Hæstiréttur íslands
Mál nr. 56/2010
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Miðvikudaginn 3. febrúar 2010. |
|
Nr. 56/2010. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Brynjar Níelsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95 gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 1. febrúar 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 2. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 29. janúar 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 26. febrúar 2010 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 29. janúar 2010.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess, að X, kt. [...], verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til föstudagsins 26. febrúar 2010 kl. 16:00.
Kærði mótmælir gæsluvarðhaldskröfunni og krefst þess að henni verði hafnað.
Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að ávana- og fíkniefnadeild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi nú til rannsóknar mál er varðar ætlaðan innflutning á töluverðu magni af amfetamíni hingað til lands. Rannsókn lögreglu hafi hafist er henni bárust upplýsingar um að kærði X og meðkærði Y væru að skipuleggja innflutning á fíkniefnum til landsins.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu hafi staðið til að flytja fíkniefnin til landsins með skipinu A, sem kærði Y sé skipverji á. Skipið hafi komið til landsins 12. janúar sl. og daginn eftir, hafi kærði Y verið handtekinn en við leit á honum hafi fundist rúmlega 4 kg af amfetamíni. Að sögn Y hafi hann átt að afhenda fíkniefnin í íbúð að M í Reykjavík. Fíkniefnunum hafi verið skipt út fyrir gerviefni og þau afhent undir eftirliti lögreglu. X hafi verið í íbúðinni og hafi hann verið handtekinn í framhaldinu og hafi kærðu báðir sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins frá 14. janúar sl.
Við skýrslutökur hjá lögreglu hafi kærði í fyrstu neitað sök. Hann hafi nú breytt framburði sínum hjá lögreglu og játað að hafa staðið að innflutningi á ofangreindum fíkniefnum hingað til lands. Að sögn X hafi það verið óþekktur aðili sem kom þeim Y saman. X kvað þá Y hafa hist nokkrum sinnum og sammælst um að Y myndi flytja inn fíkniefni til landsins með skipi sem hann var starfsmaður hjá. Kvaðst X hafa fundið aðila er hafði áhuga á að borga fyrir fíkniefnin. Þá muni X hafa farið til Hollands að beiðni þessa óþekkta aðila, ásamt öðrum óþekktum aðila. Að sögn X hafi þeir farið til Breda í Hollandi, en þar muni óþekkti aðilinn hafa sótt fíkniefnin og afhent þau X. Því næst hafi X hitt Y og afhent honum fíkniefnin. Þá muni Y hafa flutt fíkniefnin hingað til lands með skipinu A og komið síðan með fíkniefnin heim til X að M. Kvaðst X þá hafa greitt Y 400.000 krónur. Að sögn X vissi hann ekki hvað hann átti að gera við fíkniefnin í framhaldinu.
Lögreglustjóri kveður rannsókn lögreglu miða áfram en hún snúi nú að þáttum er varðar skipulagningu og fjármögnun brotsins. Framundan sé úrvinnsla þeirra gagna sem þegar liggi fyrir og þeirra gagna sem lögreglu eigi eftir að berast. Þá séu einnig fyrirhugaðar frekari yfirheyrslur yfir kærðu.
Kærði X þyki vera undir sterkum rökstuddum grun um aðild að broti sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Ætluð aðild kærða þyki mikil og sé talin tengjast skipulagningu og flutningi fíkniefnanna hingað til lands. Nær öruggt sé að fíkniefnin hafi átt að fara í sölu og dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi. Þá leggi lögregla jafnframt til grundvallar kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald að um mjög mikið magn hættulegra fíkniefna sé að ræða. Hið ætlaða brot kærða þyki mjög alvarlegt. Með tilliti til hagsmuna almennings þyki þannig nauðsynlegt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til meðferðar en telja verði að ef sakborningur, sem orðið hefur uppvís að jafn alvarlegu broti og kærði, gangi laus áður en máli lýkur með dómi, þá valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Staða kærða í málinu þyki sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. mál Hæstaréttar nr. 136/2008, 306/2008, 635/2007, 376/2006, 377/2006, 378/2006, 154/2006, 368/2005, 93/2005, 488/2004, 269/2004, 417/2000 og 471/1999, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að uppkvaðningu dóms þegar legið hefur fyrir rökstuddur grunur um beina aðild að innflutningi að miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni. Ekki sé talin ástæða til að ætla að refsimat og réttarvitund almennings í slíkum málum hafi breyst frá því téðir dómar voru uppkveðnir, og sé talið að skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé fullnægt í því máli sem hér um ræðir.
Til rannsóknar sé ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
Að öllu framanrituðu virtu, sem og gögnum málsins að öðru leyti, verður að fallast á það með lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, að fyrir liggi sterkur grunur um að kærði hafi gerst sekur um brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga, en slíkt brot getur varðað allt að 12 ára fangelsi. Verður því talið að uppfyllt séu skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og ætluð brot ákærða talin þess eðlis að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Ekki þykja efni til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma en krafist er. Er því fallist á kröfu lögreglustjóra eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Finnbogi H. Alexandersson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, kt. [...], sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 26. febrúar nk. kl. 16:00.