Hæstiréttur íslands

Mál nr. 624/2008


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


                                     

Þriðjudaginn 18. nóvember 2008.

Nr. 624/2008.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir, fulltrúi)

gegn

X

(Unnar Steinn Bjarndal hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Páll Hreinsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 14. nóvember 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 17. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 14. nóvember 2008, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 21. nóvember 2008 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði staðfestur en til vara að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 19. desember 2008 kl. 16.

Varakrafa sóknaraðila gengur lengra en aðalkrafa hans og er því ekki til álita í málinu.

Samkvæmt gögnum málsins virðist grunur um kynferðisbrot gegn þriggja ára dóttur varnaraðila, ekki aðeins beinast að honum, heldur sé hugsanlegt að fleiri gætu átt þar hlut að máli. Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 14. nóvember 2008.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur krafist þess að kærða, X, kt. [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 21. nóvember nk. kl. 16:00 en til vara að honum verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 19. desember nk. kl. 16:00.

Kærði hefur mótmælt framkomnum kröfum um gæsluvarðhald og krefst þess að þeim verði hafnað. Til vara krefst hann þess í báðum tilvikum að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Í greinargerð lögreglustjóra segi að honum hafi borist beiðni þann 4. nóvember sl. um lögreglurannsókn á ætluðu kynferðisbroti gegn barninu A, þriggja ára dóttur kærða, sem lúti forsjá hans. Hafi strax þótt rökstuddur grunur um að kærði, faðir barnsins, hefði brotið gegn barninu kynferðislega. Hafi kærði verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald frá 6. nóvember sl. til dagsins í dag kl. 16.00. Er vísað nánar til rannsóknargagna málsins og úrskurða í málum nr. R-546/2008 og 549/2008 sem staðfestur hafi verið í Hæstarétti Íslands.

Í greinargerðinni segir að aðalkrafa lögreglustjóra byggi á því að enn séu fyrir hendi slíkir rannsóknarhagsmunir að nauðsynlegt þyki að kærða verði áfram  gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Frá því að rannsókn málsins hófst hjá lögreglu hafi verið unnið hörðum höndum að því að afla gagna í málinu og þar á meðal að taka skýrslur af vitnum og aðstandendum barnsins en eðli málsins samkvæmt hafi verið örðugt að nálgast innsta hring barnsins þar sem eini forsjáraðili barnsins sé grunaður í málinu. Þá hafi verið framkvæmdar húsleitir og haldlögð gögn rannsökuð. Einnig hafi bæði kærði og þolandi sætt læknisrannsókn og sé sérstaklega vísað til niðurstöðu og læknisvottorðs Jóns R. Kristinssonar barnalæknis. Enn sé beðið niðurstöðu þeirra rannsókna.

Með hliðsjón af þeirri rannsókn sem fram hafi farið hjá lögreglu og enn sé í fullum gangi þykir lögreglu sterkur rökstuddur grunur fyrir því að þolandi hafi sætt kynferðislegu ofbeldi. Með vísan til gagna málsins og atvika allra þykir lögreglu jafnframt sterkur rökstuddur grunur fyrir því að kærði, faðir þolanda, hafi beitt þolanda ofbeldinu.

Sé það mat lögreglu að gangi kærði laus megi ætla að hann torveldi til muna rannsókn lögreglu með því að samræma framburð sinn við framburð vitna og hugsanlegra samverkamanna sinna. Þá telji lögregla nauðsynlegt að niðurstöður læknisrannsókna, þ.e. meðal annars kynsjúkdómaprófa, áður en kærði sé látinn laus svo hann geti ekki samræmt framburð sinn við framburð annarra. Þá hafi í skýrslutökum hjá lögreglu komið fram að hugsanlega kunni fleiri kynferðisbrot að hafa verið framin.

Lögreglustjóri byggi varakröfu sína á því að hann telji ætlaða háttsemi kærða mjög alvarlega og að öðrum börnum kunni að vera hætta búin gangi kærði laus. Lögreglustjóri telur að sterkur rökstuddur grunur sé til að ætla að kærði hafi brotið gegn barni sínu á sérstaklega ófyrirleitinn hátt sem eini forsjáraðili barnsins og því séu fyrir hendi sérstaklega ríkir almannahagmunir sem krefjist þess að kærði sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi. Þá vísi lögreglustjóri sérstaklega til greinargerðar til Hæstaréttar í kærumáli kærða gegn lögreglustjóranum á Suðurnesjum vegna máls R-549/2008 og þeirra læknisfræðilegu rannsókna sem framkvæmdar hafa verið á kærða. Fram hafi komið í skýrslum, bæði af kærða og af núverandi sambýliskonu kærða að vilji þeirra standi til þess að þau haldi áfram sambúð en sambýliskona hans á tvær ungar dætur. Telji lögregla þeim sérstök hætta búin gangi kærði laus. Lögreglustjóri telji að ætluð brot kærða kunni að varða við XXII. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940, einkum 200. gr. laganna með áorðnum breytingum en slíkt brot geti varðað fangelsi allt að 12 árum.

Með vísan til framangreinds, hjálagðra gagna, rannsóknarhagsmuna, almannahagsmuna, a-liðar 1. mgr. 103. gr. og 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, um meðferð opinberra mála, sé þess farið á leit að fallist verði á framkomnar kröfur. 

Kærði hefur sætt gæsluvarðhaldi á grundvelli a-liðar 103. gr. laga nr. 19/1991 frá 6. nóvember sl. Með vísan til þess sem nú hefur verið rakið og þá sérstaklega með hliðsjón af skýrslu barnsins hér fyrir dómi og áðurgreindu læknisvottorði, er kærði undir rökstuddum grun um að hafa brotið gegn 200. gr. almennra hegningarlaga. Rannsókn málsins er enn ekki lokið og hefur fulltrúi lögreglustjóra upplýst að enn eigi eftir að taka skýrslur af hugsanlega samsekum. Þá á eftir að rannsaka haldlögð gögn. Er það mat dómsins að hætta kunni að vera á því að varnaraðili torveldi rannsóknina fari hann frjáls ferða sinn. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 eru því lagaskilyrði fyrir hendi til að kærði sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi. Að því virtu er fallist á aðalkröfu lögreglustjóra eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.

Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurðinn.

ÚRSKURÐARORÐ

Kærði, X, kt. [...], sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 21. nóvember 2008 kl. 16:00.