Hæstiréttur íslands
Mál nr. 606/2015
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Þriðjudaginn 15. september 2015. |
|
Nr. 606/2015.
|
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Guðmundur Þórir Steinþórsson fulltrúi) gegn X (Helga Leifsdóttir hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 13. september 2015, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 14. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 10. september 2015, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi til fimmtudagsins 8. október 2015 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Eftir að varnaraðili losnaði úr gæsluvarðhaldi og var gert að sæta farbanni með dómi Hæstaréttar 27. júlí 2015 í máli nr. 485/2015 hefur lögregla haft til rannsóknar um þrjá tugi ætlaðra brota hans gegn 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk brots gegn 244. gr., svo og 249. gr. a. sömu laga, sem varnaraðili er undir rökstuddum grun um að hafa gerst sekur um og fangelsisrefsing er lögð við. Þegar litið er til þeirra brota, sem varnaraðili sætti gæsluvarðhaldi út af þar til hann var settur í farbann, og þeirrar brotahrinu sem hann er undir rökstuddum grun um að hafa haft í frammi eftir það má ætla að varnaraðili muni halda áfram brotum meðan máli hans er ekki lokið, sbr. c. lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Samkvæmt því verður niðurstaða hins kærða úrskurðar staðfest.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 10. september 2015.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að erlendum ríkisborgara, X, fd. [...], verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 8. október 2015 klukkan 16:00.
Í greinargerð lögreglustjórans á Suðurnesjum segir að hann hafi frá júní sl. haft til rannsóknar mál er varða ætlaða refsiverða háttsemi X (hér eftir kærði). Annars vegar ætluð fjársvik í farmiðakaupum, sbr. mál nr. 008-2015-[...], en rannsókn þess sé nú lokið. Hins vegar ætlaðar vörslur og dreifing kærða á myndum og myndböndum sem sýni börn á kynferðislegan eða klámfengin hátt, sbr. mál nr. 008-2015-[...], en rannsókn þess sé á lokastigum. Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar þessara mála frá 17. júní s.l., sbr. úrskurði Héraðsdóms Reykjaness frá 16. júní, 24. júní og 22. júlí s.l. Þann 27. júlí s.l. hafi Hæstiréttur Íslands hins vegar snúið við úrskurði Héraðsdóms Reykjaness frá 27. júlí s.l., sbr. mál nr. 485/2015 og kærða gert að sæta farbanni til mánudagsins 17. ágúst.
Kærði hafi gengið laus frá 27. júlí s.l. og frá þeim tíma hafi lögregla fengið fjölda tilkynninga um ætluð auðgunarbrot kærða, sem rannsökuð séu undir máli nr. 007-2015-[...]. Þau hafi leitt til handtöku kærða og lögreglustjóri krafist þess að honum yrði á ný gert að sæta gæsluvarðhaldi og einangrun. Hafi hann því sætt gæsluvarðhaldi frá 12. ágúst s.l.vegna rannsóknar þessara mála.
Lögreglumál 008-2015-[...]
Upphaf rannsóknar lögreglu á málefnum kærða megi rekja til máls nr. 008-2015-[...]. Það mál hafi hafist eftir að lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning frá Icelandair hf., kt. 461202-3490, um að kærði væri á leið hingað til lands og að farmiði hans hefði verið greiddur með illa fengnu greiðslukortanúmeri. Farmiðinn hefði verið bókaður í gegnum vef félagsins í ferðaleið með fluglegginn frá Glasgow-Keflavík-Seattle, 16. júní 2015, og til baka fluglegginn Seattle-Keflavík-Glasgow, 17. júní 2015. Greiðsla að fjárhæð 3526,95 GBP, eða 722.178 kr. m.v. miðgengi Seðlabanka Íslands á kaupdegi, hefði verið innt af hendi á sama tíma, í gegnum vef félagsins. Nemi áætlað tjón Icelandair hf. í það minnsta sömu fjárhæð. Kærði hafi verið handtekinn á Keflavíkurflugvelli við komu hingað til lands, hinn 16. júní 2015. Degi síðar, 17. júní, hafi kærði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald og hafi hann sætt gæsluvarðhaldi, sbr. úrskurði Héraðsdóms Reykjaness frá 17. júní 2015, 24. júní 2015 og 22. júlí 2015. Rannsókn þess máls sé lokið.
