Hæstiréttur íslands

Mál nr. 544/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Miðvikudaginn 22. september 2010.

Nr. 544/2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Ómar Örn Bjarnþórsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Páll Hreinsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 20. september 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 20. september 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 29. september 2010 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur. Kæruheimild er í l lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

      Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 20. september 2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt til miðvikudagsins 29. september nk., kl. 16:00.

Þá er gerð krafa um að sakborningur sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi nú til rannsóknar stórfellt skattalagabrot, þar sem sviknar hafi verið út með skipulögðum og kerfisbundnum hætti 274.000.000 króna úr virðisaukaskattkerfi ríkisins, á árunum 2009 og 2010, með því að framvísað hafi verið fölsuðum og tilefnislausum skjölum í tengslum við virðisaukaskattskylda starfsemi tveggja einkahlutafélaga.

Í þágu rannsóknar málsins sæti nú fimm aðilar gæsluvarðhaldi, en málið sé afar umfangsmikið.

Í tengslum við rannsóknina hafi verið framkvæmd húsleit á heimili kærða og sambýliskonu hans, Y, þann 14. september sl., þar sem m.a. hafi fundust rúm 11 kíló af kannabisefni, sem kærði hafi viðurkennt hjá lögreglu að hafa geymt fyrir nafngreindan aðila, þ.e. Z.  Hafi kærði verið í kjölfarið úrskurðaður í gæsluvarðhald, með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur til dagsins í dag kl. 16.

Rannsókn málsins hafi leitt í ljós að sambýliskona kærða, Y, sem sæti einnig gæsluvarðhaldi vegna málsins, hafi tekið að sér, að beiðni Z, að vera prókúruhafi félags sem notað hafi verið við svikin.  Samkvæmt athugun lögreglu hafi hún tekið út af bankareikningum félagsins um 130.000.000 króna.  Í yfirheyrslum hjá lögreglu hafi Y greint frá því að hún hafi komið umræddum fjármunum Z og þegið fyrir það ákveðna greiðslu sem hún hafi talið nema um 1.000.000 króna.

Í yfirheyrslum yfir kærða, X, hafi hann greint frá því að honum hafi verið kunn aðild sambýliskonu hans í brotum Z, þ.e. að Z hafi komið á heimili þeirra tvisvar til þrisvar í viku þar sem hann hafi sótt peninga.  Hann kvaðst jafnframt hafa séð Z afhenda Y peninga.  Hann hafi jafnframt greint frá því að Z hafi sjálfur sagt að hann þekkti starfsmann hjá skattinum og að þau þyrftu ekki að óttast að félögin yrðu tekin í úttekt þar.

Þá hafi lögregla fundið á heimili kærða 550.000 krónur.  Misræmi gæti í framburðum kærða og kærðu, Y, um tilvist þeirra peninga.

Það sé mat lögreglu að kærði, X, sé nú undir rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnabroti, enda hafi hann játað aðild sína þar. Þá sé hann og undir rökstuddum grun um peningaþvættisbrot.  Séu brot hans talin varða við 173. gr. a. og  264. gr. almennra hegningarlaga.

Rannsókn málsins sé afar skammt á veg kominn, en fyrir liggur að reyna að hafa uppi á Z, handtaka hann og yfirheyra vegna málsins.  Þá þurfi að taka frekari skýrslu af meðkærðu Y, sem og kærða sjálfum.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu eigi Z bókað flug til landsins frá S-Ameríku þann 28. september nk.

Í ljósi þess að rannsókn málsins sé á viðkvæmu stigi sé afar brýnt að krafa lögreglustjóra verði tekin til greina, þannig að kærði fái ekki tækifæri til að  torvelda rannsókninni, s.s. með því að koma undan munum, hafa áhrif á aðra samseka eða vitni

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a.-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Það er mat dómsins að fram sé kominn rökstuddur grunur um að kærði kunni að verða uppvís að brotum er varðað geti allt að 12 ára fangelsi.

Rannsókn málsins er skammt á veg komin og eftir á að taka skýrslu af Z en hann á bókað far til landsins þann 28. september n.k. Ætla megi því að kærði muni torvelda rannsóknina ef hann gengur laus.

Þegar litið er til alls framanritaðs telur dómurinn að uppfyllt séu skilyrði a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til að verða við kröfu um að kærða verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 29. september nk. kl. 16:00. Þá er með sömu rökum fallist á að kærði sæti einangrun samkvæmt b lið 1. mgr. 99. gr. laganna.

Þorgerður Erlendsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi til miðvikudagsins 29. september nk. kl. 16:00.

Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.