Hæstiréttur íslands

Mál nr. 422/2011


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Fimmtudaginn 7. júlí 2011.

Nr. 422/2011.

Ákæruvaldið

(Kolbrún Benediktsdóttir settur saksóknari)

gegn

X

(Leifur Runólfsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Páll Hreinsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 5. júlí 2011, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 7. júlí 2011. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 5. júlí  2011, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi til þriðjudagsins 26. júlí 2011 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Af gögnum málsins verður ekki með nákvæmni ráðið hversu mikið magn amfetamíns er um að ræða, en allt að einu er ljóst að magnið er það mikið að skilyrði eru uppfyllt fyrir gæsluvarðhaldi samkvæmt 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

                                                    Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                        

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur þriðjudaginn 5. júlí 2011.

Ákæruvaldið hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að kærði, X, kennitala [...],[...],[...], verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi í 3 vikur, eða til þriðjudagsins 26. júlí 2011, kl. 16:00.  Byggt er á 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. 

                Skömmu eftir komu [...] til landsins 13. júní sl. fann lögregla fíkniefni í bifreið kærða.  Hann hefur játað að hafa átt þessi efni, 3.843 grömm af amfetamíni.  Lögregla segir að samkvæmt matsgerð rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði sé efnið mjög sterk. 

                Kærði hefur borið hjá lögreglu að hann hafi tekið að sér að flytja efnið til landsins, verið svokallað burðardýr. 

                Málið barst til ríkissaksóknara 1. júlí sl. og er stefnt að því að gef út ákæru á næstu dögum.

                Kærði hafi verið í gæsluvarðhaldi frá því að hann var handtekinn þann 14. júní sl. 

                Brot ákærða kann að varða hann refsingu samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga, en refsing getur orðið meira en tíu ára fangelsi.  Í samræmi við dómvenju standa almannahagsmunir til þess að þeir sem eru undir rökstuddum grun um svo alvarleg fíkniefnabrot sæti gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli þeirra, án tillits til þess hvort rannsóknarhagsmunir krefjist þess.  Ber því með vísan til 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 að fallast á kröfu lögreglu.

Jón Finnbjörnsson héraðsdómari kvað upp þennan dóm.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kærði, X, kennitala [...],[...],[...], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi til þriðjudagsins 26. júlí 2011, kl. 16:00.