Hæstiréttur íslands
Mál nr. 566/2010
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
Föstudaginn 1. október 2010. |
|
|
Nr. 566/2010. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Páll Hreinsson og Viðar Már Matthíasson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 29. september 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. september 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 8. október 2010 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Verði ekki fallist á kröfu um að hafna gæsluvarðhaldi krefst varnaraðili þess að sér verði ekki gert að sæta einangrun á gæsluvarðhaldstíma.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. september 2010.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 8. október n.k. kl. 16:00.
Þá er gerð krafa um að sakborningur sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsaki nú ætluð stórfelld brot gegn 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og gegn peningaþvættisákvæði almennra hegningarlaga sbr. 264 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur þann 15. september sl., sem staðfestur hafi verið með dómi Hæstaréttar Íslands nr. 541/2010, hafi sakborningur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til dagsins í dag, á grundvelli rannsóknarhagsmuna í málinu.
Upphaf þessa máls séu tilkynningar frá Íslandsbanka og frá Arion banka um peningafærslur sem hafi þótt grunsamlegar og ekki samrýmst upplýsingum og eða viðskiptum hjá reikningshöfum í bönkunum.
Við könnun lögreglu hafi komið í ljós að um hafi verið að ræða greiðslur inn og út af reikningum tveggja fyrirtækja A, kt. [...], og B, kt. [...]. Hafi reikningsyfirlit sýnt háar fjárgreiðslur frá tollstjóra inn á reikninga þessar tveggja fyrirtækja. Fjárhæðirnar hafi síðan smám saman verið teknar út af reikningunum fyrirtækjanna að mestu í reiðufé. Innlagnir og úttektir sem til rannsóknar séu hafi átti sér stað frá október 2009 til júní 2010.
Við upplýsingaöflun lögreglu m.a. hjá skattrannsóknarstjóra hafi komið í ljós að hinar háu greiðslur inn á reikningana hafi verið endurgreiðslur á innskatti vegna endurbóta á húsnæði en slíkar endurgreiðslur séu gerðar á grundvelli sérstakrar skráningar á virðisaukaskattsskrá skv. reglugerð nr. 577/1989. Við nánari eftirgrennslan um grundvöll þessara endurgreiðslna hafi komið í ljós að húsnæði það sem félögin tvö hafi fengið endurgreiddan innskatt vegna hafi aldrei verið í eigu félaganna eða þeirra einstaklinga sem að þeim hafi staðið eða verið í forsvari fyrir þau. Endurgreiðslurnar hafi því byggt á röngum og/eða tilhæfulausum grundvelli og bendi því allt til að greiðslurnar hafi verið fengnar með sviksamlegum hætti úr ríkissjóði. Endurgreiðslur á innskatti til A, hafi verið samtals kr. 174.330.155, sem lagðar hafi verið inn á reikning félagsins í Arionbanka. Endurgreiðslur til B, hafi verið samtals kr. 103.000.000., sem lagðar hafi verið inn á reikning félagsins í Íslandsbanka.
Sakborningur, X, hafi verið með prókúru á bankareikning B og er skráð fyrir úttektum af bankareikningi félagsins samtals að fjárhæð kr. 134.720.760 auk þess sem hún millifærði kr. 8.000.000 yfir á reikning A. X sagði Y hafa beðið sig um að gerast prókúruhafi á bankareikningnum. Hann hafi sagst þurfa að ná út peningum og gæti ekki tekið þá út sjálfur en ekki útskýrt það nánar. Y hafi síðan reglulega beðið hana um að taka út peninga á árunum 2009 og 2010. Hafi hann sagt henni að fara á milli banka og taka út. Hún hafi sótt peningana í bankana, tekið út í reiðufé sem hún fór með heim til sín og afhenti svo Y peninginn þar. X sagði Y hafa sagst ætla að aðstoða hana þar sem hún aðstoðaði hann og taldi hún hann hafa greitt sér um 1 milljón á þeim sem úttektirnar stóðu. Hún hafi vitað að Z og Þ hafi líka verið að taka út peninginn fyrir Y.
