Hæstiréttur íslands

Mál nr. 595/2009


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Þriðjudaginn 20

 

Þriðjudaginn 20. október 2009.

Nr. 595/2009.

Ríkissaksóknari

(Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari)

gegn

X

(Hilmar Ingimundarson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og 15. gr. laga nr. 13/1984, var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. 

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. október 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 19. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 16. október 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á meðan framsalsmál hans er til meðferðar hjá íslenskum stjórnvöldum, þó eigi lengur en til föstudagsins 30. október 2009 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að hann verði úrskurðaður í farbann til föstudagsins 30. október 2009 kl. 16.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 16. október 2009.

                Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, fæddum [...], verði með úrskurði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi á meðan framsalsmál hans er til meðferðar hjá íslenskum stjórnvöldum, þó eigi lengur en til föstudagsins 30. október nk. kl. 16:00.

                Í greinargerð sóknaraðila kemur fram að upphaf þessa máls sé að X (varnaraðili), sem sé brasilískur ríkisborgari, hafi verið handtekinn á Keflavíkurflugvelli þann 9. ágúst sl., er hann hafi framvísað vegabréfi bróður síns. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness frá 12. ágúst sl. í máli nr. 673/2009 hafi varnaraðila verið gert að sæta 30 daga fangelsi fyrir skjalamisnotkun. Með bréfi brasilíska sendiráðsins í Osló, dags. 7. september sl., barst dómsmálaráðuneytinu beiðni brasilískra dómsmálayfirvalda um framsal varnaraðila, dags. 3. september sl., ásamt fylgigögnum. Barst framsalsbeiðnin ríkissaksóknara með bréfi dómsmálaráðuneytisins, dags. 9. september sl.

Framsalsbeiðnin sé til fullnustu tveggja refsidóma, en í gögnum sem fylgdu henni komi fram að varnaraðili hafi verið með dómi héraðsdómstólsins í Pouso Alegre, Minas Gerais, frá 24. september 1998, dæmdur í 30 ára fangelsi og þrettán mánaða varðhald fyrir rán, mannrán og mótþróa við handtöku. Áfrýjunardómstóll í Minas Gerais hafi endurskoðað refsiákvörðun fyrrnefnds dóms og mildað refsingu varnaraðila í 24 ára fangelsi og 13 mánaða varðhald þann 11. nóvember 2002.

Þá hafi varnaraðili, með dómi héraðsdómstólsins í Sao Paulo, frá 21. desember 1983, verið dæmdur í fimm ára fangelsi, eins árs varðhald og til greiðslu sektar fyrir vopnað rán. Áfrýjunardómstóll í Sao Paulo hafi mildað refsingu varnaraðila í tveggja ára fangelsi, auk sektargreiðslu, þann 5. september 1984.

Samkvæmt gögnum málsins hafi varnaraðili hafið afplánun í Sao Paulo þann 22. júní 1996 og hafi átt að ljúka henni þann 21. júlí 2021. Þann 23. desember sl. hafi hann fengið leyfi til að vera heima yfir jólin. Varnaraðili hafi ekki snúið aftur til afplánunar, eins og ráðgert hafi verið þann 3. janúar sl., og þann 14. janúar sl. hafi verið gefin út handtökuskipun á hendur honum. Interpol hafi gefið út alþjóðlega eftirlýsingu og beiðni um handtöku og gæslu varnaraðila (Red Notice). 

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi kynnt varnaraðila framsalsbeiðnina þann 14. september sl. Hafi varnaraðili kannast við að beiðnin ætti við hann, en hafi hafnað framsali. Dómsmálaráðuneytið hafi óskað þann 10. september sl. eftir nánari upplýsingum frá brasilískum yfirvöldum vegna framsalsbeiðninnar. Að þeim fengnum hafi ríkissaksóknari sent ráðuneytinu umsögn sína, með bréfi dags. 12. október sl., um að skilyrði framsals skv. lögum nr. 13/1984 hafi verið fyrir hendi. Er nú ákvörðunar dómsmálaráðuneytisins um hvort orðið muni verða við beiðni um framsal varnaraðila beðið.

Varnaraðili hafi setið í gæsluvarðahaldi vegna framsalsmálsins frá því að afplánun refsidóms hans hér á landi hafi lokið, þ.e. frá 11. september sl., á grundvelli 15. gr. laga nr. 13/1984, sbr. b-lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, sjá síðasta úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. R-473/2009.

Varnaraðili hafi engin tengsl við landið og megi því ætla að hann muni reyna að komast úr landi á meðan framsalsmál hans er til meðferðar hérlendis. Til að tryggja nærveru varnaraðila á meðan framsalsmál hans sé til meðferðar fyrir íslenskum stjórnvöldum þyki nauðsynlegt að hann sæti gæsluvarðhaldi þar til framsalsmálið er til lykta leitt.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og framangreindra lagaákvæða sé þess beiðst að krafan nái fram að ganga.

Eins og framan er rakið hefur varnaraðili engin tengsl við landið. Nú er einungis beðið ákvörðunar dómsmálaráðuneytisins um hvort orðið verði við beiðni um framsal. Má ætla að varnaraðili muni reyna að komast úr landi á meðan framsalsmál hans hefur ekki verið til lykta leitt. Umsókn hans um hæli og reglur um meðferð hælisleitenda koma ekki til skoðunar í máli þessu, en því er ekki mótmælt að krafa um framsal beinist að varnaraðila. 

Til að tryggja nærveru hans á meðan framsalsmál hans er til meðferðar fyrir íslenskum stjórnvöldum og þar sem fullnægt er 15. gr. laga nr. 13/1984 um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum nr. 13/1984 og b-lið 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 verður krafan tekin til greina eins og hún er framsett.

Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð

Varnaraðili, X, fæddur [...], sæti  áframhaldandi gæsluvarðhaldi á meðan framsalsmál hans er til meðferðar hjá íslenskum stjórnvöldum, þó eigi lengur en til föstudagsins 30. október nk. kl. 16:00.