Hæstiréttur íslands
Mál nr. 649/2009
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Þriðjudaginn 17. nóvember 2009. |
|
Nr. 649/2009. |
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum(Alda Hrönn Jóhannsdóttir fulltrúi) gegn X (Bjarni Hauksson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. B. og d. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli b. og d. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur. Hins vegar var talið óheimilt að láta X sæta áframhaldandi einangrun, sbr. 2. mgr. 98. gr. laganna.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 11. nóvember 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 13. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 11. nóvember 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 2. desember 2009 klukkan 16, og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að hann verði settur í farbann í stað gæsluvarðhalds. Að því frágengnu krefst hann þess að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Hann krefst þess að hann verði ekki látinn sæta frekari einangrun á gæsluvarðhaldstíma.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Af forsendum hins kærða úrskurðar má ráða að varnaraðili sæti gæsluvarðhaldi á grundvelli b. og d. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Fallist er á forsendur og niðurstöðu úrskurðarins um að skilyrði séu til að varnaraðili sæti áfram gæsluvarðhaldi. Hann hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 14. október 2009 og verið í einangrun þann tíma. Í 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008 er lagt bann við því að sá sem er í gæsluvarðhaldi sæti einangrun lengur en í fjórar vikur samfleytt, nema sá sem um ræðir sé grunaður um brot sem varðað getur að lögum tíu ára fangelsi. Varnaraðili er grunaður um brot gegn 227. gr. a og 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en brot gegn þessum ákvæðum geta varðað fangelsi allt að átta og sex árum. Með hliðsjón af 2. mgr. 77. gr. almennra hegningarlaga er því óheimilt að láta varnaraðila sæta frekari einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur og er kröfu sóknaraðila um þetta því hafnað. Að öðru leyti verður hinn kærði úrskurður staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur um að X sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 2. desember 2009, klukkan 16.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 11. nóvember 2009.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur krafist þess í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness með vísan til b. og d. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála að X, kt. [...],[...], verði með úrskurði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 2. desember 2009, kl. 16:00. Þess er jafnframt krafist að kærða verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldi samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.
Kærði krefst þess aðallega að kröfunni verði hafnað en til vara að farbanni verði beitt. Til þrautavara krefst hann þess að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Þá er kröfu um einangrun mótmælt.
Krafan er reist á því að kærði sé undir rökstuddum grun um brot gegn 227. gr. a og 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Í greinargerð lögreglustjórans á Suðurnesjum segir að hann hafi í samvinnu við önnur lögregluembætti, allt frá 10. október sl., haft til rannsóknar ætlað mansal ásamt fleiri brotum sem lögreglan telji að séu hluti af ætlaðri skipulagðri glæpastarfsemi. Sé kærði grunaður í því máli og hafi hann setið í gæsluvarðhaldi frá 14. október sl. Varðandi frekari málsatvik vísist til fyrri krafna um gæsluvarðhald fyrir dómnum svo og til gagna málsins.
Kærði hafi viðurkennt að hafa verið einn þeirra manna sem leitaði hins ætlaða fórnarlambs mansals og beið hennar fyrir utan flugstöðina er hún kom til landsins þann 10. október sl. og ennfremur að hafa beðið konunnar fyrir utan lögreglustöðina við Hverfisgötu, Reykjavík, daginn eftir. Kærði hafi einnig viðurkennt að hafa ætlað að sækja konu að nafni A í flugstöðina fyrir félaga sinn. Það sé jafnframt ætlun lögreglu að kærði hafi verið einn af þeim sem sótti konuna til Keflavíkur að kvöldi 12. október sl. í því skyni að koma henni undan lögreglu og vísi lögregla til framburða þess efnis. Þá liggi fyrir upplýsingar hjá lögreglu þess efnis að kærði stundi það ásamt meðkærðu að innheimta verndartolla af samlöndum sínum hér á landi og vísist til framburða þess efnis og gagna málsins. Í tengslum við rannsókn málsins hefði lögreglan leitað í bankahólfi kærða og í því fundist ætlað þýfi, að verðmæti á aðra milljón króna, sem tekið hefði verið í innbroti nokkrum vikum áður en alls hafði verið tekið þýfi úr því innbroti að verðmæti um fjórar milljónir króna en jafnframt voru unnar skemmdir fyrir sambærilega fjárhæð. Jafnframt fundust munir úr sama innbroti hjá meðkærðu Y og Z.
