Hæstiréttur íslands

Mál nr. 541/2014


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald
  • Gæsluvarðhaldsúrskurður felldur úr gildi


Föstudaginn 15. ágúst 2014.

NNr. 541/2014.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Stefán Karl Kristjánsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. Gæsluvarðhaldsúrskurður felldur úr gildi.

Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi samkvæmt a. lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Eiríkur Tómasson og Helgi I. Jónsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 13. ágúst 2014 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 14. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 13. ágúst 2014 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 27. ágúst 2014 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og sér verði ekki gert að sæta einangrun meðan á því stendur. Að því frágengnu gerir hún kröfu um að verða vistuð á viðeigandi sjúkrastofnun.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Krafa sóknaraðila um að varnaraðili verði úrskurðuð í gæsluvarðhald er reist á a. lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 þar sem hún sé „undir rökstuddum grun um alvarlega líkamsárás, frelsissviptingu, ólögmæta nauðung og hótanir“. Í kröfunni er vísað til skýrslu sem A gaf hjá lögreglu 11. ágúst 2014, en þar lýsti hann því meðal annars að 6. sama mánaðar hefðu þeir Y, Z og Þ ráðist á hann og veitt honum margvíslega áverka að [...], [...]. Varnaraðili hefði verið viðstödd og verið „bara að hlæja þarna ... og niðurlægja mig.“ Í skýrslu A kemur ekki fram að varnaraðili hafi veist að honum og við skýrslugjöf hjá lögreglu 13. ágúst 2014 neitaði hún að hafa sagt eða gert eitthvað við hann.

Í 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 er svo fyrir mælt að sakborningur verði því aðeins úrskurðaður í gæsluvarðhald að fram sé kominn rökstuddur grunur um að hann hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við. Samkvæmt framansögðu er ekki fallist á að varnaraðili sé undir rökstuddum grun um að hafa átt refsiverða aðild að þeim brotum sem að framan að greinir og verður hinn kærði úrskurður því felldur gildi.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er felldur úr gildi.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 13. ágúst 2014.

                Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 27. ágúst 2014, kl. 16:00. Þá er þess krafist að henni verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Kröfu sína byggir lögreglustjóri á a lið 1. mgr. 95. gr. og b lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Krafan er reist á því að kærða sé undir grun um brot gegn 1. og 2. mgr. 218. gr., 225. gr., 226. gr., 233. gr., og 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga nr. 65/1974 um ávana og fíkniefni.

Kærða mótmælir kröfunni og krefst þess að henni verði aðallega vísað frá dómi, til vara að gæsluvaðhaldi verði markaður skemmri tími og að kærða verði vistuð á sjúkrahúsi og einnig að ekki verði beitt einangrun.

                Í greinargerð lögreglustjóra segir m.a. að þann 6. ágúst sl. hafi A komið á lögreglustöðina í Grafarholti og tilkynnt lögreglu að hann hafi orðið fyrir líkamsárás af hendi Y. A hafi þá verið í mikilli geðshræringu og ekki skýrsluhæfur að mati lögreglu. A kvaðst hafa verið tekinn og farið með hann út á land þar sem hann hafi verið pyntaður og honum hótað. Lögreglan hafi flutt A á slysadeild þar sem læknir hafi tekið á móti honum. Að sögn læknisins hafi A haft þar sömu sögu að segja, hann kvaðst hafa verið tekinn af nokkrum mönnum og haldið föngnum í 6-8 klukkustundir. Hann kvað þá hafa kýlt hann, sparkað í hann, notað rafbyssu, bitið hann, hann neyddur til að drekka smjörsýru og látinn sleikja frunsu á öðrum manni. A hafi verið með litla rauða bletti á líkamanum sem að sögn læknis geti komið saman við frásögn hans um að beitt hafi verið rafbyssu. Þá hafi hann verið með marblett við vinstra auga, roða yfir andliti, rauða dökka rák á hálsi og marga blóðbletti. Þá hafi hann einnig verið með margar rauðar rákir víða um bakið eftir högg eða núning.

