Hæstiréttur íslands
Mál nr. 405/2008
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Fimmtudaginn 24. júlí 2008. |
|
Nr. 405/2008. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu(enginn) gegn X (Sigmundur Hannesson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A.liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Markús Sigurbjörnsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 22. júlí 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 23. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 22. júlí 2008, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 28. júlí 2008 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að hann verði látinn sæta farbanni í stað gæsluvarðhalds. Að því frágengnu krefst hann þess að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili hefur ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur þriðjudaginn 2. júlí, 2008.
Ár, er á dómþingi, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjatorg af Ingveldi Einarsdóttur héraðsdómara,
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði X, kt.[...], til að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 28. júlí nk. kl. 16.
Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að í gær hafi lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu borist tilkynningar um neðangreind innbrot:
Í máli 007-2008-52454 er varðar innbrot að A í Hafnarfirði skýrðu vitni frá því að þau hafi séð í gær um kl. 13:00 til ferða tveggja manna við húsið, annan klæddan í hettupeysu, en hinn sköllóttan, þeir hafi kíkt inn um glugga, hringt dyrabjöllu og farið bakvið húsið. Því næst hafi sést til mannanna inni í húsinu og svo hafi þeir komið út með tvo poka meðferðis og yfirgefið vettvanginn á bifreiðinni [...], sem er af gerðinni B, rauð á lit. Bakvið húsið mátti sjá að búið var að spenna upp glugga. Skýrðu húsráðendur frá því að frá þeim hafi verið stolið fartölvu, víni, skartgripum og fleira.
Í máli nr. 007-2008-52509 hafi verið brotist inn í einbýlishúsið að B í Garðabæ, á tímabilinu kl. 13:30 til 16:30, með því að spenna upp glugga á vesturhlið hússins og þaðan stolið fartölvu, 200 evrum o.fl. Í viðræðum lögreglu við nágranna skýrði D frá því að hann hafi séð rauða B við C milli kl. 13:30 og 14:00 í gær.
Samkæmt frumskýrslu lögreglu í máli nr. 007-2008-52514 hafi verið í gær brotist inn í einbýlishúsið að E í Garðabæ á tímabilinu kl. 09:00 til 16:43, með því að spenna upp glugga á austurhlið hússins og þaðan stolið ýmsum munum, m.a. myndavél. Kvaðst nágranni einn hafa séð um kl. 13:50 þennan dag rauða eða fjólubláa bifreið kyrrstæða við húsið.
Um kl. 18:30 í gær hafi lögreglan stöðvað bifreiðina [...] við Aktu-taktu í Garðabæ. Í bifreiðinni, sem sé rauð B, hafi kærði verið ásamt þremur öðrum Pólverjum. Við leit í bifreiðinni hafi fundist myndavél sú sem stolið var úr innbrotinu að E, sömuleiðis fannst í bifreiðinni hálsmen sem tekið var í innbrotinu að A. Þá fundust einnig í bifreiðinni kúbein, sem lögregla hafi nú borið saman við verksummerki á ofangreindum innbrotsstöðum. Hafi sá samanburður leitt í ljós að samskonar kúbein, bæði hvað varðar lit og lögun, var notað við að spenna upp glugga á þeim stöðum sem brotist var inn. Einnig ku kúbeinið hafa verið notað við að spenna upp hurðir inni í viðkomandi húsum.
Kærði hafi hafnað allri aðild að málinu. Við yfirheyrslu hjá lögreglu hafi kærði skýrt frá því að hann hafi vaknað um kl. 9 í gær og farið til vinnu. Hann hafi unnið til klukkan 16. Þá hafi hann farið heim til sín. Síðan hafi félagi hans F komið og sótt hann, þeir hafi ekið til Hafnarfjarðar og sótt G. Því næst ekið að Aktu-taktu þar sem þeir voru handteknir.
Kærði sé nú grunaður um aðild að ofangreindum innbrotum. Bifreið sú sem kærði hafi verið handtekinn í, sé sú sama og sást við innbrotið við A í Hafnarfirði, í bifreiðinni fannst þýfi úr innbrotinu að E í Garðabæ og A í Hafnarfirði, þá hafi fundist í bifreiðinni samskonar verkfæri og notað hafi verið við að spenna upp glugga og hurðir á öllum ofangreindum innbrotsvettvanginum. Þá komi lýsing vitna á þeim aðila sem braust inn í A heim og saman við útlit kærða.
Rannsókn málsins sé á frumstigi, það sé því afar brýnt að lögregla fái svigrúm til að ræða frekar við vitni og sakborninga og reyna að hafa upp á því þýfi sem stolið var. Þá vinni lögregla nú að því að kanna síma kærða, m.a. m.t.t. staðsetningar hans.
Í ljósi ofangreinds sé það mat lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að lagaskilyrðum a. liðar 1. mgr. 103. nr. laga nr. 19, 1991 sé fullnægt, enda sé kærði undir rökstuddum grun um að hafa framið afbrot sem fangelsisrefsing varðar við. Þá sé mikil hætta á, gangi kærði frjáls ferða sinna, að hann muni torvelda rannsókn málsins, s.s. með því að hafa áhrif á vitni og eða aðra sakborninga eða komi sönnunargögnum undan.
Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið, meðfylgjandi rannsóknargagna og a. liðar 1. mgr. 103. nr. laga nr. 19, 1991 er þess krafist að krafa þessi nái fram að ganga.
Eins og fram kemur í rannsóknargögnum málsins var kærði handtekinn í gær ásamt þremur öðrum samlöndum sínum, þar á meðal F, sem fyrr í kvöld játaði fyrir dómi aðild að tveimur ofangreindra innbrota, í öðru tilvikinu innbrot í hús í Hafnarfirði. Kærði hefur neitað allri aðild að innbrotunum, en fyrir liggur að vitni kváðust hafa séð tvo menn við húsið að A, Hafnarfirði og kemur lýsing á þeim mönnum heim og saman við F og kærða. Þá liggur fyrir að bifreið sú sem kærði var farþegi í, er hann var handtekinn er sú sama og vitni sáu á vettvangi við A í Hafnarfirði og í bifreiðinni fannst kúbein það er notað var við innbrotin, auk einhvers þýfis.
Lögreglan hefur til rannsóknar ofangreind þjófnaðarmál og beinist rannsóknin að kærða og félaga hans. Við slíkum brotum liggur fangelsisrefsing samkvæmt 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Fallist er á með lögreglu að rökstuddur grunur sé um þátt eða hlutdeild kærða í brotunum. Þar sem málið er á frumstigi rannsóknar verður að tryggja að honum verði gert ókleift að torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að hafa áhrif á vitni eða samseka, eða skjóta undan munum.
Verður kærða því gert að sæta gæsluvarðhaldi samkvæmt a. lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 svo sem greinir í úrskurðarorði, en í ljósi þess að rannsókn er svo skammt á veg komin þykir ekki ástæða til að marka gæsluvarðhaldi skemmri tíma.
Á grundvelli a liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 er því fallist á kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eins og nánar greinir í úrskurðarorði. Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómari kveður upp svofelldan úrskurð.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, kt. [...], sæti gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 28. júlí nk. kl. 16.