Lögreglumál 008-2015-[...]
Við meðferð máls nr. 008-2015-[...] hafi farið fram rannsókn á tölvubúnaði sem kærði hafði meðferðis og þar fundist fjöldi flugbókana á vegum kærða og greiðslukortanúmer sem tilheyrðu öðrum aðilum. Þá hafi fundist umtalsvert magn skráa sem geyma myndir og myndbönd af börnum, mestmegnis ungum drengjum, í kynferðislegum athöfnum. Kærði sé undir rökstuddum grun um að hafa haft í vörslum sínum, og til dreifingar, þúsundir myndbanda og mynda sem sýni börn á kynferðislegan eða klámfengin hátt, í skrám á hörðum diskum og tölvuskýjum (Dropbox). Í heild sé um að ræða 27 aðganga sem lögregla telur að kærði hafi haft umráð yfir og innihaldi slíkt efni. Lögregla hafi aðgengi að sex þeirra og sé skoðun á þeim langt á veg komin. Telji skrár sem innihalda slíkt efni á áttunda þúsund. Telur lögregla að mun meira magn af slíku efni sé að finna á þeim 21 aðgöngum sem eftir standa. Jafnframt hafi fundist gögn um það að kærði hafi dreift slíku efni til ótilgreindra aðila í spjallhópum á veraldarvefnum, sem kynferðislegar kenndir hafa til barna. Rannsókn þessa máls sé á lokastigum en beðið sé tölvugagna frá Dropbox Inc., í gegnum bandarísku alríkislögregluna (FBI).
Ætluð fjársvik, lögreglumál 007-2015-[...]
Undanfarnar vikur hafi lögregla haft til rannsóknar ætluð fjársvik kærða í fjölda tilvika, frá þeim tíma sem honum var gert að sæta farbanni, hinn 27. júlí sl. Um sé að ræða pantanir á vöru og þjónustu með illa fengnum greiðslukortaupplýsingum á mörgum mismunandi kortanúmerum.
Kærði hafi verið handtekinn 6. ágúst 2015 á höfuðborgarsvæðinu er hann gerði tilraun til að sækja muni sem greitt hafði verið fyrir með stolnum greiðslukortaupplýsingum í vefverslun [...]. Kærða hafi verið sleppt degi síðar, 7. ágúst, og hafi frá þeim tíma fjöldi áþekkra tilvika bæst við, eins og fram komi í rannsóknargögnum. Kærði hafi verið handtekinn á ný 12. ágúst 2015, á [...] Hótel í Reykjavík, er hann hafi gert tilraun til að sækja muni sem pantaðir höfðu verið á nafn [...]. Kærði hafi bókað sig á á hótelið undir nafni þess aðila 10. til 11. ágúst 2015. Eins og fram komi í rannsóknargögnum sé um að ræða fjölda tilvika þar sem pöntun var gerð á veraldarvefnum fyrir vörum, einkum dýrum tölvubúnaði, og þjónustu, t.a.m. dýrum dagsferðum í ferðaþjónustu, og loks séu til rannsóknar nokkur tilvik þar sem kærði sé grunaður um fjársvik, með því að hafa stungið af frá ógreiddum reikningum hjá hótelum í Reykjavík. Við rannsókn málsins hafi lögregla meðal annars lagt hald á eina fartölvu, tvo Iphone farsíma og Ipad spjaldtölvu, sem kærði hafi verið með undir höndum við handtöku. Hafi sá búnaður verið í tæknirannsókn, m.a. til að afla sönnunargagna um ætluð fjársvik kærða. Við þá rannsókn hafi enn bæst við tilvik sem snúa að ætluðum fjársvikum kærða svo og tilraunum til þeirra og eru þau yfir 30 talsins.