Rannsókn máls þessa sé mjög tímafrek og flókin og sé nú á lokastigi. Málið sé mjög umfangsmikið og teygi anga sína víða og telji lögreglan að rökstuddur grunur sé á að um sé að ræða verulega umfangsmikla skipulagða glæpastarfsemi sem kærði tengist ásamt meðkærðu. Rannsókn málsins hafi verið unnin í nánum samskiptum við erlend lögregluyfirvöld og sérstaklega við Litháen en fyrir liggi fjöldi gagna þaðan sem unnið sé að því að þýða og varði aðdraganda og forsögu að ferð konunnar hingað til lands. Sú háttsemi sem kærða hafi verið gefið að sök telji lögreglustjóri að kunni einkum að varða við ákvæði 227. gr. a og 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en ætlað brot gegn fyrrgreinda ákvæðinu geti varðað fangelsisrefsingu, allt að 8 árum.
Að mati lögreglu hafi sá grunur styrkst til muna að um verulega skipulagða glæpastarfsemi sé að ræða sem kærði tengist. Sé hann talinn einn af forsprökkum ásamt þremur öðrum meðákærðum er nú sitji í gæsluvarðhaldi. Telji lögregla rökstuddan grun til að ætla að þessi ætlaða skipulagða glæpastarfsemi tengist litháísku mafíunni og sé kærði einn af þeim aðilum er veiti þeim forystu hér á landi. Vísist nánar um það til hættumarks greiningardeildar ríkislögreglustjóra sem liggi fyrir í gögnum málsins.
Lögreglustjóri telji að öðru fólki stafi veruleg hætta af kærða en við rannsókn málsins hafi komið í ljós að fólk sé mjög hrætt við hann og sé jafnframt hrætt við að gefa framburð í málinu af ótta við hefndaraðgerðir. Þá sé kærði af erlendu bergi brotinn og verulegar líkur á að hann reyni að yfirgefa Ísland verði hann ekki látinn sitja í gæsluvarðhaldi. Þá vísi lögreglustjóri jafnframt til þess að meint brot varði helgustu réttindi fólks. Með vísan til alls þessa telji lögreglan nauðsynlegt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi. Til stuðnings kröfu sinni um að kærði sæti einangrun í gæsluvarðhaldinu vísi lögreglustjóri til þess að hætta kunni að leika á að kærði nái til vitna í málinu í gegnum aðila er tengist hinni meintu glæpastarfsemi. Ætla megi að kærði fái aðra aðila til að hefna eða hafa áhrif á framburð vitna áður en málið sé til lykta leitt fyrir dómstólum.
Krafa lögreglu er byggð á b. lið 95. gr. laga nr. 88/2008 um að hætta sé á, sæti kærði ekki áframhaldandi gæsluvarðhaldi, að hann muni reyna að komast úr landi og ennfremur er krafan byggð á d. lið sömu greinar um að telja megi gæsluvarðhald nauðsynlegt til að verja aðra fyrir árásum sakbornings. Rannsókn málsins hefur beinst að erlendum ríkisborgurum sem lögreglan telur að stundi skipulagða glæpastarfsemi hér á landi m.a. með mansali, vændisstarfsemi og innheimtu svokallaðra verndartolla af samlöndum sínum sem hér eru búsettir. Í málinu hefur verið lagt fram hættumat greiningardeildar ríkislögreglustjóra vegna öryggis þriggja vitna og er niðurstaða matsins að öryggi vitnanna sé ógnað gangi kærði laus. Að öllu framangreindu virtu, sem og gögnum málsins að öðru leyti, verður fallist á með lögreglustjóra að skilyrði b. og [d.] liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 séu uppfyllt og verður því krafan tekin til greina eins og hún er fram sett í beiðni og nánar greinir í úrskurðarorði. Fallist verði jafnframt á kröfu lögreglu um að kærði sæti einangrun.
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
ÚRSKURÐARORÐ
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 2. desember 2009, kl. 16.00.
Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.