Hæstiréttur íslands
Mál nr. 506/2013
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
Föstudaginn 26. júlí 2013. |
|
|
Nr. 506/2013. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stæði.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Greta Baldursdóttir og Helgi I. Jónsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 24. júlí 2013, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 24. júlí 2013 þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 7. ágúst 2013 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og að honum verði ekki gert að sæta einangrun.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness miðvikudaginn 24. júlí 2013.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess fyrir dóminum í dag að X, kt. [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 7. ágúst 2013, kl. 16.00 og einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi nú til rannsóknar tvö mjög gróf ofbeldisbrot þar sem hópur manna liggi undir grun um að hafa ráðist gróflega á tvo menn. Sé kærði X undir rökstuddum grun um aðild að málunum, en hann hafi verið handtekinn á [...] 9. júlí sl. í þágu rannsóknar málsins og úrskurðaður í gæsluvarðhald til dagsins í dag, sbr. dóm Hæstaréttar Íslands nr. 469/2013.
Í greinargerðinni kemur fram að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar ætlaða frelsissviptingu, ólögmæta nauðung eftir atvikum og líkamsmeiðingar gegn A aðfaranótt mánudagsins 1. júlí sl. Síðar sama dag 1. júlí sl. hafi lögregla verið kölluð að slysadeild Landsspítala þar sem A og faðir hans voru staddir, en þar hafi hann tjáð lögreglu að hann hefði orðið fyrir líkamsárás, frelsissviptingu og verið byrlað lyf gegn vilja sínum. Samkvæmt upplýsingum lögreglu hafi A verið illa útleikinn, bólginn og blóðugur í framan og undir áhrifum lyfja.
Samkvæmt frásögn brotaþola hafði hann verið að heimili sínu [...] í [...] þegar 4 menn ruddust inn í íbúðina og byrjuðu að berja hann, en hann hafi kannast við tvo þessara aðila, kærða X og annan sem hann gat ekki nafngreint. Hafi þeir verið vopnaðir kylfum og töngum og hafi þeir leitt hann út úr íbúðinni í bifreið, sem var ekið í [...] líklega að [...] ([...]) og þar hafi meðkærði Y komið með og síðan ekið að [...] í [...] að heimili föður Y. Þar hafi hann verið bundinn höndum og fótum og þar hafi honum verið misþyrmt með barsmíðum og spörkum, sem og þvingaður til að gleypa 20 töflur af óþekktu lyfi, sem og hann hafi verið sprautaður í rassinn með óþekktu lyfi. Þá hafi rakspíra verið sprautað á kynfæri hans og eldur lagður að kynfærum hans. Eftir þetta hefðu kærði X og annar aðili ekið með hann í húsnæði að [...] að heimili meðkærða Z og þar hefðu þeir m.a. slegið A með belti í bakið og gengið í skrokk á honum og í framhaldinu afklætt og sett hann í svartan ruslapoka niður í kjallara hússins og þar hefði hann verið keflaður og bundinn við staur, en kærðu síðan yfirgefið vettvang. Lögreglan hafi farið í húsleit að [...], en lýsing sem brotaþoli hafi gefið á slysadeild gat átt við það hús, en í húsinu hafi verið vel falinn kjallari. Í ruslatunnu hafi ruslapoki fundist sem hafði verið klipptur til, sem og mél sem brotaþoli hafi lýst að hafi verið sett upp í sig. A hafi síðan verið losaður af aðila sem virtist vera í húsinu, en sá hafi verið mjög skelkaður. Í kjölfarið hafi A hringt í föður sinn sem náði í hann og fóru þeir á slysadeildina. Þegar lögreglan hafði rætt við A á spítalanum hafi mátt sjá spotta lafa frá munni hans og var upplýst af lækni að þegar hann var saumaður á slysadeildinni þá hafði komið í ljós að efri vör A hafði verið saumuð saman og þegar spottarnir voru teknir úr þá datt vörin niður. Samkvæmt frásögn brotaþola þá höfðu kærðu verið að tala um það sín á milli að klippa vörina af þar sem hún hékk, en einn af þeim taldi sig geta saumað vörina á. Samkvæmt lögreglu hafi mátt sjá á andliti A sár sem hafi getið verið eftir tangir, en kærði hafi verið klipinn víðsvegar um líkamann, sem og framtönn A hafi verið brotin. Einnig hafi mátt sjá djúpar rauðar rákir eftir belti á baki hans. Samkvæmt vottorði læknis sem nú liggi fyrir virðist sem brotaþoli hafi9 verið misþyrmt og beittur grófu ofbeldi. Aðspurður hvers vegna ráðist hafi verið á hann kvað A ástæðuna vera sú að hann hafi sofið hjá fyrrum unnustu og barnsmóður Y.
Kærði hafi alfarið neitað sök og kannast ekki við að hafa verið viðstaddur þegar ofangreind árás átti sér stað. Hann kveðst hafa verið í mikilli neyslu á þessum tíma og muni ekki eftir einu né neinu.
Í málinu liggi fyrir framburður sakbornings, sem gefinn var 16. júlí sl., þar sem lýst sé skilmerkilega með hvaða hætti X misþyrmdi A í umrætt sinn, sjá megi nánar meðfylgjandi skýrslu. Þá liggi fyrir framburður annars sakbornings, sem gefinn hafi verið í gær, um þátttöku kærða X í ofangreindu broti.