Ætlaður þjófnaður á fartölvu og myndavél, lögreglumál nr. 007-2015-[...] og [...]
Við rannsókn lögreglu hafi komið í ljós að fartölvu og myndavél, sem kærði hafði í fórum sínum við handtöku, hafði verið stolið á gistiheimilinu [...], af erlendum ferðamönnum sem dvalist höfðu þar. Um sé að ræða Macbook Pro fartölvu og Sony NEX-6 ljósmyndavél. Þessi mála séu rannsökuð undir málsnúmerum 007-2015-[...] og [...]. Í málinu liggi fyrir að kærði hafi fengið sendan aðgangskóða að gistiheimilinu, til að komast þar inn, í kjölfar þess að bókuð var gisting á nafni hans, sem ekki var veitt heimild fyrir.
Ætlað tölvuinnbrot, rannsakað undir lögreglumáli nr. 007-2015-[...]
Við tölvurannsókn lögreglu á fartölvu í máli nr. 007-2015-[...] hafi komið í ljós að skömmu eftir að tölvunni hafði verið stolið hafði öllum gögnum verið eytt af henni og nýtt stýrikerfi verið sett upp. Telur lögregla fram kominn rökstuddan grun um að kærði hafi verið þar að verki og byggir sá grunur m.a. á að á tölvunni var að finna fjölda gagna sem vísa til kærða. Þá hafi komið í ljós að svo virðist sem brotist hafi verið inn í tölvu gistiheimilisins [...] og telur lögregla að þannig hafi kærði eða aðilar tengdir honum komist yfir kortanúmer þeirra erlendu ferðamanna sem bókað höfðu gistingu á umræddu gistiheimili, í gegnum bókunarkerfi og tölvupóst gistiheimilsins. Þau kortanúmer hafi komið heim og saman við þau kortanúmer sem notuð voru við kaup á varningi, sbr. það sem áður var rakið í máli nr. 007-2015-[...]. Virðist kærði eða annar á hans vegum einnig hafa haft aðgang að tölvupósti gistiheimilisins og jafnframt útbúið nýtt póstfang og gert tilraun til samskipta við komandi gesti gistiheimilisins.
Kærði hafi verið yfirheyrður fjórum sinnum frá því honum var gert að sæta farbanni, þar af þrisvar frá því honum var á ný gert að sæta gæsluvarðhaldi. Í fjórðu yfirheyrslu hafi kærði játað að hafa staðið að baki þeim auðgunarbrotum sem framangreind mál snúast um. Fram til þess hafi framburður hans í öllum atriðum verið ótrúverðugur og haldinn miklum ólíkindablæ að mati lögreglu.
Samkvæmt því sem að framan hefur verið rakið telur lögreglustjóri fram kominn rökstuddan grun um að kærði hafi með háttsemi sinni gerst sekur um brot á 244. gr., 248. gr. og 249. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem við liggi allt að sex ára fangelsi og 210. gr. a sömu laga, sem við liggi allt að tveggja ára fangelsi. Að mati lögreglustjóra sé sýnt að þau brot sem kærði er sakaður um muni ekki hafa í för með sér sektir eða skilorðsbundna refsingu miðað við aðstæður og að lengd þess gæsluvarðhalds sem krafist er að kærða verði gert að sæta sé ekki lengri en sýnt þyki að fangelsisrefsing verði dæmd.
