Hæstiréttur íslands
Mál nr. 391/2009
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Mánudaginn 13. júlí 2009. |
|
Nr. 391/2009. |
Ákæruvaldið(Sigríður Elsa Kjartansdóttir, saksóknari) gegn X (Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 9. júlí 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. júlí 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 6. ágúst 2009 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. júlí 2009.
Ríkissaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að kærða X, kt. [...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi í 4 vikur eða til 6. ágúst 2009, kl. 16.00.
Í greinargerð ríkissaksóknara kemur fram að 18. apríl 2009 bárust lögreglu upplýsingar um seglskútu sem stefndi í átt að landi á Djúpavogi og gáfu þessar upplýsingar tilefni til frekari athugana af hálfu lögreglu. Meðal annars leiddu þessar upplýsingar til þess að fylgst var með ferðum þriggja manna á tveimur bifreiðum sem hafi verið staddir á Djúpavogi, en þeir höfðu meðferðis slöngubát með utanborðsvél. Síðar kom í ljós að tveir af mönnunum og báturinn voru horfnir en einn mannanna var á ferð um Djúpavog.
Síðar um kvöldið hafi sést til ferða bátsins, þar sem honum hafi verið siglt inn í höfn í Gleðivík, vestan við aðalhöfnina á Djúpavogi. Sá mannanna sem hafði verið á ferð um Djúpavog sást koma akandi að höfninni þar sem báturinn kom að landi. Tveir menn sem komu í land á bátnum og sá sem verið hafði á bifreiðinni tóku töskur úr bátnum og komu þeim fyrir í bifreiðinni. Bifreiðinni hafi í framhaldinu verið ekið á brott. Bifreiðinni hafi verið fylgt eftir af hálfu lögreglu og við Höfn í Hornafirði hafi hún verið stöðvuð og hafi ökumaður hennar verið handtekinn. Í leit í bifreiðinni hafi fundist töskur sem reyndust innihalda um 55 kíló af amfetamíni, um 54 kíló af kannabis og 9.432 MDMA töflur.
Af hálfu lögreglu hafi verið fylgst með mönnunum tveimur sem komið höfðu að landi á bátnum. Hafi þeir sést sigla bátunum úr höfninni í Gleðivík og inn í höfnina á Djúpavogi. Þeir hafi síðar um kvöldið verið handteknir á Djúpavogi á bifreiðinni Y.
Landhelgisgæslan hafi hafið leit að skútunni skömmu eftir að tilkynningin barst og fannst hún á siglingu á hafinu á milli Íslands og Færeyja, á svæði sem kom heim og saman við fyrri upplýsingar um staðsetningu skútunnar, tímasetningar, veður og fleira. Gaf Landhelgisgæslan skútunni skipun um að stöðva, en ekki var orðið við því. Hafi skútunni því verið fylgt eftir og er varðskipið Týr kom að skútunni fóru sérsveitarmenn frá Ríkislögreglustjóra um borð í skútuna og handtóku þrjá menn sem voru um borð, þeirra á meðal kærði. Hafi skútan þá verið stödd á alþjóðlegu hafsvæði í efnahagslögsögu Færeyja og hafi færeyskum yfirvöldum verið gert viðvart um aðgerðirnar.
Kærði hafi alfarið neitað sök vegna málsins. Fram hafi farið myndbending í málinu þar sem bent hefur verið á kærða sem einn aðila í áhöfn skútunnar.
Fyrir liggi að kærði var handtekinn um borð í skútunni og að tengsl séu á milli kærða og a.m.k. A. Fyrir liggi framburður A um að þeir hafi hist erlendis áður en ferðin hafi verð farin.
Fyrir liggi framburðir A og B um að þeir hafi móttekið töskur frá áhöfn skútunnar og auk þess liggi fyrir framburðir fleiri vitna sem staðfesti að skútan hafi komið svo nálægt landi að þeir hafi getað hitt bátinn og afhent efnin.
Einnig hafi komið fram fleiri atriði sem tengja bátinn og skútuna og má þar sem dæmi nefna að símtöl hafi verið á milli áhafna þessara sjófara þennan dag, olía sem keypt var á Djúpavogi reyndist vera um borð í skútunni, og upplýsingar um leiðbeiningar um uppsetningu á GPS búnaði, á hollensku, fundust í bifreiðinni og sömu upplýsingar á íslensku í bifreið A. Einnig fannst kassi undan talstöðvum um borð í skútunni en engar talstöðvar hafi hins vegar fundist. Í bifreið sem B var á hafi fundist talstöð sömu tegundar og sú sem hafði verið í kassanum og eins talstöð fannst einnig í bifreið sem A og C voru á.
