Hæstiréttur íslands
Mál nr. 29/2013
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Þriðjudaginn 15. janúar 2013. |
|
Nr. 29/2013.
|
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Stefán Eiríksson lögreglustjóri) gegn X (Páll Kristjánsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir, Benedikt Bogason og Helgi I. Jónsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 13. janúar 2013 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum daginn eftir. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 13. janúar 2013 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 8. febrúar 2013 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 13. janúar 2013.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði X, kt. [...], til að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 8. febrúar nk. kl. 16.00.
Í greinargerð kemur fram að klukkan 03.13 í nótt hafi lögreglu borist tilkynning um innbrot í Sjónvarpsmiðstöðina við Síðumúla 2 í Reykjavík. Búið hafi verið að brjóta stóra rúðu á versluninni, rúðu sem snúi til norðurs, út að Síðumúlanum og hafði einum sjónauka verið stolið, en tegund og verð liggi ekki fyrir. Á upptökum úr versluninni sjáist er [...] sé ekið upp að versluninni og X, kærði, komi frá bifreiðinni og brjóti rúðuna. Á upptökunni heyrist jafnframt er kallað sé „X“ frá bifreiðinni.
Umrædd bifreið hafi skráningarnúmerið [...] og hafi ítrekað verið búin að koma við sögu lögreglu fyrr um kvöldið og nóttina. Fyrr um kvöldið hafi lögregla haft afskipti af bifreiðinni og hafi kærði og meðkærða A þá verið á bifreiðinni ásamt tveimur aðilum, þeim B og C. Hafi bifreiðin og aðilar í henni verið tengdir við þjófnaði á felgum. Fyrst megi telja felguþjófnað úr [...] og sé nánar um það í máli 007-2013-[...] og svo þjófnaður úr [...] sem vísist um í mál 007-2013-[...].
Það hafi svo verið klukkan 05:37 að tilkynnt hafi verið um bifreiðina. Í framhaldi hafi bifreiðin verið stöðvuð í akstri í Stigahlíð, en kærði var ökumaður umrætt sinn. Í bifreiðinni hafi verið 6 aðilar, kærði, meðkærða A og áðurnefndir aðilar, B og C, auk pars sem að þeirra sögn hafi verið að fá far heim.
Í skotti bifreiðarinnar hafi fundist felga undan bifreið þeirra, felga af [...] alveg eins og felgur sem hafi verið undir bifreiðinni að framan. Hinsvegar hafi felga að aftan hægra megin verið öðruvísi og hafi hún passað við lýsingu á felgu sem stolið hafi frá [...] (007-2013-[...]).
Á vettvangi hafi þau öll neitað aðild að málinu og öðrum brotum sem þau hafi verið grunuð um fyrr um kvöldið og nóttina. Aðspurð hafi þau sagst hafa verið niðri í bæ. Hafi þau ekki viðurkennt að hafa verið í [...] fyrr um kvöldið, þrátt fyrir að lögregla hafi haft af þeim afskipti þar. Fjórmenningarnir hafi verið handteknir klukkan 05:40 í Stigahlíð.
Auk þessa máls sé kærði undir sterkum grun um að hafa framið eftirfarandi brot:
„Mál nr. 007-2013-[...]
Kærði er grunaður um þjófnað í félagi við 3 aðila, með því að hafa laugardagskvöldið 12. janúar sl. stolið felgu og hjólbarða undan bifreið við [...] í Reykjavík. Vitni kvaðst hafa séð fjóra aðila koma saman á [...] bifreið, 3 dyra, og hefði bifreiðin verið klesst að framan. Höfðu aðilarnir komið út úr bifreiðinni og farið að eiga við bifreiðina [...]. Sagði vitnið eina stelpuna hafa verið í appelsínugulri úlpu og einn ljóshærðan dökkklæddan með rauðri hettu.
Lögregla hafði haft afskipti af kærða, A, B og C í [...] klukkan 20:30 sama kvöld. Þá voru þau á bifreiðinni [...], sem er [...], 3 dyra. Var þá hægra afturhjól bifreiðarinnar sprungið. Þess má geta að felgur undan bifreiðinni [...] eru með felgur fyrir 5 gatadeilingu. A var þá í appelsínugulri úlpu og kærði í rauðri hettupeysu og svörtum jakka yfir peysunni.
Mál nr. 007-2013-[...]
Kærði er grunaður um þjófnað í félagi við 3 aðila, með því að hafa laugardagskvöldið 12. janúar sl. skrúfað felgu og hjólbarða af bifreið við [...] í Reykjavík. Skömmu eftir að lögregla hafði haft afskipti af kærða og meðkærðu í Skútuvogi vegna tilkynningar um dekkjaþjófnað sá vitni er bifreiðinni var ekið að [...] þar sem tveir úr bifreiðinni fóru út og voru eitthvað að gera. Vitnið fór svo þegar það hafði færi til og skoðaði umhverfið, reyna finna hvað þau höfðu verið að gera. Niðurstaðan var sú að vitnið fann bifreið við [...] þar sem búið var að skrúfa eina felgu undan. Bifreiðin var að gerðinni [...]. Felguna fann vitnið einnig.
Mál nr. 007-2013-[...]
Kærði er grunaður um brot gegn valdstjórninni, ásamt meðkærðu A, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 12. janúar sl., að [...] í húsnæði [...], hótað lögreglumönnum því að stinga þá með notuðum sprautunálum. Kærði hótaði jafnframt lögreglumönnum líkamsmeiðingum og lífláti ásamt því að reyna að hrækja á þá á leiðinni á lögreglustöð.
