Hæstiréttur íslands

Mál nr. 593/2008


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


                                     

Þriðjudaginn 4. nóvember 2008.

Nr. 593/2008.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason, saksóknari)

gegn

X

(Brynjar Níelsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

  

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Páll Hreinsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 31. október 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 3. nóvember sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 30. október 2008, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 13. nóvember 2008 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 30. október 2008.

Með beiðni lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri í dag, er þess krafist að X, kt. [...], [...], Hafnarfirði, verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 13. nóvember 2008 kl. 16:00.

Í greinargerð lögreglustjórans segir að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi að undanförnu haft til rannsóknar ætlaða stórfellda framleiðslu og dreifingu fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu.  Á grundvelli þeirra upplýsinga sem hafi borist lögreglu og á grundvelli gagna sem lögreglan hafi aflað í þágu rannsóknar málsins sé talið að kærði standi að framleiðslu fíkniefna ásamt A og mögulega fleiri aðilum, m.a. B, sem talinn sé koma með einhverjum hætti að framleiðslunni eða í beinu framhaldi af henni, þ.e. sölu á efnunum.  Hafi kærði ásamt A verið með aðstöðu í tveimur iðnaðarhúsnæðum, að Y og Z, í Hafnarfirði og sé talið að framleiðslan hafi farið fram þar.  Hafi lögreglan fylgst með greindum stöðum og hafi kærði og A sést við bæði húsnæðin og hafi farið þar inn.  Nánar sé vísað til framlagðra gagna varðandi tengsl aðila við húsnæðin.

Þann 16. október sl. hafi kærði X verið handtekinn í þágu rannsóknar málsins og í kjölfarið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Að morgni þess dags hafi lögreglan farið inn í bæði framangreind iðnaðarhúsnæði. Inni í húsnæðinu að Z hafi verið mikið magn ætlaðra sterkra fíkniefna á framleiðslustigi, auk þess sem uppsett hafi verið tæki sem sérfræðingar beri um að unnt sé að nota við framleiðslu sterkra fíkniefna og hafi þar verið framleiðsla í gangi.  Tekin hafi verið sýni úr efnum á staðnum og fyrsta svörun hafi verið methamfetamine, en efnin hafi verið send til frekari greiningar.  Sérfræðingar hafi verið fengnir á vettvang til að meta umfang framleiðslunnar og ætlaða almannahættu sem kunni að hafa verið samfara framleiðslunni.  Samkvæmt þeirra upplýsingum kunni sprengihætta að fylgja efnaframleiðslu þeirri sem talið sé að hafi farið fram í húsnæðinu.  Sérfræðingar frá Europol, sem fóru á vettvang, hafi talið verksmiðjuna hafa mjög mikla framleiðslugetu og hafi fagmannlega verið að verki staðið.  Miðað við þau efni og þann tækjabúnað sem hafi verið í húsnæðunum töldu þeir möguleika á framleiðslu amfetamíns, methamfetamíns og MDMA.

 Í húsnæðinu að Y hafi fundist rúmlega 700 g af amfetamíni.

Við leit lögreglu að Z, hafi fundist rúmlega 18 kg af hassi í ferðatösku

Kærði muni skv. heimildum lögreglu stunda nám í efnafræði við Háskóla Íslands og hafi fundist mikið magn efnafræðibóka við leit á dvalarstað hans.  Telji lögregla ástæðu til að ætla að kærði búi yfir kunnáttu til þeirrar ætluðu fíkniefnaframleiðslu sem stöðvuð var þann 16. október sl. 

Kærði hefi borið svo um í skýrslutöku hjá lögreglu að hann hafi komið að framleiðslu á fenylaceton í þeim iðnaðarhúsnæðum sem áður greinir, en kannist ekki við frekari framleiðslu.  Hafi kærði ekki getað gert grein fyrir ástæðu fyrir framleiðslu á fenylaceton, en hann hafi komið að framleiðslunni að beiðni A.  Fenylaceton muni samkvæmt heimildum lögreglu vera efnasamband sem notað er við framleiðslu á amfetamíni. 

Rannsókn lögreglu miði að því að finna út hvernig staðið var að hinni ætluðu framleiðslu, umfangi framleiðslunnar, hvort efni hafi verið farin í dreifingu, fjármögnun, skipulagningu og hvort fleiri aðilar tengist ætlaðri framleiðslu og dreifingu.  Rannsóknin sé mjög umfangsmikil og hafi mikil vinna verið við gagnaöflun og úrvinnslu gagna og sé þeirri vinnu ekki lokið.

Kærði hafi í tvígang verið dæmdur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, auk annarra refsiverðra verknaða.  Kærða hafi þann 15. september sl. verið veitt reynslulausn í 3 ár á eftirstöðvum 1080 daga refsingar vegna dóms Hæstaréttar í máli nr. 410/2006.

Rökstuddur grunur sé um stórfellt fíkniefnabrot kærða.  Nauðsynlegt sé talið að kærði sæti gæsluvarðhaldi vegna málsins, svo honum sé fyrirmunað að setja sig í samband við ætlaða vitorðsmenn og/eða vitni og/eða að kærði geti komið undan gögnum sem sönnunargildi hafa í málinu og hafa ekki verið haldlögð.  Þyki þannig nauðsynlegt að vernda rannsóknarhagsmuni málsins með því að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi.

Nánar sé vísað til framlagðra gagna hvað varðar rökstuddan grun lögreglu um ætlaðan þátt kærða í hinu stórfellda fíkniefnabroti.

Til rannsóknar er ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til a liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. 

Kærði hefur mótmælt framkominni gæsluvarðhaldskröfu og krefst þess aðallega að henni verði hafnað en til vara að henni verði markaður skemmri tími.

Að öllu framanrituðu virtu, sem og gögnum málsins að öðru leyti, verður að fallast á það með lögreglustjóra að fyrir hendi sé rökstuddur grunur um að kærði hafi átt aðild að framleiðslu og dreifingu fíkniefna sem fangelsisrefsing er lögð við. Málið er umfangsmikið og stendur rannsókn þess enn yfir. Haldi kærði frelsi sínu gæti hann torveldað rannsókn málsins, haft áhrif á vætti hugsanlegra vitna eða vitorðsmanna. Eru uppfyllt skilyrði a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, um meðferð opinberra mála, til að kærða verði gert að sæta gæluvarðhaldi og þykir rétt að taka kröfu lögreglustjóra til greina eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði, en ekki þykja efni til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma en krafist er.

Finnbogi H. Alexandersson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð

Kærði, X, skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 13. nóvember 2008 kl. 16:00.