Hæstiréttur íslands
Mál nr. 515/2012
Lykilorð
- Niðurfelling máls
- Málskostnaður
- Gjafsókn
|
|
Fimmtudaginn 17. janúar 2013. |
|
Nr. 515/2012.
|
K (Hildur Sólveig Pétursdóttir hrl.) gegn M (Þyrí Steingrímsdóttir hrl.) |
Niðurfelling máls. Málskostnaður. Gjafsókn.
Aðilar deildu um forsjá barns síns og var málið fellt niður að ósk K. Voru aðilar sammála um að leggja það í dóm um málskostnað. Talið var rétt að málskostnaður fyrir Hæstarétti félli niður og að gjafsóknarkostnaður M fyrir réttinum greiddist úr ríkissjóði.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Eiríkur Tómasson og Þorgeir Örlygsson og Ingveldur Einarsdóttir, settur hæstaréttardómari.
Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 25. júlí 2012. Með bréfi 4. janúar 2013 féll áfrýjandi frá áfrýjun sinni. Aðilar óska eftir því að dómur gangi um málskostnað. Þau krefjast hvort um sig málskostnaðar fyrir Hæstarétti úr hendi hins, en stefndi gerir þá kröfu fyrir sitt leyti án tillits til gjafsóknar sem honum hefur verið veitt fyrir réttinum.
Með vísan til c. liðar 1. mgr. 105. gr., sbr. 166. gr., laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála er málið fellt niður.
Rétt er að málskostnaður fyrir Hæstarétti falli niður.
Um gjafsóknarkostnað stefnda fer eftir því sem segir í dómsorði.
Dómsorð:
Mál þetta er fellt niður.
Málskostnaður fyrir Hæstarétti fellur niður.
Allur gjafsóknarkostnaður stefnda, M, fyrir Hæstarétti greiðist úr ríkissjóði, þar með talin málflutningsþóknun lögmanns hans, 500.000 krónur.