Hæstiréttur íslands

Mál nr. 98/2011


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
  • Sératkvæði


Fimmtudaginn 17. febrúar 2011.

Nr. 98/2011.

Ákæruvaldið

(Sigríður Elsa Kjartansdóttir

settur vararíkissaksóknari)

gegn

X

(Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Sératkvæði.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 15. febrúar 2011 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 15. febrúar 2011, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi „í 4 vikur eða til 15. mars 2011“, klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Ákæra hefur verið gefin út á hendur varnaraðila og mun málið verða þingfest í dag. Með þessari athugasemd, en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar, verður hann staðfestur á þann hátt sem í dómsorði greinir.

Dómsorð:

Varnaraðili, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi allt þar til dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til þriðjudagsins 15. mars 2011, klukkan 16.

Sératkvæði

Jóns Steinars Gunnlaugssonar

Ekki er unnt að fallast á með sóknaraðila að fram sé kominn sterkur grunur um að varnaraðili hafi gerst sekur um tilraun til stórfelldrar líkamsárásar, sem geti varðað við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, né hafi sóknaraðili sýnt fram á að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Vísast um þetta til sératkvæðis míns 12. janúar 2011 í hæstaréttarmálinu nr. 15/2011. Tel ég af þessum ástæðum að ekki séu uppfyllt skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála fyrir gæsluvarðhaldi varnaraðila og beri því að fella hinn kærða úrskurð úr gildi.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 15. febrúar 2011.

Ríkissaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], [...], [...], með dvalarstað í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg, verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi í 4 vikur eða til 15. mars 2011, kl. 16.00.

Í greinargerð ríkissaksóknara kemur fram að samkvæmt rannsóknargögnum málsins hafi kærði farið þann 24. desember sl.  ásamt þremur öðrum mönnum að [...], Reykjavík, í því skyni að ráðast þar að húsráðanda kæranda, A. Fyrir liggi að þegar komið hafi verið á vettvang hafi tveimur haglaskotum verið skotið á útidyrahurð hússins en kærandi, sambýliskona hans og tvö ung börn þeirra höfðu þá flúið úr íbúðinni. Fyrir liggi að kærði og félagar hans flúðu af vettvangi þegar lögregla koma á vettvang skömmu eftir að skotunum hafði verið hleypt.

Samkvæmt rannsóknargögnum á árásin sér nokkurn aðdraganda. Íbúi í [...] hafi skýrt frá því í framburði sínum hjá lögreglu að hún hafi fengið heimsókn tveggja manna eftir kl. 01.00 aðfaranótt 24. desember sem hafi bankað og kallað á A. Þegar hún opnaði hurðina hafi þeir ruðst inn og farið um íbúðina til þess að leita að A. Á leið út hafi þeir skellt hurð á hendi hennar og hafi hún við það hlotið áverka á hægri hendi. Vitnið kvaðst hafa verið svo skelkuð að hún hafi ekki þorað að hringja á lögreglu.

Kærandi hafi lýst því í framburði sínum hjá lögreglu að hann hafi um nokkurt skeið orðið að þola hótanir og líkamsárásir frá nafngreindum manni og félögum hans. Þessi maður hafi margsinnis reynt að rukka hann vegna fíkniefnaviðskipta og segir hann að atgangur mannsins hafi verið mjög ógnandi og hættulegur. Hann hafi fengið heimsókn þessa manns 21. desember og hafi maðurinn þá barið hann fyrir framan börnin sín. Aftur hafi menn komið á heimili hans á Þorláksmessu og verið með mikinn fyrirgang. Á aðfangadag hafi menn sem hann telji að séu á vegum sama manns bankað hjá honum. Hann hafi þá verið búinn að koma konu sinni og börnum út um bakdyr og til nágranna sinna. Hann kvaðst hafa stuggað við þeim með því að stinga járnröri út um bréfalúguna og farið í kjölfarið sjálfur til nágranna sinna. Skömmu seinna hafi verið skotið á hurðina.

Gögn málsins bendi til þess að kærði hafi í félagi við þrjá aðra, vopnaðir haglabyssu, ætlað að brjóta sér leið inn íbúðarhús í því skyni að fremja þar líkamsárás. Kærði hafi viðurkennt að hafa verið á vettvangi í umrætt sinn vitandi að kærðu höfðu byssu meðferðis og að kærðu hafi sagt honum að ætlun þeirra væri að hræða kæranda. Einnig hafi hann viðurkennt að hafa skömmu áður komið með látum á vettvang ásamt kærða Y sem hafi orðið til þess að kærandi flúði af heimili sínu.

Mál þetta hafi borist ríkissaksóknara hinn 24. janúar sl., ákæra hafi verið gefin út hinn 10. febrúar sl. og verði málið þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur hinn 17. febrúar nk.

Kærði hafi verið samfellt í gæsluvarðhaldi frá því að hann var handtekinn hinn 24. desember sl., sbr. úrskurðir Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. . R-528/2010 og R-3/2011 R-85/2011 og dómur Hæstaréttar í máli nr. 15/2011.

Grunur leiki á að kærði hafi með háttsemi sinni brotið gegn 231. gr., 4. mgr. 220. gr. og 2. mgr. 218. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga en brot gegn 2. mgr. 218. gr.  geti varðar allt að 16 ára fangelsi.

Með vísan til tilvitnaðra lagaákvæða, alvarleika sakarefnis og á grundvelli almannahagsmuna þyki nauðsynlegt að kærði sæti gæsluvarðhaldi þar til dómur hefur gengið í máli hans.

Með vísan til framangreinds er þess krafist að framangreind krafa nái fram að ganga.

Með vísan til dóms Hæstaréttar Íslands í máli nr. 15/2011 hefur því verið slegið föstu af Hæstarétti að kærði er undir sterkum grun um að hafa framið brot gegn almennum hegningarlögum nr. 19/1940, sem varðað getur 10 ára fangelsi, með því að hafa í félagi við aðra, vopnaðir haglabyssu, ætlað að brjóta sér leið inn í íbúðarhús í því skyni að fremja þar líkamsárás. Í þeim dómi var fallist á að ætlað brot kærða sé þess eðlis að uppfyllt sé skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Ekkert er nýtt fram komið í málinu sem hnekkir þessu fyrra mati Hæstaréttar. Þá liggur fyrir að ákæra hefur verið gefin út á hendur kærða vegna verknaðarins eins og áður er rakið. Með hliðsjón af þessu eru uppfyllt skilyrði fyrir áframhaldandi gæsluvarðhaldi yfir kærða og verður fallist á kröfu ríkissaksóknara eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði, enda þykja ekki efni til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma.

Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

Kærði, X, kt. [...], skal áfram sæta gæsluvarðhaldi í 4 vikur eða til 15. mars 2011, kl. 16.00.