Hæstiréttur íslands

Mál nr. 659/2007


Lykilorð

  • Kærumál
  • Málskostnaður


         

Fimmtudaginn 10. janúar 2008.

Nr. 659/2007.

Guðmundur Sigfússon og

Vátryggingafélag Íslands hf.

(Hákon Árnason hrl.)

gegn

Guðrúnu Helgu Magnúsdóttur

(enginn)

 

Kærumál. Málskostnaður.

 

Varnaraðili ákvað að fella mál sitt gegn sóknaraðilum niður og það án þess að þeir hefðu greitt neinn hluta af stefnukröfu hennar. Eins og atvikum málsins var háttað varð í samræmi við meginreglu 2. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála að fallast á kröfu sóknaraðila um að málskostnaður yrði felldur niður.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Páll Hreinsson.

Sóknaraðilar skutu málinu til Hæstaréttar með kæru 6. desember 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 19. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 28. nóvember 2007, þar sem fellt var niður mál, sem varnaraðili höfðaði gegn sóknaraðilum og þeim gert að greiða varnaraðila 411.106 krónur í málskostnað. Kæruheimild er í g. lið 1. mgr. 143. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Sóknaraðilar krefjast þess að málskostnaðarákvörðun hins kærða úrskurðar verði felld úr gildi og honum breytt á þann veg að málskostnaður verði felldur niður og  gjafsóknarkostnaður varnaraðila, 411.106 krónur, greiðist úr ríkissjóði.

Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka.

Í hinum kærða úrskurði kemur fram að við fyrirtöku málsins 22. nóvember 2007 hafi aðilar óskað eftir því að fella málið niður. Af gögnum málsins má hins vegar ráða að varnaraðili ákvað að fella málið niður og það án þess að sóknaraðilar hefðu greitt neinn hluta af stefnukröfu varnaraðila. Eins og atvikum málsins er háttað verður í samræmi við meginreglu 2. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 að fallast á kröfu sóknaraðila um að málskostnaður verði felldur niður.

Dómsorð:

Málskostnaður í héraði fellur niður.

Ákvæði hins kærða úrskurðar um gjafsóknarlaun er staðfest.

                                                        

            

                              Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 28. nóvember 2007.

             Mál þetta var tekið til úrskurðar 22. nóvember 2007.

             Stefnandi er Guðrún Helga Magnúsdóttir.

             Stefndu eru Guðmundur Sigfússon og Vátryggingafélag Íslands hf.

             Dómkröfur stefnanda í málinu eru að stefndu verði in solidum dæmdir til að greiða stefnanda skaðabætur að fjárhæð kr. 14.518.652, með vöxtum og dráttarvöxtum eins og nánar greinir í stefnu, vegna afleiðinga umferðarslyss sem hún varð fyrir 25. september 1996.

             Við fyrirtöku málsins 22. nóvember 2007 óskuðu aðilar eftir að fella málið niður. 

             Lögmaður stefnanda krafðist málskostnaðar eins og málið væri ekki gjafsóknarmál og lagði í úrskurð dómsins.

             Stefnandi hefur gjafsókn samkvæmt gjafsóknarleyfi dagsettu 22. júní 2006.

             Eftir niðurstöðu málsins verða stefndu dæmd til að greiða stefnanda kr. 411.106 í málskostnað sem renni í ríkissjóð.

             Gjafsóknarkostnaður stefnanda, sem er málflutningsþóknun lögmanns hennar að meðtöldum virðisaukaskatti, samtals kr. 411.106 greiðist úr ríkissjóði.

             Þorgerður Erlendsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurðinn.

                                                          Úrskurðarorð:

              Mál þetta er fellt niður.

             Stefndu greiði stefnanda 411.106 krónur í málskostnað, sem renni í ríkissjóð.

             Gjafsóknarkostnaður stefnanda 411.106 krónur greiðist úr ríkissjóði.