Hæstiréttur íslands

Mál nr. 584/2006


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Þriðjudaginn 14

 

Þriðjudaginn 14. nóvember 2006.

Nr. 584/2006.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Egill Stephensen saksóknari)

gegn

X

(Bjarni Hauksson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 10. nóvember 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 13. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 10. nóvember 2006, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 17. nóvember 2006 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 10. nóvember 2006.

Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur lagt fram kröfu þess efnis að X, [kt. og heimilisfang], sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 17. nóvember 2006, kl. 16:00.

Í greinargerð lögreglu kemur fram að ávana- og fíkniefnadeild lögreglustjórans í Reykjavík rannsaki meint fíkniefnalagabrot kærða sem varði innflutning á fíkniefnum til landsins 12. og 13. október sl. Hinn 12. október sl. hafi þeir A, [kt.], og B, [kt.], verið handteknir eftir komuna til landsins frá Kaupmannahöfn. Hafi þeir verið handteknir í bifreiðinni [...] á Bústaðavegi við Reykjanesbraut. Í bifreiðinni hafi fundist fíkniefni. Þeir hafi báðir játað aðild sína að framangreindum innflutningi fíkniefna. Sé nánar vísað um þetta til framburðarskýrslna. Hinn 13. október sl. hafi svo C, [kt.], verið handtekinn eftir komu til landsins frá Kaupmannahöfn. Í fórum hans hafi fundist fíkniefni. Hann hafi játað sök og greint m.a. frá því að hann hafi flutt þau til landsins fyrir ónafngreinda aðila til að losna við fíkniefnaskuldir. Sé nánar vísað um þetta til framburðarskýrslna. Kærði hafi játað aðild sína að umræddum innflutningum. Segist hann hafa verið milliliður og sé ekki eigandi efnanna. Segist hann hafa verið í sambandi við eigendur fíkniefnanna sem hann neiti að nafngreina. Hans hlutverk hafi verið að finna menn til að fara erlendis til að sækja fíkniefni og aðstoða þá við að koma þeim til landsins. Nánar sé vísað til framburðarskýrslna af kærða dags. 1. og 8. nóvember sl. Símagögn lögreglu bendi til þess að kærði hafi verið í samskiptum við X, [kt.], sem lögreglu gruni að hafa staðið að umræddum innflutningi, sbr. fyrirliggjandi greinargerðir í rannsóknargögnum. X hafi verið handtekinn og yfirheyrður hinn 7. nóvember sl. og hafi neitað aðild að meintu broti. Nánar um framburð hans sé vísað til framburðarskýrslna af kærða.

Kærði þyki vera undir rökstuddum grun um aðild að fíkniefnabroti. Rannsókn lögreglu miði áfram, en nauðsynlegt sé að upplýsa nánar um meinta aðild kærða að brotinu og tengsl hans við aðra sakborninga sem tengist málinu. Í málinu eigi eftir að fara fram frekari yfirheyrslur yfir sakborningum, bæði þeim sem hafi verið handteknir vegna málsins og þeim sem gangi lausir og lögregla telji tengjast fjármögnun, kaupum á fíkniefnunum og ætlaðri móttöku og dreifingu efnanna hér á landi. Nauðsynlegt sé að kærði sæti gæsluvarðhaldi en ljóst sé að gangi kærði laus geti hann sett sig í samband við aðra sakborninga í málinu og þessa meintu vitorðsmenn sem gangi lausir eða þeir geti sett sig í samband við hann eða kærði geti komið undan gögnum með sönnunargildi sem ekki hafi verið lagt hald á. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknar­hagmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus. 

Sakarefnið sé talið geta varðað við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 64/1974 og 1. gr. laga nr. 32/2001. Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.

Með vísan til þess sem fram kemur í greinargerð lögreglustjóra og þess sem rannsóknargögn málsins bera með sér er fallist á að kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem varðað geta fangelsisrefsingu. Rannsókn málsins virðist enn vera í fullum gangi og er fallist á að kærði geti torveldað rannsókn málsins með því að koma undan sönnunargögnum eða hafa áhrif á vitni eða samseka gangi hann laus.  Er því fallist á kröfu um gæsluvarðhald eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði. 

Ásgeir Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn

Úrskurðarorð:

Kærði, X, [kt.], sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 17. nóvember 2006, kl. 16.00.