Gögn málsins renni stoðum undir ætlaðan þátt kærða í hinu stórfellda fíkniefnabroti. Það sé því mat ákæruvalds að sterkur grunur sé um að kærði hafi átt þátt í að flytja til landsins mikið magn fíkniefna ætluðum til söludreifingar hér á landi.
Málið hafi borist ríkissaksóknara miðvikudaginn 8. júlí sl. Meðfylgjandi ákæra hafi verið gefin út í dag, 9. júlí 2009 og send héraðsdómi. Þar sé kærði ákærður fyrir að hafa í félagi við fimm aðra einstaklinga flutt fíkniefni til landsins ætluð til söludreifingar í ágóðaskyni. Þáttur kærða sé talin vera sá að sigla með efnin áleiðis til Íslands og afhenda þau áfram í því skyni að þeim yrði komið áfram til landsins.
Ætlað brot kærða teljist varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga en brot gegn ákvæðinu varðar fangelsi allt að 12 árum.
Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 21. apríl en með úrskurði héraðsdóms Austurlands frá 21. apríl nr. R-9/2009 hafi kærði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2009, til 12. maí sl. Sá úrskurður var staðfestur með dómi Hæstaréttar nr. 194/2009. Með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur, nr. R-191/2009, frá 12. maí var kærði úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald, einnig á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, til 29. maí. Sá úrskurður var staðfestur með dómi Hæstaréttar nr. 238/2009. Með úrskurði héraðsdóms nr. R-228/2009 þann 29. maí var kærða gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, til 9. júní, einnig á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Sá úrskurður var staðfestur með dómi Hæstaréttar nr. 296/2009. Þann 9. júní var kærða gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi til 23. júní, á grundvelli a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, sbr. úrskurður héraðsdóms Reykjavíkur, nr. R-254/2009. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um að kærði skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi, en féllst þó ekki á þá kröfu lögreglu að kærði skyldi áfram sæta einangrun, sbr. dómur Hæstaréttar nr. 316/2009.
Þann 23. júní sl. hafi kærða verið gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi til 14. júlí, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, sbr. úrskurður héraðsdóms Reykjavíkur, nr. R-289/2009. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms, sbr. dómur Hæstaréttar nr. 353/2009.
Almannahagsmunir krefjist þess að kærði verði í gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans og sé vísað til dómvenju í þeim efnum.
Staða kærða í málinu þyki sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. t.d. mál Hæstaréttar nr. 635/2007, 376/2006, 377/2006, 378/2006, 154/2006, 368/2005, 93/2005, 488/2004, 269/2004, 417/2000 og 471/1999. Þar hafi verið sakborningum gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að uppkvaðningu dóms en fyrir lá sterkur grunur um beina aðild þeirra að innflutningi að miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni. Ekki sé talin ástæða til að ætla að refsimat og réttarvitund almennings í slíkum málum hafi breyst frá því téðir dómar voru uppkveðnir, og sé talið að skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé fullnægt í því máli sem hér um ræðir.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna, og tilvitnaðra lagaákvæða sé þess krafist að framangreind krafa nái fram að ganga.
Með vísan til þess sem að framan var rakið er fallist á með Ríkissaksóknara að kærði sé undir sterkum grun um að eiga aðild að smygli á miklu magni fíkniefna til landsins. Slíkt brot getur varðað allt að 12 ára fangelsi samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Enn fremur er fallist á að brotið sem kærði er grunaður um að hafa framið sé þess eðlis að gæsluvarðhald teljist nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Ákæra á hendur kærða var gefin út í dag og stendur því 4. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála ekki í vegi fyrir því að gæsluvarðhaldi verði beitt. Samkvæmt framangreindu eru uppfyllt skilyrði 2. mgr. 95. gr. sömu laga og verður því fallist á kröfu Ríkissaksóknara eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, kt. [...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi, allt til fimmtudagsins 6. ágúst 2009, kl. 16.00.