Að undangengnum úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur hinn 14. september sl., hafi verið framkvæmd húsleit á heimili X og fundist þar taska með um 11 kg af kannabisefni. X hafi sagt Y hafa beðið hana um að geyma þessa tösku. Hún hafi vitað að taskan innihéldi eitthvað ólöglegt en ekki hvað.
Með vísan til framangreinds og til gagna málsins er uppi rökstuddur grunur um að sakborningur hafi gerst sek um peningaþvætti og átt þátt í stórfelldu fíkniefnabroti og umfangsmiklum brotum gegn skattalögum.
Rannsókn málsins sé margþætt og umfangsmikil. En auk kærða sæti fimm aðrir einstaklingar gæsluvarðhaldi. Gögn og upplýsingar benda til að hlutverkum hefur verið skipt á milli einstaklinganna í brotum þessum. Þá virðist rannsókn málsins hafa leitt í ljós að maður að nafni Y hafi einn, eða ásamt öðrum, skipt verkum á milli aðilanna, gefið þeim fyrirmæli og móttekið fjármunina frá umræddum einstaklingum. Þá liggi og fyrir að sakborningar málsins hafi þegið hluta afrakstursins frá Y.
Margir fleiri aðilar tengist málinu og eigi lögregla enn eftir að yfirheyra fjölda manns, fara yfir umfangsmikil tölvugögn og rekja slóð þeirra peninga sem sviknir hafi verið úr ríkissjóði. Y, sem verið hafi eftirlýstur, hafi í fyrrakvöld að íslenskum tíma verið handtekinn í [...]. Nú liggi fyrir að fá hann framseldan og yfirheyra hann. Að mati lögreglu sé mikilvægt að tryggja að Y verði yfirheyrður áður en hann eigi þess kost að komast í samband við þá sem nú sitja í gæsluvarðhaldi. Megi ætla að ef sakborningur verði látinn laus muni hann eiga þess kost að torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að hafa samband við samverkamenn eða með því að koma undan fjármunum og gögnum. Lögregla telur það brýnt fyrir framgang málsins að fallist verði á kröfu um gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna svo unnt sé að ljúka nauðsynlegri rannsókn án þess að sakborningur geti spillt rannsókninni. Af framangreindum ástæðum sé einnig farið fram á að sakborningur sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.
Í málinu liggi fyrir mat Hæstaréttar Íslands um að lagaskilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 sé fullnægt í máli þessu og sé ekkert nýtt fram komið í málinu sem breytt geti því mati.
Meint sakarefni séu stórfelld fíkniefna- og skattalagabrot og peningaþvætti en brotin séu talin geta varðað við almenn hegningarlög nr. 19/1940 og lög um virðisaukaskatt nr. 50/1988. Við þessum brotum liggi allt að 12 ára fangelsisrefsing. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Um heimild til einangrunar á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur er vísað til b-liðar 1. mgr. 99. gr. sömu laga.
Til rannsóknar eru ætluð brot gegn 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og gegn peningaþvættisákvæði almennra hegningarlaga auk fíkniefnabrots, og er rökstuddur grunur um háttsemi kærðu sem getur varðað allt að 12 ára fangelsi. Fallist er á með lögreglu að brýnir hagsmunir séu fyrir því að kærðu verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, enda er rannsókn málsins, sem er allumfangsmikil, á því stigi að líklegt má telja að kærða geti torveldað hana gangi hún laus. Með vísan til framangreinds, hjálagðra gagna og a- liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, er krafa ríkislögreglustjóra tekin til greina þannig að kærða sæti áfram gæsluvarðhaldi til föstudagsins 8. október nk. kl. 16.00. Þá er með sömu rökum fallist á að kærða sæti einangrun skv. b- lið 1. mgr. 99. gr. laganna.
Allan V. Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærða, X, kt. [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 8. október n.k. kl. 16.00.
Kærða skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.