Af framansögðu telur lögreglustjóri nauðsynlegt að kærði sæti gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til rannsóknar og meðferðar hjá lögreglu. Er það mat lögreglu að þau sjónarmið sem Hæstiréttur Íslands byggir niðurstöðu á í framangreindum dómi sínum í máli nr. 485/2015 eigi ekki við á þessu stigi málsins. Vísast einkum í það sem áður hefur verið rakið, þ.e. að kærði hafi við fyrsta tækifæri haldið brotastarfsemi sinni áfram, sem hafi gert það að verkum að fjöldi nýrra mála séu til meðferðar hjá lögreglu. Rannsókn hinna nýju mála sé nú vel á veg komin en lögregla telur eftir sem áður nauðsyn að kærða verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi. Telur lögregla að mikil hætta sé á að kærði muni reyna að komast úr landi eða leynast og koma sér þannig undan málsókn eða fullnustu refsingar, gangi hann laus. Lögregla bendir á að kærði, sem sé erlendur ríkisborgari, virðist ekki eiga nein tengsl við landið önnur en þau að ætluð brot hans séu til rannsóknar hér á landi. Hann eigi hvorki fjölskyldu né stundi atvinnu hér. Vísast m.a. til dóms Hæstaréttar frá 10. nóvember 2011 í málinu nr. 595/2011. Þannig sé kærði undir rökstuddum grun um að hafa hafið brotastarfsemi sína um leið og hann losnaði úr gæsluvarðhaldi þann 27. s.l. og því sé fullt tilefni til þess að ætla að kærði kunni að reyna yfirgefa landið til að komast hjá refsingu. Þannig sé skilyrðum b- liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála einnig fullnægt.
Jafnframt telur lögregla að skilyrðum c- liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 sé fullnægt í málinu, þ.e. að ætla megi að kærði muni halda áfram brotum á meðan málum hans er ekki lokið hér á landi. Í þessu sambandi bendir lögregla á að kærði eigi sér nokkra sögu fjársvika erlendis. Kærði sé undir sterkum rökstuddum grun um að hafa staðið að baki umfangsmiklum auðgunarbrotum hér á landi, mestmegnis á þeim tíma sem hann var í farbanni. Kærði sé því að mati lögreglu vanaafbrotamaður sem lætur sér ekki segjast og hafi sýnt það í verki að hann hafi og muni halda brotum sínum áfram verði honum ekki gert að sæta gæsluvarðhaldi á nýjan leik. Því sé nauðsynlegt að svipta kærða frelsi sínu á nýjan leik.
Með vísan til alls framangreinds, gagna málsins, b- og c-liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 telur lögreglustjóri brýna refsivörsluhagsmuni standa til þess að kærða verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til fimmtudagsins 8. október 2015.
Samkvæmt rannsóknargögnum málsins er kærði undir rökstuddum grun um að hafa framið fjölda brota á meðan hann sætti farbanni. Kærði hefur engin tengsl við landið og er full ástæða til að ætla að hann muni reyna að komast úr landi eða leynast ellegar koma sér með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu refsingar. Fallist er á það mat lögreglustjóra að þau brot sem kærði er sakaður um muni ekki hafa í för með sér sektir eða skilorðsbundna refsingu. Að þessu virtu og með vísan til b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 eru uppfyllt skilyrði til að kærði sæti gæsluvarðhaldi. Einnig er fullnægt skilyrðum c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, enda má ætla að kærði muni halda áfram brotum meðan máli hans er ekki lokið.
Af hálfu kærða hefur því verið borið við að kærði kunni að vera ósakhæfur og verði því ekki gert að sæta gæsluvarðhaldi. Er í þessu sambandi vísað til skýrslu erlends geðlæknis, þar sem fram kemur að kærði sé með Asberger-heilkenni, athyglisbrest og ofvirkni. Skýrsla þessi bendir ekki til ósakhæfis kærða og hugsanlegt ósakhæfi getur heldur ekki staðið í vegi fyrir því að kærði verði úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Samkvæmt öllu framansögðu er fallist á kröfu lögreglustjóra, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 8. október 2015 kl. 16:00.