Hæstiréttur íslands

Mál nr. 107/2013


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                                              

Mánudaginn 18. febrúar 2013.

Nr. 107/2013.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(enginn)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 15. febrúar 2013, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 15. febrúar 2013, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 21. febrúar 2013 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness föstudaginn 15. febrúar 2013.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess fyrir dóminum í gær að X, kt. [...], verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 21. febrúar 2013, kl. 16:00. Þá er þess krafist að kærði sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Í greinargerð lögreglustjórans kemur fram að lögreglan rannsaki póstsendingar hingað til lands frá Kaupmannahöfn í Danmörku.  Í póstsendingunum hafi verið að finna mikið magn sterkra fíkniefna, nánar um magn og tegund er vísað til meðfylgjandi efnaskýrslna. Lögregla hafi undir höndum myndbandsupptökur þar sem sjá megi kærða, ásamt öðrum mönnum póstleggja umræddar sendingar í Kaupmannahöfn. Kærði hafi verið handtekinn 24. janúar sl. grunaður um aðild að fíkniefnainnflutningnum og úrskurðaður í gæsluvarðhald 25. janúar sl., sem var staðfest með dómi Hæstaréttar Íslands nr. 57/2013.  Kærði hafi svo aftur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæslu 8. febrúar til 14. febrúar sl. og hafi sá úrskurður  verið staðfestur með dómi Hæstaréttar nr. 95/2003.

Kærði hafi neitað alfarið sök í fyrstu yfirheyrslum hjá lögreglu.  Í skýrslutöku 14. febr. hafi kærði lýst aðkomu sinni að málinu með þeim hætti að hann ætti afar takmarkaðan þátt í brotinu.  Hann kvaðst hafa vitað hvað til stóð og hans hlutverk hafi fyrst og fremst verið að halda meðkærða A félagsskap þarna úti og aðstoða hann við að koma sendingunum í póst. Hann kvað bróður sinn B vera aðalskipuleggjanda innflutningsins.

Það sé grunur lögreglu að kærði hafi ásamt fleiri aðilum staðið að innflutningi mikils magns sterkra fíkniefna hingað til lands. Rannsókn lögreglu sé hvergi nærri lokið og sé nauðsynlegt að yfirheyra kærða frekar og að hafa upp á og taka skýrslur af fleiri einstaklingum sem kunna að tengjast málinu.  Þá sé einnig beðið frekari gagna frá Danmörku. Mikilvægt sé í þágu rannsóknarinnar að unnt sé að bera upplýsingar undir kærða sjálfstætt á meðan hann sætir gæsluvarðhaldi og að hann sæti einangrun á þessu stigi rannsóknarinnar. Gangi kærði laus ferða sinna þá geti hann torveldað rannsókninni, s.s. með því að koma undan munum sem hafi sönnunargildi í málinu eða haft áhrif á aðra samverkamenn. Mál þetta sé stórt í sniðum og allumfangsmikið.  Það sé því afar brýnt að lögregla fái frekara svigrúm til að ná utan um rannsókn málsins. Enn gæti mikils ósamræmis í framburðum sakborninga og vitna og því nauðsynlegt fyrir lögreglu að taka frekari skýrslum af málsaðilum, jafnframt sem afla þurfi frekari gagna frá Danmörku. Kærði sé undir rökstuddum grun um aðild að afbroti sem allt að 12 ára fangelsisrefsing sé lögð við. Um sé að ræða stórfelldan innflutning fíkniefna, sem víst þyki að hafi átt að fara í sölu- og dreifingu hér á landi. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus. 

Í málinu liggi fyrir mat Hæstaréttar Íslands um að lagaskilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. sé fullnægt og ekkert nýtt fram komið í málinu sem breytt geti því mati.

Með vísan til framangreinds sé það mat lögreglustjóra að lagaskilyrðum rannsóknargæslu sé fullnægt. Með skírskotun til þess, framlagðra gagna og a.liðar 1. mgr. 95. og b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Kærði mótmælir kröfunni og kvaðst hafa lýst aðkomu sinni í síðustu skýrslutöku. Hafi hann takmarkaða aðild að málinu. 

Eins og rakið hefur verið hefur lögregla til rannsóknar umfangsmikið brot gegn  lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni. Þá getur brotið varðað við 173. gr. a laga nr. 19/1940 sannist sök í málinu.  Kærði hefur verið í gæsluvarhald frá  25. janúar sl. til dagsins í dag. Er nú gerð krafa um að hann sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 21. febrúar nk. kl. 16.00.

Fallast verður á með lögreglustjóra að kærði sé undir rökstuddum grun um brot sem varðað getur fangelsisrefsingu og með vísan til þess að kærði hefur breytt framburði sínum hjá lögreglu, sé nauðsynleg að bera þann framburð undir aðra kærða í málinu. Málið er umfangsmikið og miklir rannsóknarhagsmunir í húfi.

Skilyrði a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála eru því uppfyllt í málinu. Þess er krafist kærði sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur samkvæmt b- lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008.

                 Með vísan til rannsóknargagna og þess sem nú hefur verið rakið, a. liðar 1. mgr. 95. gr. og b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, er fallist á kröfu lögreglustjóra eins og hún er fram sett.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kvað upp þennan úrskurð.

Úrskurðarorð:

                Kærði, X, kt. [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 21. febrúar  2013, kl. 16:00.

                Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.