                Þann 11. ágúst hafi A komið til skýrslutöku hjá lögreglu og lagt fram kæru í málinu. Hann kvað aðila að nafni Æ hafa tekið sig í leigubíl og látið aka suður í [...] til að ræða við Y. Hann kvaðst hafa labbað inn í húsið í [...] og þá hafi hann strax verið kýldur nokkrum sinnum í andlitið. Hann kvaðst hafa verið pyntaður í marga klukkutíma, þeir hafi m.a. notað rafbyssu á háls hans og kynfæri þannig að hann hafi misst þvag, og hafi látið hann drekka smjörsýru. Hann kvað þá hafa verið þrjá, Y, Z og Þ, þá kvað hann einnig stelpu hafa verið á staðnum sem heitir X. Þeir hafi hótað að nauðga honum, hafi tekið úlpuna hans og úr. Hann kvað þá hafa sparkað í hausinn á sér, skorið sig í magann og á bakið. Þá hafi hann verið sprautaður með efni í lærið. Y mun þá hafa sagt honum frá atburði sem Y kvað leiða til þess að A ætti að greiða honum hálfa milljón sem væri ástæða þessarar frelsissviptingar og líkamsmeiðinga. Þá hafi Z tilkynnt honum að A skuldaði honum 100 þúsund krónur og sama gerði X og hafi sagt að skuld hans við hana væri 200 þúsund krónur.

                Að barmsmíðunum loknum hafi Æ farið með A til [...] til að tryggja það að A myndi greiða skuldirnar. A hafi náð að flýja úr bifreiðinni þegar komið var til [...].

                Í gær, þann 12. ágúst, hafi lögreglan farið að [...] í [...]. Í húsnæðinu hafi Y, X, Z og Þ verið og hafi þau hafi öll verið handtekin. Við húsleit hafi eitthvað fundist af fíkniefnum, ætluð smjörsýra, haglabyssa, rafbyssa, meint þýfi, sprautunálar, blóðdropar á gólfi og úlpa eins og brotaþoli hafði lýst. Æ sé nú eftirlýstur af lögreglu.     

                Kærða sé undir rökstuddum grun um alvarlega líkamsárás, frelsissviptingu, ólögmæta nauðung og hótanir. Brot þau sem til rannsóknar séu og kærðu séu grunuð um varði fangelsisrefsingu allt að 16 ára fangelsi og telji lögregla að brýnir rannsóknarhagsmunir séu í húfi. Lögregla leiti nú fimmta aðilans en hann sé ófundinn. Þá eigi eftir að taka frekari skýrslur af meðkærðu, vitnum, skýrslu af brotaþola og frekari skýrslur af kærðu en rannsókn sé á frumstigi. Þyki því með hliðsjón af gögnum málsins og rökstuddum grunsemdum lögreglu brýnt að tryggja rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærða gangi laus en veruleg hætta sé talin á að hún torveldi rannsókn málsins með því að hafa áhrif, á aðra samseka og eftir atvikum vitni og brotaþola ef hún fái að fara frjáls ferða sinna.

                Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála, og til að sæta einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga,  er þess krafist að krafan nái fram að ganga eins og hún er sett fram.

                Ekki eru efni til þess að taka til greina frávísunarkröfu kærðu sem lýtur að því að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki lögsögu í [...]. Þá er heldur ekki unnt að taka til greina kröfu kærðu um sjúkrahúsvist í stað gæsluvarðhalds vegna þess að hún sé eiturlyfjaneytandi. Mun henni bjóðast læknisaðstoð í gæsluvarðhaldinu.

Þegar litið er til gagna málsins er fallist á með lögreglu að kærða sé undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem varðað geti við allt að 16 ára fangelsi. Rannsókn málsins er á frumstigi og haldi kærða óskertu frelsi sínu gæti hún torveldað rannsókn málsins, m.a. með því að hafa áhrif á framburð vitorðsmanna eða vitna. Með sömu rökum verður tekin til greina krafa um að kærða sæti einangrun  í gæsluvarðhaldinu. Með vísan til a liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 er því fallist á að kærða sæti gæsluvaðhaldi eins og nánar greinir í úrskurðarorði. Með vísan til 2. mgr. 98. gr., sbr. a lið 95. gr. sömu laga, er tekin til greina krafa um að kærða sæti einangrun.

Úrskurð þennan kveður upp Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Kærða, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 27. ágúst nk. kl. 16:00.

Kærða sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.