Í greinargerð lögreglu kemur ennfremur fram að kærði sé einnig undir rökstuddum grun að hafa með grófu ofbeldi ásamt meðkærða Y ásamt fleiri aðilum gengið í skrokk á B í byrjun júlí sl. að [...] í [...], en lögregla hafi fengið upplýsingar frá föður brotaþola þann 3. júlí að honum hefði verið haldið nauðugum, þar sem gengið var í skrokk á honum af 4 mönnum með kylfum, skærum og dúkahníf. Þegar lögregla hafi komið á vettvang hafi B verið þar fyrir og hafi mátt sjá áverka á andliti B, hafi hann verið bólginn í framan, með skurð hægra megin við kinnbein, bólgin við hægra auga og kjálka, greinileg blæðing inn í hægra auga. Einnig hafi hann verið með fjölda skurða á vinstri handlegg.
Í skýrslutöku hjá lögreglu hafi brotaþoli lýst því hvernig kærði X og fleiri hafi misþyrmt honum í umrætt sinn. Er vísað til lögregluskýrslna þar um. Þá liggi fyrir framburður vitnis, þar sem fram kemur með hvaða hætti kærði X réðist á B. Einnig liggja fyrir framburðir tveggja sakborninga, þar sem lýst sé með afdráttarlausum hætti aðild kærða X í umræddri árás. Kærði neiti sömuleiðis sök í þessu máli.
Af gögnum málsins megi ljóst vera að kærði sé nú undir rökstuddum grun um aðild að ofangreindum málum, þar sem þung fangelsisrefsing liggi við brotunum eða allt að 16 ára fangelsi og eftir atvikum ævilangt fangelsi. Rannsókn málsins sé hvergi nærri lokið, taka þurfi frekari skýrslur af meðkærðu, af vitnum og brotaþolum, enda mikið ósamræmi í framburðum málsaðila. Þá þurfi að taka frekari skýrslur af kærða. Lögregla vinni hörðum höndum að tæknirannsókn málsins. Þá sé verið að afla símaupplýsinga, m.t.t. staðsetningar brotaþola og sakborninga. Þá liggi fyrir að einn sakborninga hafi farið af landi brott 13. júlí sl. og hafi verið gefin út handtökuskipun dómara honum til höfuðs og hann eftirlýstur á Schengen-svæðinu.
Þyki því brýnt með hliðsjón af gögnum málsins, sem verði að teljast umfangsmikið, en alls sjö aðilar hafi sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar þess og rökstuddum grunsemdum lögreglu, að vernda rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus en veruleg hætta sé talin á að hann torveldi rannsókn málanna með því að hafa áhrif, eftir atvikum á aðra samseka og eftir atvikum vitni og brotaþola ef hann fái að fara frjáls ferða sinna.
Þar sem um sé að ræða ætluð alvarleg brot telji lögregla að miklir rannsóknarhagsmunir séu í húfi. Kærði hafi sýnt af sér einbeittan brotavilja og sé í mikilli neyslu eins og dómur S-[...]/2013 frá 21. júní sl. beri með sér. Kærði hafi nú áfrýjað þeim dómi, en þar hafi hann hlotið 14 mánaða fangelsisdóm vegna hegningarlaga, vopna- og umferðarlagabrota. Þar hafi kærði rofið 10 mánaða fangelsisdóm frá héraðsdómi [...] vegna ráns og umferðarlagabrots frá 13. apríl 2012. Dómurinn frá 21. júní sl. hafi verið birtur kærða 3. júlí og hafi hann tekið sér 4 vikna áfrýjunarfrest.
Í málinu liggi fyrir mat Hæstaréttar Íslands um að lagaskilyrðum rannsóknargæslu sé fullnægt í tilviki kærða sbr. dóm réttarins nr. 469/2013.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 95. gr. og til að sæta einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga laga 88, 2008 um meðferð sakamála, sé þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún er sett fram.
Kærði mótmælti kröfunni og þá sérstaklega kröfunni um einangrun. Krafðist hann til vara að kröfunni yrði markaður skemmri tími. Kvaðst hann ekki hafa verið handtekinn fyrr en 9. júlí sl. en brotin hafi verið framin í byrjun júlí. Því séu engir rannsóknarhagsmunir lengur fyrir hendi.
Eins og rakið er að ofan er kærði grunaður um aðild að frelsissviptingu, grófri líkamsárás og ólögmætri nauðung. Með vísan til alls framanritaðs, svo og gagna málsins, er fallist á það með lögreglustjóra að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem fangelsisrefsing liggur við. Rannsókn málanna er ekki lokið og að sögn lögreglustjóra umfangsmikið og á frumstigi. Þá liggur fyrir að einn meðkærði hefur ekki fundist og ekki verið hægt að taka skýrslu af honum ennþá en búið er að gefa út handtökuskipun á hann. Gangi kærði laus má ætla að hann muni torvelda rannsókn málsins með því að skjóta undan munum eða hafa áhrif á samseka eða vitni. Samkvæmt þessu telst fullnægt skilyrðum a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi og er krafa lögreglustjóra því tekin til greina eins og hún er sett fram og nánar greinir í úrskurðarorði. Jafnframt er með sömu rökum fallist á að kærði sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldsvist hans stendur. sbr. b. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð:
Kærði, X, skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 7. ágúst 2013 kl. 16:00.
Kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.