Hæstiréttur íslands
Mál nr. 166/2000
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Þriðjudaginn 2. maí 2000. |
|
Nr. 166/2000. |
Ákæruvaldið (Kolbrún Sævarsdóttir settur saksóknari) gegn Andrési Ingibergssyni (Brynjar Níelsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að A skyldi sæta gæsluvarðhaldi
á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var
staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Haraldur Henrysson, Arnljótur Björnsson og Markús Sigurbjörnsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 26. apríl 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 26. apríl 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 28. júní nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er
staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms
Reykjavíkur 26. apríl 2000.
Ár,
miðvikudaginn, er á dómþingi, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Helga I.
Jónssyni héraðsdómara, kveðinn upp úrskurður þessi.
Ríkissaksóknari
hefur krafist þess, að ákærða Andrési Ingibergssyni, kt. 230779-4229, Brekkubæ
12, Reykjavík, verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í
máli hans, en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 28. júní nk. kl. 16.00.
Með ákæru ríkissaksóknara 17. þ.m. var höfðað
opinbert mál á hendur ákærða o.fl., þar sem honum er gefið að sök að hafa á
tímabilinu desember 1997 til september 1998 í 6 skipti móttekið og afhent
hérlendis samtals 24 kg af kannabis, sem hann vissi að voru ætluð til söludreifingar.
Ennfremur er ákærða gefið að sök að hafa á tímabilinu janúar 1998 til september
1999 í um 18 skipti móttekið peninga, samtals að fjárhæð um 11,8 milljónir
króna, frá fjórum meðákærðu o.fl., sem hann vissi að voru afrakstur
fíkniefnasölu. Er brot ákærða talið
varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, en til vara við 264.
gr. almennra hegningarlaga, hvað varðar móttöku hans á peningum.
Fyrir liggur sterkur grunur um að ákærði hafi
framið brot sem varðað getur hann allt að 10 ára fangelsi. Um er að ræða
stórfellt fíkniefnamisferli, en umræddur innflutningur er í ákæru talinn hafa
átt sér stað með skipulögðum hætti hátt á annað ár. Brot það, sem ákærða er gefið að sök, er þess eðlis að telja má
gæsluvarðhald nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Með vísan til
framangreinds, framlagðra gagna, hæstaréttardóma í málum ákærða frá 17.
nóvember og 20. mars sl. og 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19, 1991 um meðferð
opinberra mála, er fallist á kröfu ríkissaksóknara, eins og hún er fram sett.
Helga I. Jónsson héraðsdómari kvað upp
úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Ákærði, Andrés Ingibergsson, sæti
áframhaldandi gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans, en þó eigi
lengur en til miðvikudagsins 28. júní nk. kl. 16.00.