Mál nr. 007-2013-[...]
Fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudagskvöldið 10. janúar sl., í félagi við meðkærðu A, stolið felgu og hjólbarða undan bifreið sem stóð við [...] í Kópavogi. Felgan og dekkið fundust undir bifreið kærðu, [...], um nóttina. Við skýrslutöku hefur kærði neitað sök.
Mál nr. 007-2013-[...]
Fyrir þjófnað, með því að hafa aðfaranótt miðvikudagsins 9. janúar sl., í félagi við meðkærðu A, stolið þremur felgum og hjólbörðum undan bifreið sem stóð við [...] í Kópavogi. Vitni kvaðst hafa séð er ungt par hafi verið að stela hjólbörðunum undan bifreiðinni [...] og borið þau að annarri bifreið, bifreiðinni [...]. Hann sagði þau hafa horfið á brott á þeirri bifreið er þau urðu þess áskynja að upp hafi um þau komist. Bifreiðin [...] er í umráðum kærðu. Hjólbarðarnir fundust á og í bifreið meðkærðu A skömmu síðar. Við skýrslutöku hefur kærði neitað sök.
Mál nr. 007-2012-[...]
Kærði er grunaður um fíkniefnalagabrot, með því að hafa 1. desember 2012, við Hagkaup í Garðabæ, haft í vörslum sínum 2,58 g af amfetamíni. Kærði hefur játað sök.
Mál nr. 007-2012-[...]
Kærði er grunaður um umferðarlagabrot og vopnalagabrot, með því að hafa 23. nóvember 2012 ekið bifreið sviptur ökuréttindum og undir áhrifum ávana- og fíkniefna og hafa ekki virt stöðvunarmerki lögreglu heldur reynt að komast undan. Við handtöku framvísaði kærði útdraganlegri kylfu.
Mál nr. 007-2012-[...]
Kærði er grunaður um tilraun til þjófnaðar, með því að hafa 12. nóvember 2012, í félagi við D, reynt að brjótast inn í gám í eigu fyrirtækisins 66 gráður norður við Miðhraun í Hafnarfirði en lögregla fékk tilkynningu um tilraunina og kom að kærðu á vettvangi. Kærði hefur neitað sök.
Mál nr. 007-2012-[...]
Kærði er grunaður um þjófnað, með því að hafa 23. október 2012, við verslunina Kost við Dalveg í Kópavogi, stolið kaffivél úr bifreið sem stóð þar hjá. Kærði hefur játað sök.
Mál nr. 007-2012-[...]
Fyrir líkamsárás og hótanir, með því að hafa 13. september 2012, við [...] í Reykjavík, slegið konu með flötum lófa í andlitið og í kjölfarið haft í hótunum við hana. Við skýrslutöku hefur kærði neitað sök. Áverkavottorð liggur fyrir sem rennir stoðum undir framburð kæranda.
Mál nr. 007-2012-[...]
Kærði er grunaður um þjófnað, með því að hafa þann 1. september 2012, í versluninni Leyndarmál við Hrísteig, í félagi við A, stolið vörum að verðmæti um 65.000 krónur. Kærði hefur neitað sök. Myndbandsupptaka liggur fyrir af þjófnaðinum og hafa einstaklingarnir verið endurþekktir sem kærði og A.“
Þrátt fyrir ungan aldur eigi kærði að baki nokkurn sakarferil. Í febrúar árið 2006 hafi ákvörðun refsingar verið frestað skilorðsbundið í 2 ár vegna þjófnaðarbrota, í júní s.á. hafi kærði verið dæmdur í 9 mánaða fangelsi, þar af 6 mánuði skb. í 2 ár, vegna ráns og í september hafi hann verið dæmdur til greiðslu sektar vegna þjófnaðarbrots og fíkniefnalagabrots. Þann 25. október 2007 hafi kærði hlotið 4 mánaða fangelsi vegna umferðarlagabrota, fíkniefnalagabrota og þjófnaðar. Árið 2008 hafi kærði svo í Hæstarétti verið dæmdur í 3 ára og 6 mánaða fangelsi vegna fjölda brota, m.a. auðgunarbrota og brots gegn valdstjórninni. Í janúar 2011 hafi kærði svo í héraðsdómi Reykjavíkur verið dæmdur í 8 mánaða fangelsi vegna fjölda brota. Í nóvember s.á. hafi kærði svo verið dæmdur í 45 daga fangelsi vegna umferðarlagabrota.
Við rannsókn mála kærða hjá lögreglu hafi komið í ljós að hann sé í mikilli neyslu fíkniefna, án atvinnu og hafi ekki fasta búsetu.
Með vísan til framangreinds og brotaferils kærða á undanförnum vikum og mánuðum sé það mat lögreglustjóra að fram sé kominn rökstuddur grunur um að kærði hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing sé lögð við og að yfirgnæfandi líkur séu á því að kærði muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og c.-liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Með vísun til þess, sem að framan er rakið úr greinargerð lögreglustjóra og rannsóknargagna málsins, er fallist á það með lögreglustjóra að fram sé kominn rökstuddur grunur um að kærði hafi framið brot sem fangelsisrefsing er lögð við. Þá er, með vísun til sömu gagna, fallist á að ætla megi að hann haldi áfram brotum meðan máli hans er ekki lokið. Samkvæmt þessu er fallist á með lögreglustjóra að skilyrði c.-liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88, 2008 séu uppfyllt og er krafa um gæsluvarðahald því tekin til greina eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Arngrímur Ísberg héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan
Ú R S K U R Ð A R O R Ð:
X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 8. febrúar nk. kl. 16.