Hæstiréttur íslands

Mál nr. 407/2017

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari)
gegn
X (Ragnar Aðalsteinsson hrl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Afhending gagna

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu X um afhendingu geisladisks með myndupptöku.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson, Benedikt Bogason og Karl Axelsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 22. júní 2017 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 26. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 20. júní 2017, þar sem hafnað var kröfu varnaraðila um afhendingu geisladisks með myndupptöku. Kæruheimild er í c. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að „hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að afhenda verjanda ákærða afrit“ af fyrrnefndum geisladiski, en til vara að „verjandinn fái að afrita geisladiskinn.“ Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með dómum Hæstaréttar 21. september 2009 í málum nr. 495/2009, 496/2009 og 497/2009 var komist að þeirri niðurstöðu að hljóð- eða mynddiskar teljist ekki til skjala í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga nr. 88/2008 og var af þeim sökum synjað um afhendingu þeirra á rannsóknarstigi máls. Þá leiðir af dómum Hæstaréttar 1. nóvember 2010 í máli nr. 614/2010, 12. apríl 2012 í máli nr. 205/2012 og 21. febrúar 2017 í máli nr. 113/2017 að sama gildir um aðgang verjenda sakaðs manns að slíkum upptökum eftir að mál hefur verið höfðað. Af 1. mgr. 37. gr. laga nr. 88/2008 leiðir jafnframt að verjandi og sakborningur eiga rétt á að hlýða eða horfa á geisladiska sem eru meðal gagna málsins. Eðli máls samkvæmt á þetta bæði við fyrir og eftir málshöfðun. Fram er komið í málinu að sóknaraðili hefur boðið verjanda varnaraðila aðstöðu til að kynna sér efni mynddisksins hjá lögreglu. Samkvæmt þessu verður hinn kærði úrskurður staðfestur.

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur, sbr. 3. mgr. 220. gr. laga nr. 88/2008.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 20. júní 2017.

                Í málinu er ákærða gefinn að sök þjófnaður úr verslun. Meðal gagna málsins er geisladiskur með upptöku úr öryggismyndavél í versluninni. Á upptökunni sést maður ganga um verslunina með innkaupakerru og setja vörur í hana. Ákærði hefur krafist þess að verjanda hans verði afhent afrit af diskinum. Því hefur lögreglan hafnað en boðið í staðinn að verjandinn og ákærði geti horft á diskinn hjá lögreglu. Við þetta sætti ákærði sig ekki og krafðist þess að úrskurðað verði að hann fái afrit af disknum en til vara að honum verði heimilað að afrita hann.

                Ákærði byggir kröfu sína á 37. gr. laga nr. 88/2008 og heldur því fram að samkvæmt 1. mgr. hennar beri verjanda hans að fá afrit af öllum skjölum málsins sem varði sig svo fljótt sem verða má. Þetta beri að túlka svo að það eigi að afhenda verjandanum öll gögn sem hægt sé að afrita en ekki eingöngu pappírsgögn. Önnur niðurstaða væri í andstöðu við meginregluna um jafnræði aðila. Máli sínu til stuðnings vísar ákærði til ákvæða stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu.

               Sækjandinn hafnar kröfu ákærða og byggir á því að orðið „skjöl“ í nefndu ákvæði verði að skilja eftir orðanna hljóðan, það er gögn á pappír. Mynddiskar séu „önnur gögn“ og í ákvæðinu sé gert ráð fyrir að verjandinn geti fengið aðstöðu til að skoða þau. Máli sínu til stuðnings vísar sækjandinn til dómafordæma.

             Í nefndu ákvæði laga um meðferð sakamála segir að verjandi skuli, jafnskjótt og unnt er, fá afrit af öllum skjölum máls er varða skjólstæðing hans, svo og aðstöðu til að kynna sér önnur gögn málsins. Þetta hefur verið skýrt svo að afhendingarskylda nái ekki til annarra gagna en þeirra sem eru á pappír og verði afrituð. Hljóð- og mynddiskar falla ekki þar undir og verður því að hafna kröfu ákærða.

                Arngrímur Ísberg héraðsdómari kveður upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

                Hafnað er kröfu ákærða um að verjanda hans verði afhentur mynddiskur.