Hæstiréttur íslands

Mál nr. 304/2008


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Þriðjudaginn 3

 

Þriðjudaginn 3. júní 2008.

Nr. 304/2008.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir fulltrúi)

gegn

X

(Unnar Steinn Bjarndal hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. maí 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 2. júní 2008. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 30. maí 2008, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 6. júní 2008 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

                                    Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 30. maí 2008.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur krafist þess fyrir dóminum í dag að X fd. [...], rúmenskum ríkisborgara, verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 6. júní 2008, kl. 16.00, en til vara að henni verði gert að sæta farbanni allt til föstudagsins 20. júní 2008, kl. 16:00.

Kærða mótmælir kröfum sækjanda og krefst þess að þeim verði hafnað. Til vara er þess krafist að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Í greinargerð lögreglu segir að kærða hafi ásamt samferðamanni sínum og unnusta verið stöðvuð í tollhliði við reglubundið eftirlit er þau komu til landsins með flugi frá London sunnudaginn 18. maí s.l. Við leit í farangri kærðu hafi lögregla og tollgæsla fundið 60 óútfyllt kort, samskonar og greiðslukort, sem höfðu að geyma segulrönd. Hafi kortin verið vandlega falin innan um klæðnað í ferðatöskum kærðu og samferðamanns hennar.

   Rannsókn máls þessa er í fullum gangi. Telur lögreglan rökstuddan grun fyrir því að kærða og samferðarmaður hennar hafi ætlað að nota þau kort sem haldlögð voru í vörslum þeirra í ólögmætum tilgangi með því að koma þeim í umferð hér á landi. Þá hefur við rannsókn málsins komið fram að eitt kortanna var notað á Hótel Loftleiðum hér á landi þann 16. þessa mánaðar af lögmætum handhafa eða aðeins tveimur dögum áður en kærða og samferðarmaður hennar komu með kortin til landsins. Þá hefur komið í ljós að lögmætur handhafi þess greiðslukorts sem farmiðar kærðu og samferðarmanns hennar voru greiddir með er í vörslum hennar í Rúmeníu sem kveðst ekki hafa greitt farmiða til Íslands. Því telur lögreglustjóri að það kort kunni að vera falsað sem notað var við greiðslu farmiðanna. Með vísan til þessa telur lögreglustjóri að ætluð brot kærðu og samferðarmanns hennar kunni að vera mun umfangsmeiri og kunni að tengjast aðilum og skipulagðri glæpastarfsemi víða um heiminn. Þann 23. maí sl. kom samlandi kærðu og samferðarmanns hennar til landsins og hafði þann 27. maí sl. samband við lögmann í því skyni að grenslast fyrir um kærðu og samferðarmann hennar. Sá var handtekinn hér á landi í morgun og var yfirheyrður í dag. Ljóst er að verulegs ósamræmis gætir í framburði aðila í málinu. Þá er jafnframt ljóst að kærða og samferðarmaður hennar hafa ekki liðsinnt lögreglu í því að upplýsa málið og eru framburðir þeirra afar ótrúverðugir að mati lögreglu. Staðfest hefur verið af greiðslukortafyrirtækjum að 50 af kortum þeim sem kærða og samferðarmaður hennar höfðu undir höndum höfðu að geyma greiðslukortaupplýsingar sem greiðslukortafyrirtæki hafa gefið út, all flest á Bretlandseyjum. Vísar lögreglustjóri jafnframt til meðfylgjandi gagna málsins þar sem fram koma peningafærslur, annars vegar til samferðarmanns kærðu frá manni í USA og hins vegar tvær færslur frá kærðu og samferðarmanni hennar til manns, hvora færsluna upp á 1.600,00 €.

Meðal þess sem rannsaka þarf er aðdragandi ferðar kærðu til landsins og tengsl kærðu við hugsanlega vitorðsmenn á Íslandi og eða erlendis, þar á meðal þann aðila sem kom hingað til lands þann 23. maí sl auk annarra atriða. Þá hefur samferðarmaður kærðu eigi fallist á að heimila lögreglu að skoða síma sinn og þarf lögregla því að beita sérstakri rannsókn í því skyni en þar kunna að vera upplýsingar sem þörf er á að bera undir kærðu og samferðarmann hennar áður en þau ná að samræma framburði sína.

Lögreglustjóri telur fram kominn rökstuddan grun til að ætla að kærða og samferðarmaður hennar hafi brotið gegn ákvæðum XVII. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940, einkum 155. gr., með því að afrita kort og gefa út samskonar kort með greiðslukortaupplýsingum til notkunar og gegn XXVI. kafla sömu laga, einkum 248. og 249. gr. með því að hafa notað og ætlað að nota afrituð greiðslukort til greiðslu farmiða þeirra hingað til lands og til frekari úttekta og notkunar hér á landi. Kann ætluð háttsemi kærðu að varða fangelsisrefsingu allt að 8 árum. Lögregla telur að ætla megi að kærða kunni að torvelda rannsókn málsins og hafa áhrif á samseka gangi hún  laus.

Með vísan til alls framangreinds, gagna málsins, rannsóknarhagsmuna, a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála og XVII. og XXVI. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 telur lögreglustjóri brýna rannsóknarhagsmuni standa til þess að kærðu verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 6. júní 2008 kl. 16.00.

Kærða hefur sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Rannsókn málsins er ekki lokið og er ekkert fram komið annað en að henni sé hraðað eins og unnt er. Telja verður að enn séu fyrir hendi skilyrði téðs ákvæðis til að kærðu verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi. Verður því fallist á kröfu lögreglustjóra eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.  

Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærða, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 6. júní 2008, kl. 16.00.