Hæstiréttur íslands

Mál nr. 223/2001


Lykilorð

  • Niðurfelling máls
  • Gjafsókn


Fimmtudaginn 29

 

Fimmtudaginn 29. nóvember 2001.

Nr. 223/2001.

Sigrún Stefánsdóttir

(Helgi Birgisson hrl.)

gegn

íslenska ríkinu

(Skarphéðinn Þórisson hrl.)

 

Niðurfelling máls. Gjafsókn.

 

Mál S gegn íslenska ríkinu var fellt niður eftir að aðilar höfðu lýst því yfir að þeir hefðu orðið sammála um það. Talið var rétt að aðilarnir bæru hvor sinn kostnað af málinu fyrir Hæstarétti, en kveðið á um að gjafsóknarkostnaður S fyrir Hæstarétti greiddist úr ríkissjóði.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Gunnlaugur Claessen.

Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 18. júní 2001. Í bréfi áfrýjanda 27. nóvember 2001 og bréfi stefnda 28. sama mánaðar kemur fram að aðilar hafi orðið sammála um að fella málið niður. Áfrýjandi krefst málskostnaðar úr hendi stefnda án tillits til gjafsóknar, sem henni hefur verið veitt fyrir Hæstarétti.

Stefndi krefst þess að málskostnaður fyrir Hæstarétti verði felldur niður.

Með vísan til c. liðar 1. mgr. 105. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. 166. gr. sömu laga eins og henni var breytt með 20. gr. laga nr. 38/1994, er málið fellt niður fyrir Hæstarétti.

Rétt er að aðilarnir beri hvort sinn kostnað af málinu fyrir Hæstarétti.

Gjafsóknarkostnaður áfrýjanda greiðist úr ríkissjóði eins og nánar greinir í dómsorði.

Dómsorð:

Mál þetta er fellt niður.

Málskostnaður fyrir Hæstarétti fellur niður.

Allur gjafsóknarkostnaður áfrýjanda, Sigrúnar Stefánsdóttur, fyrir Hæstarétti greiðist úr ríkissjóði, þar með talin þóknun lögmanns hennar, 75.000 krónur.