Hæstiréttur íslands

Mál nr. 363/2002


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Miðvikudaginn 24

 

Föstudaginn 9. ágúst 2002.

Nr. 363/2002.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Ingimundur Einarsson

varalögreglustjóri)

gegn

X

(Hilmar Ingimundarson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A- liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi var staðfestur með vísan til a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson og Ingibjörg Benediktsdóttir.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 6. ágúst 2002, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 8. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 4. ágúst 2002, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til kl. 16:00 miðvikudaginn 14. ágúst nk. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 4. ágúst 2002.

Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X, kt. […] […], Reykjavík, verði með vísan til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19, 1991 um meðferð opinberra mála gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 14. ágúst 2002 kl. 16:00.

Málsatvik eru þau að föstudaginn 2. ágúst kl. 11:08 hafi lögreglunni í Reykjavík borist tilkynning um blóðugan og ölvaðan mann sem studdur væri af tveim bræðrum við Skeljagranda 4 í Reykjavík. Nokkrum mínútum síðar hafi lögreglunni borist tilkynning um að tveir menn hefðu ýtt manni yfir grindverk við leikskólann Gullborg, Rekagranda 14, og taldi tilkynnandi að hugsanlega væri um lík að ræða. Er lögreglumenn hafi komið á vettvang hafi þeir fundið mikið slasaðan mann sem lá á leikskólalóðinni. Hafi þar reynst vera um að ræða S, kt. […]. Hafi hann verið fluttur í skyndi á slysa- og bráðadeild Landspítala í Fossvogi. Synir kærða, A og B, hafi verið handteknir við bensínafgreiðslu við Austurströnd á Seltjarnarnesi kl. 12:36 í kjölfar árásar á annan mann við verslunarmiðstöðina við Eiðistorg. Kærði hafi verið handtekinn við Eiðistorg skömmu síðar og hafi hann þá verið með áverka í andliti og alblóðugur.

Lögreglan hafi rætt við nokkur vitni í málinu. Fram hafi komið að mikil læti hafi borist frá íbúð að Skeljagranda 4 þar sem synir kærða búi aðfaranótt föstudagsins. Telji vitni að þessi hávaði hafi líkst því að um slagsmál hafi verið að ræða, húsgögn hafi verið færð til og mikill köll og læti hafi borist frá íbúðinni. Kærði hafi að eigin sögn dvalið í íbúðinni hjá sonum sínum og hafi hann verið í íbúðinni aðfaranótt föstudagsins. Eitt vitni sem farið hafi út úr húsinu snemma morguns kvaðst hafa séð blóð á svalargólfi fyrir framan íbúðina. Við vettvangsrannsókn lögreglu í íbúðinni hafi komið í ljós að þar var mikið blóð m.a. á veggjum og gólfum. Í íbúðinni hafi lögreglumenn fundið skilríki S. Vitni sem þekki syni kærða í sjón hafi borið að það hafi séð þá henda manni yfir girðingu við lóð leikskólans.

Samkvæmt bráðabirgðaáverkavottorði Einars Hjaltasonar, læknis á slysa- og bráðasviði Landspítala í Fossvogi, dags. í gær, hafi S reynst við komu á spítalann vera með mjög alvarlega áverka aðallega á höfði, auk þess sem hann hafi verið skorinn eða stunginn víða um líkamann. Fram komi í vottorðinu að röntgenmyndir hafi sýnt blæðingu í heila og brot á andlitsbeinum og tekið fram að erfitt sé að meta afleiðingar árásarinnar að svo komnu. S hafi gengist undir aðgerð á spítalanum í gær og hafi sú aðgerð staðið yfir þegar vottorðið hafi verið ritað.

Rannsókn máls þessa sé á frumstigi og ljóst að mikla vinnu þurfi að inna af hendi í þágu rannsóknar þess. Fyrir liggi að taka þurfi formlegar skýrslur af vitnum en ekki hafi reynst unnt að ræða við S. Þá þurfi tæknideild lögreglunnar að vinna úr þeim gögnum sem hún hafi aflað í þágu rannsóknar málsins.

Kærði liggi undir rökstuddum grun um að hafa í félagi við aðra menn ráðist á S og misþyrmt honum á hrottafenginn hátt í íbúð sem kærði hafi dvalið í umrædda nótt. S hafi síðan verið hent yfir girðingu við leiksvæði í nágrenninu þar sem hann hafi verið skilinn eftir. Ef kærði haldi frelsi sínu hafi hann tök á því að torvelda rannsókn málsins svo sem með því að hafa áhrif á vitni og samseka. Beri því brýna nauðsyn til þess að hann sæti gæsluvarðhaldi meðan rannsókn málsins fari fram.

Lögreglan í Reykjavík rannsaki nú ætlað brot kærða sem á þessu stigi málsins sé talið varða við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með vísan til framanritaðs, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála sé þess krafist að framangreind krafa nái fram að ganga.

 

Kærði er grunaður um aðild að hrottafenginni líkamsárás á S aðfararnótt föstudagsins 2. ágúst sl. að Skeljagranda 4, Reykjavík. Synir kærða búa í íbúðinni, en kærði hefur dvalið þar og var í íbúðinni tiltekið sinn.  Hafa synir kærða verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna rannsóknar málsins.  Fyrir liggur samkvæmt rannsóknargögnum að átök við S áttu sér stað í íbúðinni og við vettvangsrannsókn lögreglu kom í ljós að þar var mikið blóð m.a. á veggjum og gólfum. Kærði sem var handtekinn við Eiðistorg var þá með áverka í andliti og alblóðugur að því er greinir í lögregluskýrslu. Rannsókn á fötum hans og skóm hefur leitt í ljós að um blóðbletti er að ræða. Kærði hefur gefið þá skýringu varðandi áverka sína að hann hafi hlotið þá frá syni sínum, A, er hann gekk á milli hans og S þegar þeir voru byrjaðir að slást.

Samkvæmt bráðabirgðaáverkavottorði Einars Hjaltasonar, læknis á slysa- og bráðasviði Landspítala í Fossvogi, dags. 2. ágúst sl., hafi S reynst við komu á spítalann vera með mjög alvarlega áverka aðallega á höfði, auk þess sem hann hafi verið skorinn eða stunginn víða um líkamann. Fram kemur í vottorðinu að röntgenmyndir hafi sýnt blæðingu í heila og brot á andlitsbeinum og tekið er fram að erfitt sé að meta afleiðingar árásarinnar að svo komnu. Fyrir liggur að S hafi verið höfuðkúpubrotinn, áverkar hans hafi verið lífshættulegir og hann gekkst undir tafarlausa aðgerð á sjúkrahúsi.

 Ætlað brot kærða getur varðað við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Kærði hefur neitað sakargiftum í málinu, en rannsóknargögn þykja benda til  þess að hann eigi aðild að því. Rannsókn málsins er skammt á veg komin, eftir er að yfirheyra vitni og taka skýrslu af brotaþola. Kærði gæti torveldað rannsókn málsins ef hann gengur laus. Með vísan til þess og rannsóknargagna málsins er fallist á skilyrði um gæsluvarðhald skv. a-lið 1. mgr. 103. gr. lagan nr. 19/1991 sé fullnægt. Er því fallist á kröfu lögreglustjórans í Reykjavík um gæsluvarðhald kærða eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði. Ekki eru efni til að gæsluvarðhaldi sé markaður skemmri tími en krafist er.

Eggert Óskarsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 14. ágúst nk. kl. 16:00.