelsi sínu gæti hann torveldað rannsókn málsins með því að koma sönnunargögnum undan eða hafa áhrif á samseka og vitni. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, er því fallist á kröfu lögreglustjóra, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Kærði, [...], kt. [...], sæti gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 21. ágúst 2013, kl. 16:00. Þá skal kærði sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.